Að setja þjóðarhag ofar flokkshollustu.

Í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar kom fram krafa um  aukið lýðræði og minna  flokksræði. Að rökræðan tæki við af kappræðunni og að aukin áhersla yrði lögð á þjóðaratkvæðagreiðslu um mál. Þessu síðastnefnda hefur reyndar verið stungið undir stól, loforð týnt og tröllum gefið. Hins vegar hafa ákveðnir þingmenn sýnt viðleitni til þess  að taka upp rökræðu um mál, og taka sjálfstæða afstöðu með því sem þeir telja gagnast best þjóðarhag. Hjá Sjálfstæðisflokknum greiddi Ragnheiður Ríkharðsdóttir atkvæði með umsókn í ESB, og Þorgerður  Katrín Gunnarsdóttir sat hjá. Sjálfsagt ekki auðvelt fyrir þær stöllur, en virðingarvert að þær fari eftir sannfæringu sinni. Hjá VG vöktu þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason,Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,  Ásmundur Einar Daðason og Ögmundur Jónasson athygli varðandi afstöðu sína til Icesave og nokkur einnig til ESB.

Þessi framganga fær mann til þess að trúa því að styrkur Alþingis vaxi að nýju. Að framkvæmdavaldið fái ekki að rúlla yfir löggjafarvaldið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Framganga þeirra var lofsverð.

 Eg var að skoða linkinn þinn og hlustaði á alla umræðuna. Hvað voru þessir æsseifmenn að hugsa?

Sigurður Þórðarson, 4.9.2009 kl. 08:44

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Framganga þessara VG-þingmanna var lofsverð þar til kom að atkvæðagreiðslu um ESB og Icesave, sama má segja um Sjálfstæðisflokkinn í Icesave-málinu fyrir utan tvo þingmenn hans, framganga þeirra tveggja var lofsverð alla leið, en hinir í þingflokki Sjálfstæðismanna féllu á prófinu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 4.9.2009 kl. 13:27

3 identicon

Ég... ætla að taka undir þessa færslu...Sigurður..

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband