Eru að renna upp nýjir tímar í íslenskri pólitík?

Það eru sannarlega til séíslensk einkenni í pólitíkinni, en þau eru fæst til þess að gorta sig af. Í nágrannalöndum okkar er hefð fyrir samstarfi fólks á milli flokka, og t.d. samstarfi meirihluta og minnihluta á þingi með mál. Oft hafa verið minnihlutastjórnir á Norðurlöndunum við völd, og gefist bara ágætlega. Lýðræðisleg hef þeirra er sterkari en okkar.

Ekki svo að það hafi ekki verið vilji til þess að bæta úr. Samfylkingin undir stjórn Ingibjargar Sólrúnar kom fram með samræðustjórnmál, sem reyndar hefur alfarið verið kastað fyrir róða í stjórnartíð Jóhönnu Sigurðardóttur. Stjórnarhættir í þessarri ríkisstjórn eru í anda einræðis.

Minnist þess ekki að nokkurt frumvarp hafi verið samþykkt á Alþingi sem lagt hafi verið fram af minnihlutanum.

Nú er það svo að stór hluti þingstarfsins fer fram í nefndum og þar er oft mjög vel unnið. Nokkuð sem ekki kemst til skila til þjóðarinnar t.d. í gegnum fjölmiðla.

Í nýafstöðnum kosningum um tillögur stjórnlagaþings, var samþykkt að auka vægi persónukjörs. Margir vildu t.d. gjarnan kjósa fólk af mismunandi listum. Þannig  myndu eflaust margir vilja kjósa Guðfríði Lilju í Kraganum, þótt þeir annars væru með áherslur annarra flokka en VG. Kjósa Guðfríði Lilju vegna hæfleika, greindar hennar og hugsjóna. Svo verður ekki. Hún féll ílla inn í hinn Austur þýska VG. Öllum var löngu ljóst að hún nyti ekki lengur stuðnings flokksforystunnar, ekki Steingríms. Á flot er dreginn Ólafur Gunnarsson bæjarfulltrúi í Kópavogi. Sá les flokkskórarinn alla daga og fer á hnén tvisvar á dag og tilbiður Steingrím. Ekki svo  að hann hafi ekki sína greind en hana notar hann aðeins til að hlýðnast, gagnstætt Guðfríði Lilju.

Það er eftirsjá eftir Guðfríði Lilju á Þingi.
mbl.is Guðfríður Lilja stóð með grunngildunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Þvert á loforð "Velferðarstjórnarinnar" um meiri samvinnu og "uppúr skotgröfunum" eru grafirnar að dýpka og skítkast og aumingjaháttur annar eins og ritskoðun að aukast.

Ekki einu sinni RÚV tekst að halda sig utan þessa skítmaks.... enda sérhönnuð fréttastofa til að láta skítadreifara þeirrar ríkisstjórnar er í hvert sinn situr lykta eins og blómagarð.

Óskar Guðmundsson, 3.11.2012 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband