Var hann étinn?

Á sama tíma og ljósin voru tendruð á Hörpu voru varðhundar sem vöktuðu húsin okkar heima. Hverfið var mannfátt. Einhver langaði í heimsókn hjá nágrana okkar og þegar heim var komið fannst blóðugur strigaskór. Ljóst var að fyrir ekki alls löngu hafði verið fótur í þessum skó. Rakki nágrana míns er af þekktu varðhundakyni og ekki hefði ég viljað laumast til hans vitandi af hundinum einum heima. Það er ljóst að sá óboðni hefur fengið óvæntar mótttökur. Vantar á fótinn á honum, eða var hann blóðgaður? Einn ungur sonur húsráðanda kom með þá tilgátu að tíkin hans hafi borðað innbrotsþjófinn. Tíkin væri óvenju södd. Þiggur ekkert.  Við komumst að hinu sanna ef lýst er eftir einhverjum. Það sem er gegn þeirri tilgátu, er að þá vantar hinn skóinn. Hundar borða ekki skó.

Á sama tíma og hundurinn sat að snæðingi, voru ljósin tendruð í Hörpunni. Eitthvað sem ekki passaði með flugeldasýningu. Þetta er afar falleg ljósaskreyting sem fer vel með kyrrð. Flugeldasýning fer illa með kyrrð. 


mbl.is Glerhjúpur Hörpu tendraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. ágúst 2011

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband