25.8.2012 | 16:44
Hæ, hó á Hólum!
![]() |
Áfram samstarf vinstrimanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2012 | 22:46
Snilld eða lákúra
Ungt fólk sleppir fram af sér beislinu, hvort sem það er af konungafólki eða sauðsvartum almúganum. Fer án klæða í sund, eða pott. Mbl.is setur niður þegar það ákveður aðsetja slíkar féttir á forsíðu. Passar DV ekki Mbl.is. Ef unga sumarleyfisfólkið á fjölmiðlinum heldur að þetta sé það sem við viljum fer það villu vegar.
Á sama tíma eru snillingarnir í Uriah Heep að snillast með Eiríki Haukssyni. Miklu áhugaverðara efni.
![]() |
Fer saman að vera partíljón og prins? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.8.2012 | 18:00
Í herferð gegn atvinnuuppbyggingu
Eitt af því sem vakið hefur athygli eftir hrun, er hvað allar nýjar fjárfestingar eiga erfitt uppdráttar. Í gær bloggar Stefán Ólafsson einn helsti talsmaður ríkisstjórnarinnar um fjárfesta:
,,Fjárfestar eru vandamálið – ekki lausnin"
Stefán sem segist vera óflokksbundinn og óháður öllum samtökum, hefur farið hamförum á bloggi sínu undanfarnar vikur, og er sterklega orðaður við formannsstólinn í Samfylkingunni. Prófessorinn virðist vera með stjórnmálaskoðanir vinstra megin við Jóhönnu Sigurðardóttur og VG, en smellpassar við fjármálaráðgjafa ríkisstjórnarinnar þá Indriða Þorláksson og Svavar Gestsson, eða Austur Þýska menntagengið svokalllaða. Það er hreint út sagt ótrúlegt að svona skrif geti birst árið 2012.
Bloggar | Breytt 21.8.2012 kl. 08:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2012 | 14:09
Guðmundur Rúnar til Malaví, Ingibjörg Sólrún til Kabúl og .....
![]() |
Guðmundur Rúnar til Malaví |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.8.2012 | 23:08
Arfaslakur leikur!
Það var ekki burðug frammistaða sem íslenska landsliðið í knattspyrnu bauð upp á í kvöld. Í raun og veru hefðu Færeyingar átt möguleika bæði að jafna og að vinna. Miðað við þá leikmenn sem í hópnum var þetta afarslök frammistaða. Hreyfingin í liðinu var lítil, aðstoðin afar slök, kjarkurinn og karakerinn víðsfjærri.
Leikhraðinn í liðinu var ekki mikið meiri en hjá Færeyjarliðinu, og hefði sómt sér vel í 3 deildinni í Svíþjóð. Lars Lagerbäck ætti að mæta á næsta leik í búningi Línu Langsokks, því ef hann getur ekki stýrt liðinu til þess að spila almenningslegan fótbolta, gæti hann skemmt áhorfendum með fíflalátum eftir leik eða í hálfleik.
Auðvitað voru ljósir punktar í leiknum. Kolbeinn Sigþórsson var góður að vanda og Gunnleifur stóð sig vel, svo og Eiður Smári og Grétar Rafn Steinsson stóðu sig þær örfáu mínútur sem þeir spiluðu. Ég hefði viljað sjá Alfreð Finnbogason fá að spreyta sig, svo og Guðjón Árna Antoníusson sem ekki var í hópnum, en hann hefði sýnt okkur hvaða þýðingu það er að hafa karaktera í liðinu.
Styrlkeiki liðs er oft metin á því hvernig því tekst að nýta sér styrleikamuninn. Ef mismunur liða er þrjú mörk, þarf að ná þeirri niðurstöðu. 1-0 er í raun ósigur. Við erum með stróran hóp úr 21 árs liðinu sem fór í úrslit Evrópukeppninnar og þrátt fyrir að Færeyjingar hafi veri með afar vel spilandi lið, ætti að vera eins klassa mismunur á þessum liðu. Þegar íslenska liðið fór að dala strax í byrjun seinni hálfleiks, þá átti að skipta strax út. Það var í hönum þjálfaranna og niðurstaðan því á þeirra ábyrgð..
Árangur landsliðslins á móti Svíum og Frökkum var mjög athyglisverður, þrátt fyri naumt tap. Allir aðilar þurfa að bæta vel í ef ætlunin er að færa Ísland upp um styrkleikahóp.
Færeyingar eiga hrós skilið fyrir góðan leik og áttu meiri uppskeru skilið.
![]() |
Kolbeinn skoraði tvö í fyrsta sigri Lagerbäcks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 16.8.2012 kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2012 | 23:42
Er komið að leiðarlokum?
Í upphafi þessa stjórnarsamstarfs var greiningin sú að ESB myndi rústa annað hvort VG eða Samfylkingunni. Áður hafði engir kærleikar ríkt á milli þessarra flokka, og þegar Geir Haarde lagði til að VG yrði tekið inn í ríkisstjórnina var það Samfylkingin sem hafnaði. Það skyldi aldrei verða. Flokkarnir tveir kepptu um forystuna á vinstri vængnum.
Nú þegar líða tekur á kosningar, kemur fram að verði VG sem myndi gjalda ESB vegferðarinnar. Skoðanakannanir benda til fylgishruns VG. Þar sem öllum má vera ljóst að aðildarumsóknin verður ekki afgreidd fyrir kosningar, mun ESB verða eitt af aðalkosningamálunum. Samfylkingin mun verðja á þau 30% sem vilja í ESB, en VG hefur enga stöðu. Í málinu hefur flokkurinn misst trúverðugleika. Nokkrir þingmenn VG átta sig á því að þeir eru að fara af þingi og þeir sem eftir sitja, munu vera í örflokki, sem alltaf eiga erfitt uppdráttar. VG verður í besta falli eins og varta á Samfylkingunni, nokkuð sem kjarni flokksins hefur engan áhuga á.
Útspil síðustu daga var yfirlýsing ráðherrarnir Katrín Júlíusdóttir og Svandís Svavarsdóttir að nú sé tímabært til þess að endurskoða aðildarumsóknin. Tímasetningin er engin tilviljun. Steingrímur Sigfússon er erlendis, þar sem fjölmiðlar ná honum ekki. Ráðherrarnir tveir þær Katrín og Svanhvít eru í þungavikt í íslenskri pólitík. Ólíkar en gera báðar tilkall sem arftakar Steingríms í formanninn.
Auðvitað kemur útspilið fram með fullri vitund Seingríms. Á sama tíma fara fram á völlinn, hans langsterkustu fulltrúar. Ef Steingrímur stæði frammi fyrir því að, standa með þeim Katrínu og Svandísi eða að standa með Jóhönnu væri valið auðvelt. Málið er þegar afgreitt og ef þingmenn flokksins leggja ekki strax til fram tillögu á Alþingi um að fresta aðildarviðræðum eða hætta þeim, mun stjórnarandstaðan gera það. VG hefur engan áhuga á að afhenda stjórnarandstöðunni frumkvæðið í málinu.
Því er líklegt að næstu Alþingiskosningar verði í október eða í byrjun nóvember. Með því fer Samfylkingin löskuð til kosninga og með formann sem er búin að tapa tiltrú þjóðarinnar og líka mjög margra sem áður studdu Samfylkinguna. Alþýðuflokksarmurinn og kvennalistaarmurinn hafa engan málsvara. VG mun því ná að reita fylgi af Samfylkingunni og henda aðildarumsókninni út af borðinu. Forysta VG er búin að átta sig á því að þetta snýst ekki um báða flokkana. Það verður annar þeirra sem bíður afhroð, og VG sættir sig frekar við þá niðurstöðu að það verði hlutverk Samfylkingarinnar.
![]() |
„Þetta rífur allt samfélagið á hol“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 15.8.2012 kl. 06:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.8.2012 | 17:51
Eru vinstri menn skilnríksríkastir fyrir atvinnureksturinn?
Því hefur löngum verið haldið fram að það þurfi vinstri sinnaða miðjustjórn, til þess að skapa atvinnureksrinum hvað bestan jarðveg. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn er í stjórn eru ráðherrar hans oft uppteknir af einhverju allt öðru en að bæta atvinnuumhverfið. Þannig er Finnur Ingólfsson oft talinn einn besti iðnaðarráðherrann. Nú fá þau Össur Skarphéðinsson og þó sérstakelaga Katrín Júlíusdóttir frekar góða einkunn sem iðnaðrráðherrar. Aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni hafa hins vegar flestir lagt stein í götu allra framfara og því hefur ekkert gengið.
Núverandi fjármálaráðherra Oddný G. Harðardóttir er eins og dregin upp úr vasa þeirra Svavars Gestssonar og Indriða Þorlákssonar. Þeim mun hærri skattar, þeim mun betri árangur. Líftími hennar í stöðu ráðherra verður stuttur, og mun aldrei eiga afturkvæmt í slíka aðstöðu aftur.
Harlínu vinstri stjórn hafa engan skilning, hvorki á atvinnurekstri eða nokkur öðru. Það stefnir í að tímar þeirra séu taldir, því fyrr því betra fyrir þjóðina.
![]() |
Trúir ekki að þingmenn samþykki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.7.2012 | 11:47
Mega fréttamenn ekki hafa skoðun?
Frammistaða fjölmiða vakti sérstaka athygli. Ómar Ragnarsson fréttamaður skrifaði eitt sinn.
,,Um fréttamenn gilda miklu harðari reglur og höft á málfrelsi í og utan vinnu en í grunnskólunum. Þær miða að því að fólk geti treyst óhlutdrægni fréttastofanna og starfsmanna þeirra".
Þessar reglur fréttamanna viðst hafa verið teknar úr gildi í undirbúningi kosningabaráttunnar. Sumir starfsmenn RÚV, voru eins og klappstýrur eins frambjóðandans. Það er full ástæða til þess að taka rekstur RÚV og stefnumótun til sérstaklegar skoðunar.
![]() |
Afgerandi sigur forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.7.2012 | 15:41
Óvenjulegar forsetakosningar.
Forsetakosningarnar nú verða að teljast mjög óvenjulegar. Um áramótin mátti skilja á Ólafi Ragnari Grímssyni að hann ætlaði að hætta, sem var fyllilega eðlilegt í ljósi þess að hann hafði setið í 16 ár í embætti. Ef ekki hefði komið til að forystumenn ríkisstjórnarinnar höfðu verið í stríði við forsetann eftir Icesave og þeirri baráttu var einfaldlega ekki lokið. Dropinn sem fyllti mælinn var þegar Jóhanna skipaði forsetanum að setja sér siðareglur. Jafn gáfulegt hefði verið af Ólafi að óska eftir því við forsætisráðherrann að hún útskýrði fyrir þjóðinni hvernig liði uppbyggingu skjaldborgar fyrir heimilin.
Ef ekki verið til staðar þessi togstreita milli forsetans og óhemju óvninsællar ríkisstjórnar, hefði framboð Ólafs aldrei verið möguleiki.
Það var dálítið hjákátlegt þegar söfnun áskrifta fór á stað fyrir Ólaf, og undirtektir voru tvíbendar. Útspil ríkisstjórnarflokkana var að koma fram með Þóru Arnórsdóttur glæsilgarar fjölmiðlakonu. Í startinu voru mestu mistökin falin. RÚV og Stöð 2 gleymdu hlutleysi sínu, og þar með gaf það kosningabaráttu Ólafs tækifæri. Þóra var komin með yfirburðarstöðu. Það gerði Ólafur með gagnsókn, eða counterattack, og Þóra náði aldri vopnum sínum að nýju.
Auðvitað voru margir sem töldu engan frambjóðanda þann rétta, auðvitað hafði veðrið áhrif og enn aðrir eru orðinir fullsaddir á þessu reypitogi. Barátta milli lýðræðis og þöggunar.
Taparar þessarar kosningabaráttu eru fjölmiðlarnir. Aldrei hafa jafn margir fjölmiðamenn berað sig sem óhæfa sem í þessum kosningum. Gátu ekki dulið eigin skoðanir. Hugsið ykkur ef hjúkrunarfólk, læknar, prestar, kennarar verði að tjá viðskiptavinum sínum, eða skjóstæðingum flokkspólitíkska skoðun sína.
Meira að segja í lokin,þegar kosningabaráttunni var lokið og úrslitin lágu fyrir missti einn fréttamaður RÚV, Ægir Þór Eysteinsson sig og fullyrti að þau 30% sem ekki mættu lýstu með því frati í frambjóðendurna og Ólaf þar með talinn. Svar Ólafs minnti á þegar hann rassskellti Jóhann Hauksson í beinni útsendingu á Bessastöðum.
Þegar íþróttamaður brýtur af sér í leik, fær hann dóm og jafnvel áminningu. Þegar hann brýtur af sér eftir leik, er hann settur í langt keppnisbann. Það er einmitt sem ætti að gera við þennan auma fréttamann.
Forsetakosningarnar kalla á endurkoðun á fjölmiðlalögum.
![]() |
Vantraust á stjórnmálaforystuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.6.2012 | 09:15
Kreppulok og forsetakosningar.
Í vikunni var keppunni lokið hjá Gylfa Zoega lífskörin voru komin eins og þau voru 2005. Hann er sjálfur prófessor og svo fær hann 270 þúsund á mánuði fyrir að sitja í peningamálanefnd Seðlabankans. Það er ekki víst að skuldug heimili og fyrirtæki kaupi þetta stöðumat Gylfa. Það læðist að manni sá grunur að mat Gylfa hafi orðið fyrir áhrifum úr póltíkinni.
Gylfi Arnbjörnsson bendir á að hagvöxtur nú byggi á einkaneyslu, en ekki fjárfestingum í atvinnulífinu og þess vegna bera að taka hagvaxtartima nú með miklum vara.
Svo kemur Ragnar Árnason og segir að ef við séum í holu, og við byrjum að fikra okkur upp úr henni, séum við enn í holunni miðað við 2008. Aftur grunar mann að hér hafi mat fræðimannsins orðið fyrir pólitískum áhrifum, en bara öðrum en þeim sem Gylfi Zoega varð fyrir. Varla getur 2008 verið gott viðmið hvort við séum í kreppu eða ekki.
Til þess að komast úr kreppunni þarf að taka á skuldavandnaum, og það hefur einfaldlega ekki verið gert. Hvort það verði þessi eða næsta ríkisstjórn sem ætlar að taka á því máli verður að koma í ljós.
Svo eru það forsetakosningarnar.
Þeir sem eru að tala um spennu í dag eru í svipaðri stöðu og þulir sem tala um spennu í knattspyrnuleik þegar staðan er 5-0 í hálfleik. Auðvitað er erfitt að halda úti skemmtilegri útsendingu í slíkum leik. Leikurinn er auðvitað búinn.
Þá kemur innlegg frá Davíð Þór Jónsson, fræðslufulltrúa Austurlandsprófastsdæmis svona í lok leiks, þar sem hann skrifar blogg um:,, Að kjósa lygara og rógtungu" til stuðnings Þóru Arnórsdóttur sem hefur lagt áherslu á nýja tíma, og að við eigum að ganga götuna saman í sátt. Vonandi leggur Þóra sínar leiðbeiningar og framlag í þeirri sáttarvinnu, en hvetur vopnaða friðarsinna til að slíðra sverðin. Hatrið er ekki gott nesti í komandi göngu.
![]() |
Kreppunni ekki lokið þrátt fyrir hagvöxt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10