3.8.2009 | 10:22
Innleggið sem komst ekki í gegn.
Hrannar Arnarsson stal senunni í gær, með því að koma skilaboðum á framfæri til Evu Joly. Framlag Evu var eflaust ekki vel þegið fyrir þá sem vilja troða þessum meingallaða Icesave samning í gegnum þingið með góðu eða illu. Það sem Hrannar gerði, var eflaust gert í hugsunarleysi og var ekki ætlað að kalla á þá athygli sem framlag hans fékk. Það lýsti hins vegar viðhorfi sem ekki verður tekið til baka.
Hvað veit Eva Joly um efnahagsmál? Hvað veit flugfreyjan í forsætisráðuneytinu eða jarðfræðingurinn í fjármálaráðuneytinu um efnahagsmál. Þau hafa bæði langa stjórnmálareynslu, en margir hagfræðingar hafa af því miklar áhyggjur að verið sé að keyra íslenskt efnahagslíf niður í stað að koma því af stað. Athyglin sem innlegg Hrannars fékk, gerði samt meira slæmt. Hún gerði það að verkum að merkileg grein sem Uffe Ellemann-Jensen skrifaði um aðildarumsókn Íslands í ESB,varð útundan í fjölmiðaumfjöllun hérlendis og náði ekki athygli almennings.
Rúv skrifaði um greinina: Uffe Ellemann segir að það muni styrkja norrænt samfélag og Evrópu mjög taki Norðurlöndin höndum saman innan Evrópusambandsins. Hann kveðst þó hafa efasemdir vegna þess hvernig Ísland nálgist sambandsaðild, því einungis sé rætt um efnahagsmál, áhrif evru og sambandsaðildar á kreppuna. Það finnst Ellemann benda til þess að íslenskir stjórnmálamenn hafi lítið velt fyrir sér því sem Evrópusambandið snúist í raun og veru um, það er stjórnmál og sýnina um sameinaða Evrópu.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Uffe Ellemann bendir íslenskum ESB sinnum að þeir séu á réttri leið. Rétt er að árétta að Uffe Elleman hvar ,,heittrúaðasti" ESB sinninn í Danmörku. Nú eftir inngöngu eru flestir danskir stjórnmálamenn farnir að sjá að í ESB eru kostir en líka alvarlegir gallar. Umræðan er einfaldlega á villigötum. Við eigum ekki að reikna með efnahagslegum ávinningi með inngöngu í ESB. Inngangan verði að vera á pólitískum hugmyndafræðilegum grunni. Þær áherslur sem Uffe Ellemann bendir á hafa ekki verið ræddar hérlendis. Hér hafa áherslurnar verið á þætti eins og að vertryggingin verði þá aflögð. Eitthvað sem við getum framkvæmt án tillits til ESB. Að matvælaverð geti lækkað, sem hægt er ná fram með öðrum aðferðum ef vilji er á. Að við getum tekið upp Evru, sem að vísu flestir viðurkenna að gerist ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir 10 ár. Umræðan þarf að fara í gang um ESB. Þeir sem leitast við að taka hana upp á nótum Uffe Ellemanns, hafa hingað til virkað afkáralegir. Að við eigum að taka þátt í samfélagi þjóðanna. ESB sé friðarbandalag. Þetta höfðar ekki til Íslendinga. Mun ESB yfirleitt höfða til okkar. Það kemur fyrst fram þegar umræðan er komin á plan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 3. ágúst 2009
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10