Vægur dómur í Lúkasarmáli!

Þá hefur Héraðsdómur Reykjaness dæmt í svokölluðu Lúkasarmáli. Einhver óprúttinn lygalaupur spann upp á sögu að ungur maður Helgi Rafn Brynjarsson hefði sparkað hundinn Lúkast til dauða. Í framhaldinu fékk hluti þjóðarinnar móðursýkiskast og svívirti unga manninn á netinu. Í kjölfarið fékk hann sendar morðhótanir. Við sem eigum börn ættum að setja okkur í spor þessa unga manns.

Góður vinur minn, hundaeigandi, hefur starfað í félagskap hundaeiganda. Hann segir þá reynslu sína vera tvíþætta. Annars vegar er um afskaplega gefandi áhugamál að ræða, og hins vegar dregur hann þær ályktanir að sumir hundaeigendur eigi hunda, þar sem þeim er fyrirmunað að eiga eðlileg samskipti við fólk. 

Skoðum hvað sá stefndi sagði á vefsíðu sinni: 

„Djöfulsins AULI"

„Þessi auli hérna til vinstri heitir Helgi Rafn framkvæmdi ógeðslegan glæp"

.þar sem hundurinn hefur verið öskrandi í töskunni og hélt drengurinn áfram að sparka þartil það var ljóst að hundurinn væri látinn"

Stefndu Þóru Kristínu Hjaltadóttur sá ekkert athugavert við þessi ummæli sín samkvæmt og ekki verður séð að mikil iðrun sé til staðar. 

http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=E201000415&Domur=3&type=1&Serial=1&Words

 Mér finnst að fjölmiðlar eigi að birta mynd af Þóru Kristínu og nafn hennar. Fagna niðurstöðu dómsins, að öðru leiti en því að mér finnst fésektir allt of lágar. 

 

 


mbl.is Ummæli dæmd dauð og ómerk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Klara

Heyrðu góði minn þessi drengur sá þessa blogg færslu fyrst í haust svo ekki getur hún hafa verið að valda honum og fjölskyldu hans einhverjum skaða síðan 2007.  Og hjá stefndu er verið að taka allt úr samhengi og er verið að skíta hana út núna frá a-ö

Hulda Klara, 14.2.2011 kl. 22:13

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það er verið að dæma Þóru Krisínu Hjaltadóttur sem rógbera. Þeir sem skoða málavöxtu geta ekki annað en komast að þeirri niðurstöðu að hana bar að dæma. Vonandi verður þessu máli áfrýjað, þannig að skaðabæturnar verði hærri.

Sigurður Þorsteinsson, 15.2.2011 kl. 00:29

3 Smámynd: Hulda Klara

þú veist ekkert um þetta mál nema það sem þú hefur séð/lesið í fjölmiðlum og ert þú þá ekki að dæma hana af einhverju sem þú veist ekki um.

Hulda Klara, 15.2.2011 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband