Ábyrgð og siðferðilegt mat.

Góð laun í starfi eru oft réttlæt með að starfinu fylgi svo mikil ábyrgð. Yfirmaður getur oft haft afgerandi áhrif og því fyllilega réttlætanlegt að taka tillit til þess varðandi launagreiðslur. Slíkum störfum fylgir líka krafa um siðferðilega ábyrgð. Á þetta reynir fyrst og fremst þegar eitthvað fer úrskeiðis. Þá vill oft vera að yfirmaðurinn telur algjöran óþarfa að nefna þessa ábyrgð. 

Þegar Már Guðmundsson fer í mál við Seðlabankann út af launadeilu á hann að vita að því fylgir áhætta. Hann getur unnið málið, en hann getur líka tapað því. Ef hann verður fyrir kostnaði af þessum sökum þá er það algjörlega hans mál. Ef hann lætur Seðlabankann borga slíkan kostnað er hann að bregðast því trausti sem til hans er borið og þeirri ábyrgð sem á hans herðar eru settar. Þá skiptir engum máli í hvaða trúfélagi hann er, með hvaða knattspyrnuliði hann ákveður að styðja eða hverjar stjórnmálaskoðanir hann hefur. Hann er óhæfur. Sjái hann ekki sóma sinn í því að taka pokann sinn, verða aðrir að sjá til þess að hann geri það. 


mbl.is Óskaði eftir endurgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er með öllu óásættanlegt að topparnir í þjóðfélaginu geti leikið sér svona með réttlætið meðan almennir borgarar verða að blæða. Ábyrg þeirra hefur aldrei virkað því hún er ekki til. Það er enginn spurning í mínum huga að það á að skoða þetta mál sem spillingar og sakamál bæði hvað varðar Láru V. Júlíusdóttir og Má Guðmundsson.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.7.2014 kl. 10:06

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ásthildur, tek heilshugar undir með þér.

Guðmundur það er mun mikilvægara að lögfræðiostnaður vegna lögmætis vertryggðra lána, svo og framkvæmd á leiðréttingu gengislána, en að eyða fjármunum í að greiða niður persónulegan lögfræðikostnað hálaunamanns! Maður með svona siðferði eins og Már er ekki á vetur setjandi í Seðlabankanum. Með þessari ,,jafnaðarmennsku" hlýtur hann að getað fengið sér farveg annars staðar.

Sigurður Þorsteinsson, 4.7.2014 kl. 13:41

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Tekið er við framlögum í málskostnaðarsjóð, reikningsnr. 1110-05-250427, kt. 520209-2120. www.heimilin.is

Guðmundur Ásgeirsson, 4.7.2014 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband