19.6.2010 | 23:48
HK í tímabundum vandræðum
![]() |
Þór og Fjarðabyggð með útisigra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.6.2010 | 14:00
Áfellisdómurinn er um aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
![]() |
Meiriháttar áfellisdómur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.6.2010 | 23:06
Hjá höfðingjanum!
Í kvöld var boðið upp á fótboltaveislu hjá höfðingjanum. Við horfum á Mexíkó á móti Frakklandi með þýskum þulum. Það eru þýskir sérfræðingar sem lýsa leiknum. Þetta er allt önnur uppákoma. Höfðinginn skipti yfir íslenska sjónvarpið í 5 mínútur og það verður að segjast að þulirnir voru kjánalegir.
Hef kenningu sagði höfðinginn.
Sem er....
Þeir hafa ekki þessa stráka í lýsingunum í sparnaðarskyni.
Nú?
Nei, ef íþróttafréttamennirnir hefðu menn eins og Guðjón Þórðar, Loga Ólafs, Ólaf Kristjánsson og Willum Þórsson, þá virka íþróttafréttamennirnir eins og fábjánar. Þess vegna fá þeir til sín leikmenn, sem kunna e.t.v. 20% af því sem fagmennirnir kunna.
Gæti verið, sagði ég. (mjög líkleg skýring)
Heyrðu þetta. Frakkar ná boltanum. Þeir sparka útaf. Innkast sem Mexíkó á. Halda þessi fífl að við séum ekki að horfa á boltann. Skiptum yfir á Þjóðverjana, þetta fúsk eyðileggur leikinn fyrir manni.
Það er franskir smáréttir með boltanum, ásamt sérlega góðu frönsku rauðvíni.
Ég minnist þess fyrir 5 árum síðan, þegar við gerðum dómarasamninginn. Þá horfðum við á enska boltann í 4 helgar í röð, en fyrir leiki fór ég yfir dómaralögin. Útskýrði m.a. rangstöðu, beina óg óbeina aukaspyrnu, hvort bolti færi í hönd eða hönd í bolta. Ég varð að kaupa lögin fyrir höfðingjann. Eftir það er hann með lögin á hreinu, sem margir íþróttafréttamenn eru alls ekki og síst aðfengir leikmenn.
Lélegir íþróttafréttamenn fara sérstaklega í taugarnar á höfðingjanum. Í fyrstu lýsingu sem ég var með honum braut hann forkunnarfallegt innskotsborð. Það var litli bakarasnúðurinn. Höfðinginn minntist á hann aftur í kvöld. Ég fór að horfa á mína menn. KR á móti Fram. Þá heyrði ég það ljótasta orðbragð sem ég hef heyrt í áhorfendastúku hérlendis. Hvatning til óhæfuverka. Minnti mig á knattspyrnubullurnar í Englandi. Þær verstu. Mér var litið á kauða. Jú, mikið rétt. Var þá ekki kominn litli bakarasnúðurinn, sem reif kjaft,sama innihaldslausa bullið.
Nú er hnn kominn í pólitíkina. Hann var settur í baráttusætið.
Hann spurði ég.
Jú, bakarasnúðurinn.
Nei, nei. hann var ekki í neinu baráttusæti, hann var settur í einhverstaðar neðalega á lista.
Bíddu við ungi maður. Sjáðu Mexíkanana. Þeir eru allir með baráttuna á fullu. Líka varamennirnir. Þess vegna vinna þeir Frakkana. Settu eitt skemmt epli á bekkinn, og þeir spila eins og Frakkar. Það eru allir liðs í baráttusætinu, líka í pólitíkinni.
Fótboltasýningar hjá höfðingjanum eru engu líkar. Ég nenni varla að horfa á sýningarnar a flatskjánum heima, það vantar umgjörðina og menninguna. Fyrir höfðingjann er þetta heilög athöfn. Í henni tek ég þátt með glöðu geði.
![]() |
Mexíkó sigraði Frakkland 2:0 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 18.6.2010 kl. 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.6.2010 | 07:06
Styrkjamál Samfylkingarinnar
![]() |
Skilur lítinn stuðning við ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2010 | 16:56
AES - Austur Evrópusambandið
Það hefur vakið athygli í Evrópu, rétt eins og hérlendis að yfirlýstir stuðningsaðilar ESB lyfta ekki litlafingri til þess að auka stuðninginn við inngöngu í ESB. Þegar nánar er skoðað kemur að sjálfsögðu í ljós að sú barátta er fyrir löngu töpuð, fyrir utan heittrúaða samfylkingarsnúða eru örfáir villuráfandi sauðir sem álpast til að styðja dæmið. Ljóst er að enginn þingmaður VG mun styðja aðild að ESB, og aðeins örfáir aðrir þingmenn.
Í Evrópu er vaxandi kurr meðal Þjóðverja, Frakka og Breta með stöðu annarra þjóða innan ESB. Vaxandi fylgi er fyrir að skipta ESB í vestur og austurhluta: Í Vesturhlutanum yrðu þá þróaðri ríki en í Austurhlutanum yrðu vanþróaðri vestræn ríki s.s. Grikkland, og fyrrum ríki austurblokkarinnar, þar sem kommúnisminn lifir góð lífi. AES verður okkar hlutskipti, og í stað Evrunnar fáum við Rúbluna. Austur þýska velferðarþjóðfélagið, draumaríki ríkisstjórnarflokkanna er orðið að veruleika.
Aukið samstarf við Kína og Rússland verður sett á oddinn. Gjaldeyrissamningar verða gerðir við þjóðir sem okkur áður fyrr datt ekki í hug að gera. Rúmeníu, Búlaríu og Albaníu. Ráðstafanir eins og að setja afdankaðan kommúnista yfir Icesavesamningana verður nú allt í einu eðlileg ráðstöfun í ljósi sögunnar og nýrrar stefnu.
Sagt er að Steingrímur og Jóhanna faðmist nú kvölds og morgna. Langtímasýnin er komin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2010 | 10:15
Metandstaða við ESB í Noregi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.6.2010 | 22:00
Segir ríkisstjórnin af sér?
![]() |
Boða til flokksráðsfunda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.6.2010 | 22:39
Vandi atvinnulausra
Nú eru um 1000 einstaklingar að falla út af skrá fyrir atvinnulausa, sem þiggja bætur. Þá er vandi þeirra vandi sveitarfélaganna. Reynt hefur verið að leita leiða til þess að bæta kjör þessa fólks. Sagt er að Árni Páll hafi verið himinlifandi þegar eftirfarandi frétt kom á Pressunni í dag.
Atvinnulausum konum hjálpað til að finna sér ríka karla til að spara í félagsþjónustunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.6.2010 | 13:14
Hún kom frá Dresden
Sem nýgift kona settist hún að í Dresden ásamt eiginmanni. Fjarri fjölskyldu sinni og vinum. Þetta ver rétt eftir heimstyrjöldina síðari. Aðskilnaðurinn frá fjölskyldu hennar stóð yfir í 40 ár. Stjórnvöld hömruðu á félagshyggju, samráði, réttlæti og öryggi. Styðja þá sem minnst mega sín. Niðurstaðan eftir 40 ár að við vorum í raun öll öreigar. Allt var í niðurníðslu vegir, byggingar og mannlíf. Samhjálpin og félagshyggjan fólst í því að hver hugsaði um að komast af og stela af ríkinu ef möguleiki var á. Síðan fylgdumst við með hvort öðru og sum á launum. Við vissum hvar við máttum tala og hvar ekki. Áróðurinn gegn vestrinu, gróðahyggjunni var gengdarlaus. Það voru mörg tannhjólin í vél kommúnistaflokksins sem unnu dag og nótt. Framfarirnar og úrbæturnar voru alltaf í vinnslu. Rétt að koma. Ein fimm ára áætlunin var ekki fyrr liðin og svikin, fyrr en ný glæsileg tók við. Flokksgæðingarnir hrópuðu húrra, húrra í hvert skipti, rétt eins og einhverjir þeirra gerðu í tíð Hitlers.
1989 urðum við frjáls. Margir áttu erfitt að fóta sig, en þetta er á réttri leið. Hugarfar kommúnismans er eins og askan úr Eyjafjallajökli, hún smýgur um allt. Ef við erum ekki vakandi fer hún í gangverk þjóðarvélarinnar og hjólin stöðvast. Þessi einstaka 86 ára kona var að koma í sína 3 ferð til Íslands. Skilaboð hennar settum við í allt annað samhengi en hún ef til vill ætlaðist til.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.6.2010 | 17:35
Nú er bara að samfylkjast frá vandanum.

![]() |
Hafa komið til móts við skuldavandann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10