30.3.2013 | 09:30
Íslenskur ráðherra rassskelltur í beinni útsendingu.
Sá fáheyrði atburður átti sér stað á Alþingi s.l. fimmtudagsnótt að Steingrímur Sigfússon kom upp í pontu, girti niður um sig svo Atli Gíslason gæti veitt ráðherranum tilhlýðilega hirtingu. Áður hafði Atli farið yfir baráttumál VG og hvernig þau hafa verið saurguð í valdatíð Steingríms.
Framganga Steingríms minnti á þegar hundur er skammaður ærlega og kom fyrrum versti rassskellur upp í hugann þegar Ólafur Ragnar Grímsson tók Jóhann Hauksson á hné sér á Bessastöðum. Jóhann var í framhaldinu ráðinn fjölmiðlafífl ríkistjórnarinnar.
Berum þessar tvær uppákomur saman. Gaman væri að lesendur tjáðu sig hvor uppákoman er aumkunarverðari.
og svo á Bessastöðum.
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
- raggig
- jonatlikristjansson
- egill
- hilmir
- logos
- ottarfelix
- don
- omarragnarsson
- vidhorf
- svanurmd
- vefritid
- marinogn
- muggi69
- gummiarnar
- saemi7
- morgunbladid
- prakkarinn
- ea
- zeriaph
- dullur
- vinaminni
- jonarni
- sparki
- gesturgudjonsson
- salvor
- jenni-1001
- neytendatalsmadur
- steinig
- gbo
- hugsun
- palmig
- gisliblondal
- gattin
- ollana
- gudni-is
- gudbjorng
- ludvikjuliusson
- gudrunkatrin
- tilveran-i-esb
- himmalingur
- askja
- siggiingi
- hildurhelgas
- robbitomm
- rannveigh
- hoerdur
- hallibjarna
- hvirfilbylur
- baldher
- thorsteinnhelgi
- addabogga
- vistarband
- tbs
- rafng
- draumur
- zumann
- bjarnimax
- bookiceland
- jonvalurjensson
- seinars
- heringi
- kristjan9
- kolbrunerin
- jhb
- halldorjonsson
- kuriguri
- diva73
- westurfari
- hordurt
- disagud
- h2o
- heidarbaer
- kuldaboli
- nr123minskodun
- kij
- kristinn-karl
- hafthorb
- stjornlagathing
- armannkr
- vgblogg
- siggus10
Athugasemdir
Hélt ekki að það væri hægt að toppa aulaskapinn í Jóhanni Haukssyni á Bessastöðum, en Ólafur rassskellti þá bæði Jóhann og Svinkustrákinn, (Heitir hann ekki Ómar Valdimarsson) í sama högginu.
... en það er vart hægt að toppa skellinn hjá Atla Gíslasyni. Afleiðingin leiddi til nafnabreytingar ráðherraskoffínið heitir nú Steingrímur Pathetic Sigfússon. Sá skellur fær mitt atkvæði.
Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 30.3.2013 kl. 11:13
Já það er sannarlega fjör í pólitíkinni. Sammála ykkur að það er varla hægt að fara neðar í siðferði og málefnum en þessir tveir herramenn Steingrímur og Jóhann.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2013 kl. 14:35
Frábær minningarbrot og eftirmæli allra þessara viðkomandi einstaklinga. Sessunautur og/eða vopnabróðir Jóhanns Haukssonar í síðara "sketchinu" er enginn annar en "krossfarinn" Umbi Roy (Ómar Valdimarsson)sem á víst undir högg að sækja þessa dagana, en stendur líklega keikur á sömu skoðun og ónefndur bjálfi hér á blogginu, að allar sakargiftir og þ.a.l. dómar í Guðmundar málinu standist alla gagnrýni eða skoðunn, nema ef því aðeins ef Guðmundur finnist eða hreinlega gefi sig fram.
Jónatan Karlsson, 30.3.2013 kl. 14:47
Frábært Sigurður að minna á þessa uppákomu á Bessastöðum.
Jón Baldur Lorange, 30.3.2013 kl. 21:34
Jón, mér finnst ekki síðra að sjá hvernig Atli hirtir Steingrím. Hafði álit á Steingrími hér áður en hann fór í stjórn, en hef lengi litið á Jóhann og Ómar Valdimarsson sem aula. Nú veit ég þeir eru eins og Gísli, Eiríkur og Helgi.
Sigurður Þorsteinsson, 31.3.2013 kl. 10:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.