Spáin var 4-0

Leikurinn í kvöld var leikur kattarins að músinni. Bæði lið eiga hólf í hjarta mínu, en fyrir mér var engin spurning um úrslit. Breiðablik er með léttleikandi, baráttuglatt lið sem er á bullandi uppleið. Stjarnan er með marga mjög góða leikmenn, en ,,Fram aðferðin" var ekki að vika á móti Blikum. ,,Fram aðferðin" hefur ekkert með úrvalsliðið Fram að gera, heldur snýst um það að þegar Stjarnan nær knettinum þá er boltanum sparkað fram. Þar tóku Blikar á móti boltanum og hófu nýja sókn. Ef Stjörnumen náðu boltanum héldu þeir boltanum í 10-20 sekúndur og þá hófu Blikar næstu sókn.

Til þess að veikja lið Stjörnunnar meiddist Ellert Hreinsson og þar með fór mesta ógnunin úr liði Stjörnunnar.  Marel Baldvinsson var ekki á skýrslu, sennilega meiddur og ég saknaði Baldvins Sturlusonar sem hefur verið mjög öflugur í bakverðinum. Þá var Birgir Birgisson ekki í liðinu að vanda, en hann styrkti þó hópinn með því að vera á bekknum.

Blikar spiluðu eins og englar. Þó Alfreð Finnbogason hafi verið þeirra besti maður, var allt liðið feiknargott. Það er meistarabragur á liðinu. Það eru tveir afar erfiðir leikir framundan á móti Fram og Keflavík og yfir þær hindranir verður liðið að komast. 

Þó Stjarnan hafi tapað stórt í kvöld er Stjarnan með allt of góðan mannskap til þess að fara neitt í fallbaráttu. Liðið verður hins vegar að aga leik sinn, og spila boltanum ef þeir ætla sér að færa sig upp töfluna. Það geta þeir hæglega gert.

Fyrir þennan leik spáði ég 4-0 sem gekk eftir. 


mbl.is Alfreð með þrennu í 4:0 sigri Breiðabliks á Stjörnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvítis tendadóttirin!

Þeir sem vinna við ráðgjöf læra fljótt, að það eru misjafnar hvatir sem rekur fólk í ráðgjöf. Fyrir nokkru komu til mín eldri hjón til þess að fá hjá mér ráðgjöf vegna skulda  fjölskyldu sonar þeirra. Konan hafði orðið fyrir þeim hjónum. 

Sonurinn hafði tekið upp á því að taka að sér konu með bíl sem var með áhvílandi gengistryggðu láni. Hjónabandið gekk vel í byrjun  þar til að gengið tók að hækka upp úr öllu valdi. Að lokum var staðan sú að eignin sem tengdadóttirin kom með í búið var uppurin, og ungu hjónin stóðu uppi með skuldir sem voru hærri en söluviði bílsins.

Það sem gerði málið enn flóknara var að ungu hjónin eignuðust son, og annað barn var á leiðinni, þannig að erfiðara var að skila tengdadótturinni. Það var ekki það að tengdadóttirin var lúsiðin, afar góð við soninn og sonarsoninn og bara afar viðkunnanleg.

Ég var bara tvö stór eyru. Og....

,,Hverning datt henni í hug að taka þetta lán"?

Ég sagðist nú ekki vita ástæðuna, því ég hefði aldrei hitt eða talað við tengdadótturina.

,,Fékk hún ráðgjöf við bílakaupin".

,,Jú", sagði tengdamóðirin, ,,þeir sögðu henni að þetta væru bestu lánin og hún trúði þeim. Okkur þykir þetta svo vitlaust hjá henni, og ef hún fer að ráðleggja barnabörnunum svona vitleysu, þá munu þau bara lenda í tómu tjóni". 

Ég fann hvernig augun á mér stækkuðu, 

,,Hafið þið tekið lán", spurði ég. Jú þau tóku húsnæðislán milli 1970 og 1980, og síðan höfðu þau tekið af og til lán til að endurnýja bílinn.

,,Fenguð þið ráðgjöf", spurði ég.

,,Já, frá bankanaum".

,,Sem þið treystuð", spurði ég. 

,, Að sjálfsögðu" sagði tengdamóðirin

,, Var það ekki það sem tengdadóttirin gerði" spurði ég. 

,,Humm"

,,Lánið sem þið fenguð á sínum tíma, greidduð þið ekki nema að litlum hluta. Síðan þá er komin verðtrygging og gengistrygging, sem nú hefur reyndar verið dæmd ólögmæt. Aðstæður ungs fólks dag eru erfiðari en var þegar þið voruð að hefja búskap".

,,Ég sé ekki að þessi bílakaup hafi verið neitt vitlausari en gengur og gerist og myndi hvetja ykkur til þess að veita ungu fólkinu a.m.k. andlegan stuðning".

,, Þið getið að sjálfsögðu skilað tengdadótturinni" sagði ég sposkur.

,, Nei, nei sagði tengdamóðirin, þú mátt ekki misskilja okkur. Hún er alveg ágæt. Þetta lán hefur hins vegar valdið þeim miklum áhyggjum, en hún tók það, ekki sonur okkar. Annars skil ég ekki af hverju ríkisstjórnin hefur ekki tekið á þessum lánum í allan þennan tíma".

,,Um þetta með ríkisstjórnina er ég alveg sammála ykkur". 

,, Það er fallinn dómur í Hæstarétti sem segir þessa gengistryggingu ólögmæta, þannig að staða þeirra mun væntanlega verða mun betri þegar líður á haustið. Segið unga fólkinu frá mér að hafa ekki of miklar áhyggjur"

Ég lét þau hafa eyðublað sem unga fólkið gat farið með til lánastofnunarinnar, um að þau áskiluðu sér rétti til þess að greiða lágmarksgreiðslu vegna réttaróvissu. 

 

 


Bloggfærslur 8. júlí 2010

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband