Viðreisn kemur út úr þögninni

Það þótti mörgum áhugavert að sjá hvernig Samfylkingin jók fylgi sitt framan af ári. Hæst mældist Samfylkingin með yfir 30% fylgi. Flokkforystan sagði sem minnst, á meðan ríkisstjórnarflokkarnir voru ósammála um mörg mál Flokksformaðurinn sagði baraa sem minnst. Hún hafði hins vegar byrjað að grisja í flokknum. Fyrst flaug Helga Vala út af þingi, og síðan lak aftökulistinn út. Þrátt fyrir pirring, gátu almennir flokksmenn ekki kvarað svona fylgi hafði ekki sést áður. Nokkrar grunnlínur voru þó lagðar. ESB aðild var ekki eitt af aðalmálunum. Svo kom að því að koma með punkta um Efnahagsmálin, og þá var ljóst að árangur og stefnan í borgarmálunum gat ekki farið með stefnu Kristrúnar Frostadóttur um árangur í Landsmálunum. Það mátti öllum vera ljóst að Dagur B. Eggertsson var ekkert velkominn um borð í landsmálin. Uppstillingarnefnd virti vilja Kristrúnar að vettugi og sprengjan hlaut springa. Fram að þessum tíma var Samfylkingin í forystu og Kristrún líklegasta forsætisráðherraefnið. Þá kemur næsta sprengja Þórður Snær Júlíusson mætir í Spursmál hjá Stefáni Einari Stefánssyni. Þetta var það síðasta sem Kristrún Frostadóttir og Samfylkingin mátti við. 

Það er að gerast fleiri hlutir. Verkalýðshreyfingin er að gera sér grein fyrir að þéttingarstefnan í Reykjavík og Borgarlínan er að koma í veg fyrir að ungt fólk geti eignast eigið húsnæði. Hjá meirihlutanum í Reykjavík hefur komið æ sterkar fram að slík stefna sé algjört óþarfi. Það sé alls ekki stefna alls staðar í Evrópu. Á Íslandi hefur þetta verið lykilstefna, og meira að segja Stefán Ólafsson hefur komið með þá kröfu að aðilar í Eflingu geti eignast sitt eigið húsnæði 

Við þessar aðstæður fer Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir með Viðreisn fram úr Kristrúnu og Samfylginni. Þorgerður orðin forsætisráðherrafenið. Ekki endilega mikið fagnaðarefni á öllum stöðum.

Við þessi tímamót ákveður Þorgerður Katrín að koma fram með stefnu Viðreisnar. Forystusauðurinn verður jú að vita hvert á að stefna. 

Fyrsta málið er að lækka verðbólgu og vexti. Þetta er erfitt mál Fyrir Þorgerði Katrínu. Hún er guðmóðir Meirihlutans í Reykjavík og þéttingarstefna Reykjavíkurborgar er ein aðal ástæðan fyrir hárri verðbólgu og vöxtum. Þetta er jafn slæmt áhersluatriði og íbúðaál ungs fólks. Þorgerður Katrín gagnrýnir skuldastöðu ríkisins á sama tíma og skuldastaða Reykjavíkurborgar eru í hæstu hæðum 

Áður en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tekur við sem forsætisráðherra verður hún að útskýra fyrir okkur kjósendum hvernig henni tókst að greiða ásamt eiginmanni sínum rúm 1700 milljónir . Á Wikipedia segir: Í 2. bindi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall íslenska bankakerfisins, er fjallað um þá stjórnmálamenn og maka þeirra sem höfðu heildarlánastöðu sem var hærri en 100 milljónir króna. Nafn Þorgerðar Katrínar og eiginmanns hennar er þar ofarlega á blaði en heildarlán hennar og eiginmanns hennar námu nærri 1700 milljónum króna. Þorgerður Katrín sagði af sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins og tók sér tímabundið hlé frá þingstörfum þann 17. apríl 2010.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þetta minnir mig á mjög á það þegar Samfylkingin og VG mynduðu fyrstu hreinu vinstristjórnina eftir Hrunið 2009. Þorgerður Katrín hefur setið lengst allra á þingi. Það hafði Jóhanna Sigurðardóttir einnig gert, ef ég man rétt, þegar hún vann sinn glæsta sigur og varð forsætisráðherra (forsætisráðfrú væri rétt mál).

"Minn tími mun koma", sagði Jóhanna, það gekk eftir, en hún gat ekki staðið við helminginn af því sem hún lofaði eða Steingrímur. Raunar urðu öryrkjar fyrir mestu kjaraskerðingunni í Jóhönnustjórninni, sem enn hefur ekki verið bætt, en sú svik við þá verst settu voru sérlega ömurleg í ljósi þess að vinstriflokkarnir gefa sig út fyrir að þetta sé þeirra tilveruréttur, að hjálpa þeim fátæku. Ekki var það í reynd í Jóhönnustjórninni þó. Ekki heldur þegar kommarnir stjórnuðu Sovétríkjunum í denn!!!

Nú ætlar Þorgerður Katrín að hætta með stæl, hennar tími er kominn og hún verður næsti forsætisráðherra, sennilega.

En sama sagan endurtekur sig. Fólkið kaupir köttinn í sekknum. Að fara inní ESB er eins og hver önnur sýndarmennska. Þar er líka fátækt og eymd og volæði, bjargar ekki spillingu eða óstjórn okkar.

Og sennilega verður ekki farið inní ESB, heldur mun Þorgerður Katrín nota það sem afsökun fyrir öllu sem illa gengur..."Ef við hefðum bara farið inní ESB, ef hinir hefðu bara samþykkt það"... þannig verður söngurinn hjá henni kannski.

Við Íslendingar lifum í blekkingu og tálsýnum. ESB draumurinn er næsta tálsýnin, sem núna er vinsæl, því Katrínustjórnin hjálpaði ekki alþýðunni nóg.

Ingólfur Sigurðsson, 26.11.2024 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband