Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
18.11.2024 | 08:06
Að missa trúverðuleikann
Nú þegar stjórnmálaflokkarnir keppast við að lofa kjósendum gulli og grænum skógum ganga þeir stundum svo langt að trúverðugleikinn glatast.
Þegar Inga Sæland kemur fram í auglýsingu og segir að allar ríkisstjórnir sem hafa verið, hafi svikið kjósendur sín, er ástæðan sennilega afar lélegir auglýsingasmiðir. Ekki það að Inga Sæland á til þess að slá fram fullyrðingum sem almenningur er löngu hætt að taka mark á. Vitandi að þetta er bara í nösunum á henni. Frasar án innihalds sem koma í stað rökræðu. Svo getur hún komið sterk inn í umræðuna, þegar frösunum sleppir. Þegar hún er spurð um skoðun flokksfélaga sinna Ragnars Ingólfssonar oddvita flokksins í Reykjavík norður og Ásta Lóa Þórsdóttir oddviti flokksins í Suðurkjördæmi að reka eigi Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóra hristir Inga bara hausinn brosandi og tekur ekki undir svona bull. Til þess að vera stjórntæk verða frambjóðendur flokksins að vanda sig betur og kynna sér málin.
Sanna Magdalena Mörtudóttir er sjarmerandi frambjóðandi Sósíalistaflokksins og hefur þægilega nærveru. Þegar kemur að lausnum þá fer hún í lausnir sem ungt fólk í MH á menntaskólaárum mínum var að daðra við. Frá því að vera kommúnismi Austur Þýskalands eða austar. Sjávarútvegsmálin á að leysa með því að hið opinbera á að taka við. Endurvekja gömlu bæjarútgerðirnar. Húnsæðismálin á að leysa með því að hið opinbera á að byggja. Rifja upp þann tíma sem ég kynntist Austur Þýskalandi. Öllum sjarma er sturtað niður í klósettið.
Þá kemur að VG. Persónutöfrarnir og leiðtoga hæfileikarnir hennar Katrínar Jakobsdóttir eru ekki lengur til að byggja á, og þá er eymdin og kerfismennskan bara eftir. Hafði þá trú að Svandís Svavarsdóttir myndi með sín hæfileika lyfta sér upp fyrir kerfismennskuna. Valdi gamla farið. Blandan Svandís og Guðmundur var eitthvað sem hrindir meira að segja fjölda úr innsta kjarna VG út, og fólk tekur til fótanna. Gamla Austur Þýska kerfismennskan á lítið erindi í nútímann.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2024 | 16:48
Áfall fyrir RÚV
Röðun á lista, hefur sína vankanta, það hefur prófkjör reyndar líka. Kristrún Frostadóttir er í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. Uppröðunarnefnd setur Dag B. Eggertsson umdeildan fyrrum borgarstjóra í annað sætið, og Þórð Snæs Júlíusson í það þriðja. Hann er sannarlega umdeildur og ekki síst eftir að bloggskrif hans frá fyrri tímum hafa birst. Þórður hefur gefið út að ef hann nái kosningu, muni hann ekki taka sæti á Alþingi. Hárrétt ákvörðun. Næst á lista er Dagbjört Hákonardóttir sem hefur setið á Alþingi síðan Helga Vala Helgadóttir sagði af sér. Það er ekki spurning hvort Dagbjört nái þriðja sætinu heldur gæti hún náð öðru sætinu ef Dagur fær margar útstrikanir. Dagbjört ein ein af þessum þingmönnum sem flestir vilja hafa á þingi, málefnaleg og hæfileikarík. Þórður Snær hefur verið einn af þessum ,,hlutlausu" ráðgjöfum RÚV sem m.a. veldur því að æ fleiri vilja leggja RÚV niður.
Viðskipti og fjármál | Breytt 17.11.2024 kl. 03:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.11.2024 | 14:58
Vilhjálmur Birgisson hristir upp í liðinu.
Vilhjálmur Birgisson mætti í Í bítið í morgun á bylgjunni og hristi upp í liðinu. Tveir síðustu matvælaráðherrar hafa ákveðið að fara ekki að lögum og virða stjórnarskrána, og afgreiða ekki umsóknir í tíma til þess að hvalveiðar geti hafist. Ljóst er að ríkissjóður á von á að greiða hundruð milljóna í skaðabætur fyrir athæfið. Nú eru umsóknir komnar fram um hvalveiðar og þá ber sitjandi matvælaráðherra að afgreiða umsóknirnar. Það skiptir engu þó fjölmiðlamennirnir á Glæpaleiti hafi aðrar skoðanir á málinu. Þeir drógu skattsvikarann og formann Blaðamannafélagsins Sigríði Dögg Auðunsdóttir til þess að fá álít hennar á málinu. Hún er nú varla rétta manneskjan til þess að fjalla um siðferðileg álitamál. Bjarni Benidiktsson á auðvitað að afgreiða umsóknina hið snarasta. Það er nauðsynlegt að hlusta á viðtalið við Viljhálm Bítið - Segir að búið sé að snúa hvalveiðimálinu á hvolf - Útvarp - Vísir (visir.is)
12.11.2024 | 11:29
Hverjir borguðu reikninginn?
Fyrirtækið Black Cube var fengið til þess að ræða við son Jóns Gunnarssonar og fá út úr honum upplýsingar um hvalveiðar á Íslandi, leyfi til hvalveiða og allt sem því tengist.
Það er engu til sparað vinnudýrin gista á einu dýrasta hóteli á Íslandi og borðar þar. Það hlýtur að vera eðlilegt að kannað verði hver eða hverjir borga reikninginn? Er fjármögnunin innlend eða erlend. Hvað kostar að fá slíkt fyrirtæki til þess að ,,taka menn niður".
Hefur eitthvað slíkt gerst áður?
Ef grannt er skoðað þá minnir upplegið nokkuð á þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var veiddur i gildru af RÚV á sínum tíma. Handritið furðu líkt.
Aftur kemur RÚV upp í hugann, en þá varðandi byrlunarmálið svokallaða. Nú er ekki notuð lyf, heldur áfengi notað til þess að veiða upplýsingar.
Er gengið á Glæpaleiti aftur komið á kreik?
Það er ljóst að það eru ekki stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eða Miðflokksins sem liggja undir grun að standi að fjármögnun. Tilgátur eru hins vegar komnar fram.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.11.2024 | 22:25
Vandaðri skoðanakannanir
Það er í raun merkilegt hvað fjölmiðlar virðast taka skoðanakannanir alvarlega. Kemur þar margt til bæði niðurstöður kannana hérlendis í samanburði við niðurstöður kosninga. Það sama má reyndar segja um skoðanakannanir víða annars staðar t.d. í nýafstöðnum forsetakosningum í Bandaríkjunum. Það er vitað að ákveðnir stjórnmálaflokkar fá meira í kosningum en í skoðanakönnunum og aðrir fá minna. Sjálfur leitaðist ég við að leiðrétta spár til gamans fyrr á árinu.
Í dag kemur á Visi.is frétt um nýtt líkan undir heitinu Kosningaspá Meitils, einmitt þar sem faglega er leitast við að leiðrétta þær skoðanakannanir sem hafa verið að birtast.
Niðurstaðan mun síðan breytast því sem nær líður að kosningum.
Nú er spáin þessi:
Samfylking 18%
Sjálfstæðisflokkur 17%
Miðflokkur 15%
Viðreisn 14%
Flokkur fólksins 11%
Framsóknarflokkurinn 9%
Píratar 5%
Vinstri græn 4%
Sósíalistar 3%
Lýðræðisflokkurinn 1%
Þetta er áhugavert framtak og spurning hvort Kosningaspá Meitils muni boða nýja faglegri spá. Það segi ég án þess að gera lítið úr þeim aðilum sem hafa verið að vinna að kosningaspám á Íslandi. Niðurstöður fyrri kosninga segja okkur að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur fá betri niðurstöður en skoðanakannanir sýna. Það kallar á að leiðrétta þarf þær. Bara það eitt segir okkur að þessar kannanir eru gallaðar. Rétt eins og í forsetakosningunum hérlendis á eftir að gera upp mál við kjósendum. T.d. er byrjað að fjalla um 101 milljóna tekjur Kristrúnar Frostadóttur sem hún taldi fyrst fram sem fjármagnstekjur. Afar óheppilegt. Þá verða fjármál Reykjavíkurborgar og framlag meirihlutans í Reykjavík í húsnæðismálum sérstaklega ungs fólks tekin upp. Þegar er farið að ræða um hlutafjárkaup Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og eiginmanns hennar Kristjáns Arasonar í Kaupþingi, og meðferð þeirra mála. Á Wikipedia voru þau sögð skulda 1700 milljónir í hruninu. Þetta er bara hluti af hverri kosningabaráttu. Þó maður vonist eftir málefnalegri kosningabaráttu þá eru rangfærslur m.a. í efnahagsmálum hreint út sagt með ólíkindum, sem ég reyndar skrifa oftar á þekkingarleysi fremur en populisma. Lítil þekking getur verið hættuleg þekking.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2024 | 21:19
Breiðablik Íslandsmeistari
Góðu Íslandsmeistaramóti í knattspyrnu lokið með sigri Breiðabliks í Bestu deild karla og áður kvenna. Afar áhugavert lið og góð blanda leikmanna. Þetta er stór sigur fyrir Halldór Árnason þjálfara sem verður ekki talinn reynslumikill sem þjálfari. Ráðning aðstoðarþjálfara til félagsins nýlega er afar skynsamleg ráðning. Þá er Höskuldur Gunnlaugsson verskuldað valinn leikmaður ´Bestu deildarinnar í ár. Mér finnst með ólíkindum hvernig landsliðsþjálfararnir komast hjá að velja hann í landsliðið, ekki síst eftir að Aron Gunnarsson datt út. Alhliða góður leikmaður með einstakan karakter. Til hamingju Breiðablik.
22.10.2024 | 22:49
Eru kennarar jafnari en aðrir?
Kjarasamningar í voru viðleitni til þess að ná þjóðarsátt. Enn og aftur fengu þeir sem verst stóðu mest. Það mun ekki ganga til lengdar því þá hefur það litla þýðingu að afla sér menntunar. Samningarnir skila öllum hins vegar allnokkru, ef þeir halda. Því reynir á þeir sem síðar semja virði ramman. Allir jafnir. Nú eins og áður koma hópar fram sem vilja vera jafnari en aðrir. Fyrst kennarar. Það er sérlega slæmt nú í ljósi umræðna um skólakerfið, og sýnir mikið dómgreindarleysi. Svo koma kröfurnar upp í rjáfri. Borgarstjóri bendir síðan á að veikindadagar og frí eru óásættanleg innan kennarastéttarinnar. Það ástand verður að skoða sérstaklega. Þá er ráðist á borgarstjóra og kennarar hóta uppsögnum. Það er almenningur en ekki kennarar sem á að vera móðgaður.
5.10.2024 | 09:09
Populismi á Austurvelli
Annað slagið hlusta ég á Útvarp sögu. Það kom mér á skemmtilega á óvart að margir þættir á stöðinni eru góðir. Segir okkur að það er vel hægt að bjóða upp á vandaða umfjöllun án þess að vera ríkismiðill. Stöðin mætti vel styðja betur. Rétt um hádegið var þáttur sem var ekki par skemmtilegur. Ragnar Ingólfsson formaður VR og Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins. Kom sennilega inn í þáttinn þegar honum var að ljúka, Þau ræddu m.a. verðbólguna, og verðtrygginguna. Umræða á sorglega lágu plani og alveg laus við að þau hefðu þekkingu á málefninu. Ásthildur Lóa Þórsdóttir situr þó í Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis Ragnar lagði til að eitt útlánaformið þ.e. verðtryggð lán ætti að banna til einstaklinga. Það kom engar útskýringar. Samskonar rökleysa kemur reglaulega frá Hagsmunasamtökum heimilanna.Það hefur verið reglulega borin saman verðtryggð og óverðtryggð lán og þegar til lengdar er litið eru kjörin nokkuð sambærileg. Eini mismunurinn er að afborganir eru jafnháar að raungildi allan lánstímann, en er hærri í óverðtryggðum lánum í byrjun en afborganir lækka að raungildi þeim mun lengra sem líður á lánstímann. Kostulegast var síðan að hlusta á Ásthildi svara einstaklingi sem ekki fékk hækkaðar vaxtabætur. Hún svaraði því til að fólk hefði fengið um 250.00 sem hefði farið inn á höfuðstólinn, sem hefði bara verið verra!!!! að fá. Það er spurning hvort að svona bull ætti að taka fyrir í siðanefnd Alþingis? Þessi tvö keppast svo við að gera lítið úr Ásgeiri Jónssyni og hafa bæði talað um að taka þyrfti fram fyrir hendurnar á honum, eða jafnvel segja honum upp. Þetta verður vart skilið nema sem alvarleg minnimáttarkennd hjá hjúunum. Næst fara þau að gera lítið úr læknisfræðiprófessorum til þess að upphefja sig. Svo kom rúsínan í pylsuendanum, þau ætla að safna saman fólki á Austurvelli í dag. Síðasta samkoma Ragnars Ingólfssonar á Austurvelli var slík háðung að lengi verður í minnum haft.
Viðskipti og fjármál | Breytt 6.10.2024 kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.10.2024 | 21:50
Grunnnám í hagfræði
Það ætti að vera inntökuskilyrði fyrir ákveðnar stéttir að taka grunnnámskeið í hagfræði. Þingmenn, forystumenn í verkalýðshreyfingunni og fjölmiðlamenn sem fjalli um efhahagsmál.
Í morgun voru stýrivextir lækkaðir um 0,25. Hafði skotið á þessa niðurstöðu nokkru fyrir ákvörðunina. Óbreytt vaxtastig hefði ekki komið mér sérlega á óvart. Þetta var blanda af óskhyggju og tilfinningu. Almenningur getur haft áhrif. Bíðum með stórar framkvæmdir og spörum, leggjum fyrir eða greiðum niður skuldir
Það þarf meira til. Sveitarfélögin verða að taka þátt í dæminu. Ekki safna skuldum og brjóta land fyrir íbúðahúsnæði. Tökum á bákninu sem hækkar húsnæðisverð og opnum fyrir nýjar ódýrari leiðir til þess að byrja.
Þá þarf að skoða möguleika lífeyrissjoðanna til þess að koma með nýtt húsnæði bæði fyrir leigumarkaðinn og til sölu
Þá þurfa aðilar eins og bankarnar að sýna ábyrgð
Þegar aðilar úr verkalýðshreyfingunni tjá sig skiptir það máli. Ragnar Ingólfsson formaður VR tjáir sig um stýrivaxtalækkunina og telur hana of litla og of seint fram komna. Ragnar hefur áður tjáð sig um ákvarðanir í Seðlabankanum og persónugert þær, með að taka þurfi völdin af Ásgeiri Jónssyni. Í hans hópi er kallað eftir því að Ásgeir Jónsson verði rekinn. Þetta er slíkur loddaraskapur og ber vott um þekkingarleysi Ragnars á efnagasmálum. Á sama tíma heyrist lítið í honum þó Reykjavíkurborg standi sig afar illa að sinna eftirspurn eftir lóðum og þá þá ódýrari en þær sem fást með þéttingu byggðar. Þannig er Ragnar að bregðast ungu fólki í VR, því þessi stefna Reykjavíkurbogar hækkar verð á íbúðum og er nú svo komið að nánast aðeins ungt fólk með ríka foreldra sem getur stutt þau fjárhagslega getur eignast íbúðarhúsnæði. Ragnar er því orðið sérstakt efnahagsvandamal, sem m.a. heldur verðbólgunni uppi
Viðskipti og fjármál | Breytt 3.10.2024 kl. 07:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2024 | 04:52
Ritarinn með lausnina?
Það getur verið mjög áhugavert að hlusta á stjórnmálamenn ræða lausnir á vandamálum í efnahagsmálum. Verðbólgan á niðurleið í og lánshæfismat batnar. Opinberir aðilar eru hins vegar ekki bara ríkið heldur líka sveitarfélögin. Kópavogur var að skila rúmlega 500 milljóna hagnaði á síðasta ári, en Reykjavík með 150 milljóna hagnaði. Þá þarf að taka tillit til að t.d. fasteignaskattar eru mun hærri í Reykjavík en í Kópavogi. Ef Reykjavík væri með sömu skattprósentu fasteignagjalda og Kópavogur væri Reykjavík að skila halla upp á tvo og hálfan milljarð. Það kom fram hjá Einari Þorsteinssyni borgarstjóra Reykjavíkur að fjárhagstaðan væri til muna verri en þau hann hefði talið þegar hann var fenginn inn í meirihlutann. Það segir mikið um stöðuna þegar Reykjavík þarf að skera niður opnunartíma í sundaugum og í félagsmiðstöðum fyrir unga fólkið, á þeim tímum sem við þurfum líka að taka á vanda ungs fólks. Dagur B. Eggertsson er sendur um allan heim til þess að kynna sér hvernig hann hefði átt að stýra Reykjavíkur á árangurríkan hátt. Það vakti athygli þegar Dagur útskýrði að hann hefði getað farið í miklu fleiri ferðir, en samstarfsflokkarnir eru endalaust að benda honum á ný námskeið og nýjar ráðstefnur, það er eins og samstarfsflokkarnir vilji losna við Dag til þess að fá vinnufrið. Reykjavík þyrfti síst á að halda nú að láta birta lánshæfismat borgarinnar. Það jákvæða er að Einar Þorsteinsson er sannarlega að leggja sig fram og það mun öorugglega skila árangri. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kom nýlega fram og fagnaði ógurlega að Borgarlínan væri samþykkt með rúmlega tvöfalt hærri áætlun en þeirri sem þau kynntu fyrst. Það var eins og hún hafi unnið í Lottóinu, Niðurstöðu sem mun hækka skuldir Reykjavíkurborgar sem er jú í lagi, það er unga fólkið sem fær að borga reikninginn Ritari Viðreisnar kom fram í Sprengisandi um helgina og lausn hans hvernig taka á vandamálum í efnahagsstjórninni er einföld og skýr. Taka upp Evruna. Lausn Reykjavíkurborgar gæti því verið að taka upp Evruna. Borgarevruna.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 04:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10