AES - Austur Evrópusambandið

Það hefur vakið athygli í Evrópu, rétt eins og hérlendis að yfirlýstir stuðningsaðilar ESB lyfta ekki litlafingri til þess að auka stuðninginn við inngöngu í ESB. Þegar nánar er skoðað kemur að sjálfsögðu í ljós að sú barátta er fyrir löngu töpuð, fyrir utan heittrúaða samfylkingarsnúða eru örfáir villuráfandi sauðir sem álpast til að styðja dæmið. Ljóst er að enginn þingmaður VG mun styðja aðild að ESB, og aðeins örfáir aðrir þingmenn.

Í Evrópu er vaxandi kurr meðal Þjóðverja, Frakka og Breta með stöðu annarra þjóða innan ESB. Vaxandi fylgi er fyrir að skipta ESB í vestur og austurhluta: Í Vesturhlutanum yrðu þá þróaðri ríki en í Austurhlutanum yrðu vanþróaðri vestræn ríki s.s. Grikkland, og fyrrum ríki austurblokkarinnar, þar sem kommúnisminn lifir góð lífi. AES verður okkar hlutskipti, og í stað Evrunnar fáum við Rúbluna. Austur þýska velferðarþjóðfélagið, draumaríki ríkisstjórnarflokkanna er orðið að veruleika.  

Aukið samstarf við Kína og Rússland verður sett á oddinn. Gjaldeyrissamningar verða gerðir við þjóðir sem okkur áður fyrr datt ekki í hug að gera. Rúmeníu, Búlaríu og Albaníu.  Ráðstafanir eins og að setja afdankaðan kommúnista yfir Icesavesamningana verður nú allt í einu eðlileg ráðstöfun í ljósi sögunnar og nýrrar stefnu. 

Sagt er að Steingrímur og Jóhanna faðmist nú kvölds og morgna. Langtímasýnin er komin. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband