7.6.2010 | 23:38
Stórtap verðandi Íslandsmeistara?
Skrapp á Stjörnuvöllinn í kvöld og sá Stjörnuna rústa Keflavíkurliðinu 4-0. Þessi leikur tapaðist Keflvíkingum í gærkvöldi, en hugarfar í leik mótast oftast deginum áður. Leikmenn Stjörnunnar léku á útopnu allan leikinn, en leikmenn Keflavíkur ekki. Mismunurinn er fjögur mörk. Stemmingin á Stjörnuvellinum var hreint með ólíkindum góð og skemmtileg svo og öll umgjörð. Halldór Björnsson leikmaður Stjörnunnar fannst sem þeir spiluðu sambabolta, sem sennilega stafar af einhverjum misskilningi. Lið Brasilíu er það lið sem oftast er kennt við sambabolta og þá gengur boltinn oft með einni eða tveimur sendingum innan liðs. Það vantar tilfinnanlega innan Stjörnuliðsins. Ég sakna Birgis Birgissonar í Stjörnuliðið, en hann heldur vel bolta, og getur látið hann fljóta, auk þess sem Ellert Hreinsson á eftir að styrkja sóknarleikinn. Halldór, Steinþór og Daníel voru að mínu mati mjög góðir. Þá voru tveir nýliðar Hilmar Þór og Baldvin Sturluson stórgóðir.
Keflavíkurliðið sem hafa alla burði til þess að verða Íslandsmeistarar ættu að láta þennan leik verða víti til varnaðar. Ef rétt hugarfar er ekki með í fartaskinu, er hægt að tapa fyrir hvaða liði sem er.
![]() |
Stjarnan rúllaði yfir toppliðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2010 | 13:27
Er það hlutverk Seðlabankans að halda uppi raunvöxtum?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2010 | 19:22
Skjaldborgin er lausnin
Það er einmitt við þessar aðstæður sem mikilvægt er að slá skjaldborg um heimilin í landinu. Verja þá sem minnst mega sín og sjá til þess að ungt fólk verði ekki gjaldþrotinu að bráð. Svo er mikilvægt að öll stjórnsýsla sé opin og gegnsæ. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra 20.maí 2009.
Guð blessi heimilin í landinu.
![]() |
Staða heimilanna afar slæm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.6.2010 | 14:58
Snjallt útspil Næst besta flokksins
![]() |
Stefnt að ákvörðun um bæjarstjóra í Kópavogi í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2010 | 10:35
Skassið tamið
Það var meira framboð af Guðríði Arnardóttur en eftirspurn í Kópavoginum í síðustu kosningum. Nú var boðuð Ný Kópavogsbrú, sem var svona 2007 loddaratilboð. Enginn tók mark á því og enginn ætlast til þess að við það verði staðið. Kjósendur í Kópavogi eiga heldur ekki von á að það verði nein skjaldborg slegin upp í Kópavoginum, því hún er líka blekkingarvefur sem aldrei stóð við að standa við, en allt þetta á að vera svo lýðræðislegt og opið.
Fyrir kosningar kom Y listinn fram með að staða bæjarstjóra Kópavogs yrði auglýst. Það ætti nú að hugnast Samfylkingunni þar sem þau hafa lagt mikla áherslu að allar stöður séu auglýstar, nema þær sem til stendur að ráða Samfylkingarfólk í. Oddviti Y listans ætlar að standa fast á þessari kröfu, og er líklegt að ef þau gefi eftir sé saga listans öll. Nú heldur Guðríður því fram að hún hafi ekki gert þær kröfur að hún yrði bæjarstjóri. Þ.e. að oddviti Y listans hafi verið að fara með ósannindi. Kópavogsbúar vita betur nefið á Guðríði er þekkt í bænum fyrir þann eiginleika að hafa nef sem geti lengst ótrúlega mikið og ótrúlega oft. Það þarf því að leiðrétta málflutning Guðríðar reglulega. Ekki það að trufli hana neitt óskaplega. Ef þessir fjórir flokkar ná saman, verður það hlutverk hinna flokkana að leitast við að halda Guðríði á slóð sannleikans. Það eitt er þriggja flokka verk.
![]() |
Ekki gert kröfu um neitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10