Hann lifir kannski í....

Hann lifir kannski í efnahagsveruleika fyrri ríkisstjórnar? spyr Þóra Kristín Jóhönnu Sigurðardóttur. Fyrirspurnin væri ekkert óeðlileg ef um flokkspólitískt málgagn væri að ræða, en hún er skýrir fyrst og fremst pólitískar skoðanir fjölmiðamannsins. Mér leiðist fjölmiðlamenn sem ekki geta haldið pólitískum flokkspólitískum skoðunum sínum fyrir utan starf sitt í fjölmiðlun. Tillögur Tryggva eru mjög sambærilegar og tillögur Framsóknarflokksins og þær hafa ekki fallið í kramið á stjórnarheimilinu. Gagnrök Jóhönnu og Steingríms eru hins vegar vel skiljanleg og samhljóma þeim áherslum sem þau hafa í pólitík. Miðað við að mikill fjöldi heimila og fyrirtækja muni lenda í miklum erfiðleikum á þessu ári verður að grípa til róttækari aðgerða en fram hafa komið.
mbl.is Húsráð Tryggva Þórs þykja vond
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Ég er þér hjartanlega sammála Ziggi. Fjölmiðlamenn með pólitískar skoðanir sem enduróma i spurningum þeirra eru þreytandi. Gleymum ekki að fjölmiðlamenn hafa verið almennt gagnrýndir fyrir aðhaldsleysi í aðdraganda hrunsins. Þeir þurfa því að fara a líta í eigin barm eins og margir. Ég gæti nefnt nokkur nöfn en sleppi því amk að sinni.

Kveðja,

Muggi.

Guðmundur St Ragnarsson, 17.3.2009 kl. 19:55

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Já Þóra Kristín er alltaf við sama heigarðshornið.

Rauða Ljónið, 17.3.2009 kl. 20:24

3 Smámynd: Bjarni Benedikt Gunnarsson

Gleymum því ekki að þetta er blaðamaður ársins! Þýðir það þá ekki að meirihluti blaðamanna styðja SF eða VG? Það er þá væntanlega ástæðan fyrir því hversu fáránlegum silkihöndum þessi ríkistjórn er leikin í fjölmiðlum. 

Bjarni Benedikt Gunnarsson, 17.3.2009 kl. 22:25

4 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Sæll Siggi minn.

Þóra er bara þóra. Hún sýndi afburða lélega fagmennsku með þessu innslagi sínu.

KV Jenni.

Jens Sigurjónsson, 18.3.2009 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband