26.12.2010 | 19:20
Gengur Þorsteinn aftur?
Þorsteinn Pálsson varð ungur formaður Sjálfstæðisflokksins og síðar forsætisráðherra. Þetta var á þeim árum sem það þótti fínt að draga kornunga krakka og setja þá til forystu í fyrirtækjum, stofnunum og félögum. Menntunin skyldi koma í stað reynslu og þroska. Þessi tilraunastarfsemi brotlenti hérlendis eins og víðar. Þorsteinn var étinn af hákörlunum í pólitíkinni og þeir spýttu honum út úr sér eins og sveskjusteini.
Þorsteini var síðan skilað sem formanni Sjálfstæðisflokksins og eftir stuttan stans í almennum ráðherradómi, þar sem hann var m.a. leiðitamur af auðmönnum, gerðist hann sendiherra og stóð sig þar ekki verr en hver annar.
Þegar átökin voru hvað hörðust á milli Jóns Ásgeir, hins saklausa og Davíðs Oddsonar sem þá var forsætisráðherra, er Þorsteinn keyptur í stól ritstjóra Baugs-fréttablaðsins. Skyldi Þorsteinn þannig öðlast tæki til að gera upp slaginn við Davíð um formannsembætti Sjálfstæðisflokksins, jafnframt að auðvelda flótta Jóns Ásgeirs. Undir ritstjórn Þorsteins voru skrifaðar lofræður um útrásarvíkingana og undurfagra hárlokka Jóns Ásgeirs.
Þegar hrunið skall á og Jón Ásgeir kom undan lambsgærunni, var ekki lengur þörf fyrir Þorstein, Sveskju-Steina aftur spýtt, enda hans ekki lengur þörf.
Hópur Íslendinga hefur í alllangan tíma efast stórlega um hæfileika íslenskra stjórnmálamanna til þess að stjórna landinu og vilja gagna í ESB. Þar fer Þorsteinn Pálsson fremstur í flokki, minnugur stjórnartíðar sinnar. Farið er út í átak Sammala.is og í það eytt miklum fjármunum, í auglýsingar og heimasíðu. Átakinu er síðan rústað af ungum auralausm manni með osammala.is. Einsamall kláraði þessi ungi maður ESB átakið, en fékk í staðinn heimsóknir tölvuharkara.
Nú skal stofna stjórnmálaflokk. Fyrstur til að kynna flokkinn kemur Gunnar Guðbjörnsson bloggari. Gunnar var hér á árum áður vel liðtækur söngvari. Af bloggi hans að ráða er mjög erfitt að sjá hvaða ástæðu hann telur sig hafa upp á dekk stjórnmálanna. Fyrstu viðbrögð þeirra sem eru hægrisinnaðir ESB sinnar eru: ,,Nei, ekki hann". Þá kemur stóra bomban. Sigurjón Egilsson frá Sprengisandi, kynnir til leiks sam-Baugspenna sinn Þorstein Pálsson. Þorsteinn lýsir því hversu mikil þörf er á nýjum flokki til þess að koma stjórnun landsins til Brussel. Hann sé hins vegar ekki á leiðinni aftur í pólitík, en það var falskur tónn í röddinni, sem sagði, ,,nema að fjöldi manns skori á mig".
Það gefst nánast alltaf ílla að draga upp drauga úr fortíðinni til þess að leysa vanda nútímans. Það er tímaskekkja. Þorsteinn ætti að halda sig við skriftir, en hann er ennþá vel ritfær. Draugar eru þeir kallaðir sem ganga aftur. Þeir eru alltaf til óþurftar.
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
- raggig
- jonatlikristjansson
- egill
- hilmir
- logos
- ottarfelix
- don
- omarragnarsson
- vidhorf
- svanurmd
- vefritid
- marinogn
- muggi69
- gummiarnar
- saemi7
- morgunbladid
- prakkarinn
- ea
- zeriaph
- dullur
- vinaminni
- jonarni
- sparki
- gesturgudjonsson
- salvor
- jenni-1001
- neytendatalsmadur
- steinig
- gbo
- hugsun
- palmig
- gisliblondal
- gattin
- ollana
- gudni-is
- gudbjorng
- ludvikjuliusson
- gudrunkatrin
- tilveran-i-esb
- himmalingur
- askja
- siggiingi
- hildurhelgas
- robbitomm
- rannveigh
- hoerdur
- hallibjarna
- hvirfilbylur
- baldher
- thorsteinnhelgi
- addabogga
- vistarband
- tbs
- rafng
- draumur
- zumann
- bjarnimax
- bookiceland
- jonvalurjensson
- seinars
- heringi
- kristjan9
- kolbrunerin
- jhb
- halldorjonsson
- kuriguri
- diva73
- westurfari
- hordurt
- disagud
- h2o
- heidarbaer
- kuldaboli
- nr123minskodun
- kij
- kristinn-karl
- hafthorb
- stjornlagathing
- armannkr
- vgblogg
- siggus10
Athugasemdir
Ég hef allta séð Þorstein sem ósprúngna skítabombu sem einhverntímann segði Púff.
Að láta Jón Ásgeir nota sig eins og vpðvaningsfífl sem ritstjóra Fréttanblaðsinns var meiri aumingjaskapur en ég átti nokkurn tíman von á. Hvílík vesöld og minnkun.
Held að hann ætti ásamt Gunnarsdóttur að játa sig í Samgrautinn. Hittir þar Ellert sem getur vísað þeim veginn. Hann hætti í Sálfstæðisflokknum af því hann fékk ekki herbergi sem honum líkaði.
Jólakveðjur Kári.
K.H.S., 26.12.2010 kl. 21:04
Kannski verður skorað á hann eins og Jóhönnu forðum.
Þá var boðuð blysför að heimili hennar til að hvetja hana til að setjast í forsvar "byltingastjórnarinnar".
Aðein einn mætti. Sá sem blés til fararinnar í fjölmiðlum. Það var nóg fyrir Jóhönnu. Hún gat ekki brugðist svo afgerandi áskorun.
Jón Steinar Ragnarsson, 27.12.2010 kl. 00:15
Það er löngu tímabært að Þorsteinn geri upp við kolsvarta fortíð sína í sjávarútvegsráðuneytinu. Hann gekk hart fram í að framfylgja arfa vitlausri stefnu Hafró og koma á framseljanlegu kvótakerfi sem hefur svo sannarlega brotlent.
Sigurjón Þórðarson, 27.12.2010 kl. 00:56
Góður pistill Siggi. Það kvað aldrei neitt að Þorsteini.Er þetta brella dulbúin hækja Samfó,svo þau hreppi fyrirheitna landið? Langar að fræðast meira um Sammála.is og ósammála.is. Gaman væri að hitta þig hjá Gumma á Nýbýlaveginum. Þú hefur aldrei skilið við áheyrendur þína óupplýsta,ég bind vonir við það. Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 27.12.2010 kl. 02:10
Helga við fáum okkur kaffibolla fjótlega hjá Guðmundi, hef samband.
Sigurjón þeir sem vilja Þorstein aftur á þing eru á villigötum. Það kemur tími á alla menn. Það var hins vegar óþarfi þegar þú ákvaðst að fara af þingi, kæmi mér ekki á óvart að þú kæmist inn í næstu kosningum. Þú þekkir hins vegar þann vanda, sem fylgir því að menn þekkja ekki sinn vitjunartíma. Það skaðar, menn, flokka og þjóð.
Jón Steinar að virðist þurfa afskaplega litla hvatningu fyrir suma, til þess að fara á stað.
Kári, Þorsteinn er mjög umdeildur. Þær umræður færu á stað aftur ef hann færi fram. Sumar af hans fyrri ákvörðunum standast ekki tímans tönn.
Sigurður Þorsteinsson, 27.12.2010 kl. 17:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.