Fyrst Vantrú, nú hassreykingar og næst stripp á Austurvelli.

Á föstudaginn langa ákvað Vantrú að spila bingó á Austurvelli til þess að láta á sér bera og mótmæla áhrifum kristinnar trúar á Íslandi. Nú boða hassreykingarmenn uppákomu á Austurvelli og heyrst hefur að áhugafólk um stripp hafi áhuga að gera slíkt hið sama. Það sem er sameiginlegt með þessum uppákomum að þær standast ekki núverandi lög.  Nú er það svo að hægt er að breyta lögum og til þess velur þjóðin 63 fulltrúa á Alþingi. Mikill vilji er þannig að breyta lögum um eiturlyfjaneyslu, þannig að hassneysla verði t.d. ekki ólögleg í sjálfu sér. Held að stuðningur sé fyrir þessu í öllum stjórnmálaflokkum. Ekki er líklegt að nægur stuðningur sé fyrir því að lögleiða að gera megi  lítið úr trú fólks eða að strippa á almannafæri. Þetta gæti þó breyst með tímanum. Þá gæti hugsanleg uppákoma verið að koma saman fyrir framan mosku múslima þar sem fólk kemur og dansar nakið. 

Áður hef ég lýst uppákomu á Austurvelli þar sem ungur maður ákvað að skíta í blómabeð, rétt eins og framgagna Vantrúar, hassreykingarfólks og strippara er að enn ólöglegt, en með auknu umburðarlyndi gæti þetta allt orðið löglegt. Þá gætu verið stofnuð heildarsamtök þessa fólks. Síðan á föstudaginn langa gæti þetta fólk komið saman nakið, gert lítið úr trúariðkun annarra, reykt hass og skitið í blómabeð á Austurvelli. Það er ég viss um að þetta myndi vekja óskipta athygli ferðamanna og jafnvel draga að mun fleiri til landsins um páskana.  Bráðvantar okkur ekki gjaldeyri? 


mbl.is Reyktu gras á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Gunnarsson

Málið er að um leið og þessi undarlegu lög, eins og þessi ólölegheit kannabis t.d., væru ekki lengur lög, þá myndi enginn finna hjá sér einhverja sérstaka þörf fyrir að athafna sig einmitt á Austurvelli, nema auðvitað ef það vildi svo til að maður væri einmitt staddur þar þegar mann langaði í jónu. Svo verð ég að segja að það er mjög mikilvægt að það sé fullkomlega löglegt að gera lítið úr trú fólks. Það heitir tjáningarfrelsi.

Ég held að það þurfi ekkert sérstaklega að vera ólöglegt að skíta í blómabeð, vegna þess að það er svo sjaldgæft að fólk kæri sig um slíkt, og skaðinn ekki neitt yfirþyrmandi.

Theódór Gunnarsson, 21.4.2014 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband