Samskipti við erlenda fjölmiðla

Það er hægt að gagnrýna margar ákvarðanir Geirs Haarde, en það hlýtur að hafa verið erfitt að vera í hans stöðu eftir hrunið að halda sjó. Reglulegir blaðamannafundir voru til góðs og Björgvin Sigurðsson stóð sig vel við hlið hans í fjarveru Ingibjargar Sólrúnar. Eitt af því sem Geir Haarde fékk hrós fyrir var góð framkoma hans í viðtölum við erlenda fjölmiðla. Hann hefði átt að nýta sér þennan styrkleika enn frekar. Þegar kom fram á þetta ár minnkaði upplýsingaflæðið til almennings og það varð ríkisstjórninni að falli. Við tók ríkisstjórn VG og Samfylkingar. Ný ríkisstjórn hefði átt að læra af mistökum fyrri ríkisstjórnar, það hefur hún ekki gert.

Það er sjálfsagt hægt að gagnrýna framgöngu Geirs Haarde í þessu viðtali og í öðrum viðtölum við erlenda fjölmiðla. Við getum borið þessi viðtöl saman við þau viðtöl sem Jóhanna Sigurðardóttir hefur átt við erlenda fjölmiðla á undanförnum mánuðum.


mbl.is Hefðu átt að minnka umsvifin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hefur Jóhanna átt einhver viðtöl við erlenda fjölmiðla undanfarna mánuði?  Talsmaður forsætisráðuneytisins hafði þá skýringu uppi að óhægt væri um vik fyrir utanríkisþjónustuna að tjá sig því stjórnvöld væru ekki samstíga.

Sigurður Þórðarson, 20.9.2009 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband