12.6.2024 | 08:05
Á undirskriftarveiðum.
Var staddur í Nurnberg í Þýskalandi á fjölförnustu verslunargötu borgarinnar. Konurnar að versla, þá fer ég vanalega í bókabúðir eða sinni öðrum áhugamálum. Hef nógan tíma. Fyrir utan Karstadt verslunina var stórt tjald baráttufólks gegn hvalveiðum, þar var boðið upp á bæklinga og ókeypis svaladrykk, auk þess að verið var að safna undirskriftum. Við hliðina á þeim stóðu hjón sennilega frá Vottum Jehova og buðu gangfarandi ókeypis lesningu og frelsun. Áhugi fólks virtist vera álíka mikill á þessum tveimm hópa krossfara. Ákvað að kynna mér boðskapinn. Í tjaldinu sem var milli 20 og 30 fermetra stórt, voru fimm sjálfboðaliðar. ,,Viltu skrifa undir, vernda hvalina"? spurði hávaxinn maður um þrítugt. ,,Veit svo lítið um hvalveiðar" sagði ég. ,,Jú hvalir eru einhver gáfuðustu dýr á jörðinni, koma næst manninum". ,,Ertu héðan frá Nurnberg"? spurði, ég því hann var með annan hreim en heimamenn. ,,Nei frá Dresden" sagði ungi maðurinn. Eftir nokkuð spjall grunaði mig að hann væri í vaxandi hreyfingu þjóðernissinna sem er fjölmenn í Dresten. Ung stúlka kom brosandi með ávaxtadrykk á bakka og bauð mér. Vel þegið því hitinn var um 30 stig. ,,Af hverju ertu á móti hvalveiðum"? spurði ég. ,,Er á móti öllum veiðum á dýrum" svarði hún brosandi. Ef við eigum að geta fætt heiminn verðum við að borða plöntur og afurðir úr jurtaríkinu. Svo er það miklu hollara. ,,Allir hvalir eru í útrýmingarhættu" fullyrti sá stóri. Ég sagðist koma frá Íslandi og þar væri opinber stofnun Hafrannsóknarstofnun og samkvæmt okkar upplýsingar, er afar fáar hvalategurndir í hættu og þvert á móti" ,,Hvalveiðifyrirtækin múta öllum, opinberum stofnunum og stjórnmálamönnunum", ,,Frá Íslandi" bætti sá stóri við. Hann fór og náði í stóra útprentaða mynd af grindhvalaveiðum, sjórinn og veiðimennirnir útataðir í blóði. ,,Þetta eruð þið, svona gerið þið þetta" ,,Þetta er ekki frá Íslandi", Sagði ég. . Sá stóri mótmælti mér reiðilega og hann var orðinn mjög argur. Ég sagði honum að myndin væri frá Færeyjum. Sá stóri sagði mér að við styddum hvalveiðar vegna þess að við græddum svo mikið á því að drepa hvalina. Sagði honum að það gæti átt við nágranna okkar Grænlendinga þar skiptu hvalveiðar og selveiðar miklu máli. Vegna eigin neyslu. ,,Þeir eru ógeðslegir villimenn", svaraði hann. Ég mótmælti fullyrðingu hans harkalega. Nú var þrýstingurinn á mig orðinn þannig að ég ákvað að koma með útspil. Ég skrifa undir ef þið styðjið mína baráttu. Þau hlustuðu. Jú, dætur mínar elska svín, alveg frá því að þær fengu sparibauk sem var svín. Svo rétt hjá okkur er bóndi með nokkur svín og þær elska að fara og sjá dýrin. Þau eru svo falleg og gáfuð. Við friðum svínin, það er nóg af þeim í Þýskalandi. Við hleypum þeim út úr stíunum og út á göturnar. Þið skrifið undir hjá mér og ég styð ykkar baráttu. Jurtaætan var alveg til, hin voru orðin mjög óvinveitt. Öskureið. Það varð ekkert af undirskriftum. Þegar ég kom heim til Íslands las ég grein um eftir Sigurstein Másson þar sem hann sagði fjölda Erópubúa væri að mótmæla hvalveiðum á Íslandi, og það gæti haft mjög skaðleg áhrif á ferðaþjónustuna og útflutning okkar ef við hættum ekki hvalveiðum. Mér var hugsað til þeirra sem voru að veiða fólk, m.a. til Votta jehóva fólksins við aðal verslunargötuna í Nurnberg.
Viðskipti og fjármál | Breytt 13.6.2024 kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 12. júní 2024
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10