Smá - Smuguleg fyrirspurn

Það má vel vera að í huga þeirra sem veittu styrki til Sjálfstæðisflokksins, frá FL Group og Landsbankanum að þeir hafi verið hugsaðir til þess að hafa áhrif á ákvarðanatöku. Af þessum sökum hefur flestum sem metið hafa, þótt þessar styrkupphæðir vera út úr öllu korti, bæði innan Sjálfstæðisflokksins og utan hans. Hafi styrkjunum verið ætlað að hafa áhrif á svokallað REI mál, þá er ljóst að það hefur ekki tekist. Sexmenningarnir svonefndu, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins,  stöðvuðu þessa samninga, og var reyndar gert lítið úr þeim af pólitískum andstæðingum m.a. Svanhvíti Svavarsdóttur.

Þóra Kristín er reyndar söm við sig og spyr hvort styrkirnir geti bent til mútuþegni, sem eru jú dylgjur um ólöglegt athæfi. Þá náði hún að koma höggi á pólitískan andstæðing í sjónvarpi Mbl.is enn og aftur.

Ég heyrði reyndar mjög áhugaverða tilgátu um framgöngu Þóru Krístínar, að á þeim tíma sem Morgunblaðið átti í sem mestum erfiðleikum, hafi Smugan keypt Sjónvarp Mbl.is. Síðan þá eru fréttirnar eins og úr sama koppnum.


mbl.is Aldrei heyrt alvarlegri ásakanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. apríl 2009

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband