Nýtt gengisbandalag?

Fyrir nokkrum árum bloggaði ég hér um upptöku á norsku krónunni. Ljóst var að Evran var ekki í boði a.m.k. á næstu árum og allt tal þar um hreinar blekkingar. Auk þess sýndist mér að þær sveiflur sem væru í gengi íslensku krónunni samsvöruðu sér mun betur með þeirri norsku en Evrunni. Það eru kostir og gallar að vera með eigin mynt og við sem þjóð eigum að skoða þá möguleika án flokkspólitískra trúarbragða. Fyrir fáum árum hitti ég gamlan kennara Árna Vilhjálmsson prófessor og við fengum okkur kaffibolla út á Kaffivagninum út á Granda. Hann sagði mér að hann hefði lesið hugleiðingar mínar með ánægju og í framhaldi af því rætt þá lausn og aðrar með nokkrum samkennurum. Þeir tóku umræðuna mun dýpra og lengra. Að mynda myntbandalag Noregs, Íslands, Færeyja, Grænlands og Skotlands. Mér fannst þessi hugmynd afbragð, og í ljósi nýjustu frétta um áhuga Skota á ESS enn áhugaverðari.

 http://www.ruv.is/frett/adild-ad-efta-freistar-skota


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Já Sigurður, gamla bloggið þitt er ef mögulegt er, ennþá meiri sannindi einmitt núna, það hefði ekki verið ömurlegt að vera með NOK/ISK núna.

Eyjólfur Jónsson, 21.11.2016 kl. 22:34

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gott að sjá þig "Ziggi" minn. Ekki svo langt síðan ég hitti einn af okkar bestu Blikum,-Gúnda sem viðraði þessa hugmynd með norsku krónuna gott ef hann vildi ekki að við gengjum í Noreg....

Helga Kristjánsdóttir, 22.11.2016 kl. 04:35

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það þarf að skoða þessi mál fordómalaust og án fyrirframgefinna skoðana. 

Sigurður Þorsteinsson, 23.11.2016 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband