Von er á glæsilegri niðurstöðu

Við höfum áður hlustað á bjartsýni fjármálaráðherrans. Þá var Icesave á leiðinni, og von var á glæsilegri niðurstöðu. Síðan biðum við, og biðum. Mánuð eftir mánuð og síðan birtist herlegheitin.... að hluta, og síðan smá saman, meira og meira, þá var glæsileikinn floginn á brott. Nú sér Steingrímur glæsileikann í fjarska. Nú trúum við ekki. Skattahækkanir segir hann ekki eiga að koma okkur á óvart, áhugavert verður að bera þær saman við það sem VG og Samfylking urðu hvað reiðust yfir í kosningabaráttunni.
mbl.is Fjármálaráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagamiðlarnir umturnast

Nú velta menn sér fyrir hver verður ritstjóri Morgunblaðsins. Hagamiðlarnir (áður Baugsmiðlarnir) hafa farið hamförum yfir þeim hugmyndum að Davíð Oddson gæti orðið næsti ritstjóri. Hagamiðlarnir hafa sannarlega haft áhrif á íslenskt þjóðfélag, en það verður að segja eins og er, að áhöld eru um hvort þau áhrif hafa verið að öllu leiti jákvæð. Eftir hrunið ákváðu eigendur miðlanna að tryggja eignarhlut sinn. Var verið að verja fjárhagslegan ávinning eða einhverja aðra hagsmuni .....og hverja þá?

Það er annar hópur sem fer hamförum vegna þessara hugmynda um ráðningu í ritstjórastólinn og það eru hörðustu stuðningsmenn Samfylkingarinnar hér á netinu. Merkilegt nokk, en þessir sömu menn virðast af einhverjum ástæðum ekki gera neinar athugasemdir við að einn aðal útrásarvíkingurinn skuli enn eiga meira en helming af öllum fjölmiðlum landsins.

Ég á ekki von á því að Hagamiðlarnir fái að ráða ritstjóra Morgunblaðsins, það hljóta eigendur Morgunblaðsins að gera. Þegar ég velti fyrir mér hver hver tæki við sem ritstjóri komu þrjú nöfn í hugann Davíð Oddsson, Þorsteinn Pálsson og Björn Bjarnason. Allir þessir menn eru vel ritfærir, og eru líklegir til þess að örva umræður á Íslandi. Það er bara gott. Sjálfsagt eru fleiri menn sem gætu sinnt þessu verkefni vel. Hver sem ráðinn verður, er það óskandi að Morgunblaðið muni efla lýðræðislega umræðu.


mbl.is Söluverð til kaupa bréfa af eigendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. september 2009

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband