25.3.2011 | 23:18
Verður stækkunin færð suður?
Það er einhver undirtónn í þessari mengunarumræðu fyrir norðan. Becromal hefur komið inn með um 100 störf á Akureyri og allt í einu, er fyrirtækið orðið ,,vont fyrirtæki" sem ræðst á umhverfið. Verkfallsboðin er í loftinu. Ég heyri ekki betur en stjórnendur fyrirtækisins séu fullir af vilja til þess að bæta úr því sem þarf að bæta úr, en maður hefur á tilfinningunni að málið snúist ekki um það.
Lengi hefur það orðspor farið af atvinnumarkaðinum á Akureyri að utanaðkomandi séu ekki velkomnir. Bónus var ekki velkomið og Helgi í Góu hefur gert ítrekaðar tilraunir með að koma með veitingarhús norður en ekki tekist.
Er verið að segja við þá Becromalmenn að stækkun á verksmiðjunni eigi að fara annað. Á Húsavík, eða jafnvel suður?
Það er full ástæða að taka á mengunarmálum og sjá til þess að þau séu innan allra marka. Viðbrögð norðanmanna virðast vera rekin af einhverjum allt öðrum hvötum. Spurningin er hvort það sé heimamönnum til góðs.
![]() |
Ekki þrávirk efni í menguninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.3.2011 | 21:28
Pólitíkus biðst afsökunar!
Þau undur og stórmerki gerðust á síðasta bæjarstjórnarfundi í Kópavogi að einn bæjarfulltrúi Guðný Dóra Gestdóttir, baðst afsökunar á fyrirspurn sinni til Gunnars Birgissonar um ferðir hans erlendis bæði á vegum Kópavogsbæjar og eins þáðar boðsferðir. Mörgum þótti þessi fyrirspurn illkvittin, en öðrum þótti hún sanngjörn og réttmæt. Tími væri kominn til þess að upplýsa sukkið. Í svari Gunnars kom fram að hann hafi farið í þrjár utanlandsferðir á vegum Kópavogsbæjar og ekki þegið dagpeninga í þeim, þá hafi hann ekki þegið neinar boðsferðir á vegum annarra aðila. Talsvert upphlaup varð í bæjarstjórnarmeirihlutanum vegna svars Gunnars og Hjálmar Hjálmarsson tók að sér að spyrja Gunnar hvar hann hafi verið á tilteknum degi og tíma. Einmitt þá hafði staðið yfir leikur West Ham í London, en boðsbréf til Gunnars, hafði fundist eftir mikla leit í skjalageymslum Kópavogsbæjar. Svarið kallaði á enn meiri gremju því Gunnar gat upplýst að hann hafi verið í boðsferð þá á vegum bæjarins með þremur öðrum bæjarfulltrúum í Kína, þar á meðal Hafsteini Karlssyni frá samfylkingunni.
Guðný Dóra Gestdóttir stóð upp á síðasta fundi og baðst afsökunar á fyrirspurn sinni og sagði ástæðu fyrirspurnarinnar vera ósannar sögur. Viðstaddir sögðu Guðríði Arnardóttur hafa verðir með óvenju rjóðar kynnar í framhaldinu. Nef Guðríðar sem á til að lengjast ótæpilega oft á tíðum, skapp nú saman eins og tippi gera stundum í frosthörkum. Guðný Dóra sem var ómaklega sagt upp störfum á sínum tíma hjá Mosfellsbæ, af pólitískum ástæðum, hefur áunnið sér virðingu fyrst sem málefnalegur formaður skipulagsnefndar hjá Kópavogsbæ og nú að biðjast afsökunar á mistökum opinberlega. Hún sýnir manndóm, sem menn virða óháð stjórnmálaskoðunum.
Bloggar | Breytt 25.3.2011 kl. 04:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.3.2011 | 11:54
Um lögfræðikostnað bæjarstjórnarmanna í Kópavogi
Talsverðar deilur hafa verið í Bæjarstjórn Kópavogs um lögfræðikostnað þriggja bæjarfulltrúa, sem þeir vilja að Kópavogsbær taki á sig. Fyrir þá sem ekki hafa sett sig inn í málið þá hélt samfylkingin í Kópavogi upp mjög harðri gagnrýni á Gunnar I Birgisson í hans valdatíð hans sem bæjarstjóra. Undir lok bæjarstjórnartíðar Gunnars gagnrýndi Ólafur Þór Gunnarsson bæjarfulltrúi VG og Guðríður Arnardóttir og Hafsteinn Karlsson fyrir samfylkinguna Gunnar m.a. í blaðagrein þar sem því var haldið fram að Frjáls miðlun fyrirtæki dóttur Gunnars og eiginmanns hennar, hefðu:
1. Fengið borgað fyrir verk sem þau hefðu ekki unnið, og..
2. Tekið að sér gerð á viðurkenningarskjölum, á óheyrilegum töxtum.
Í þessari gagnrýni er ekki aðeins verið að gagnrýna Gunnar Birgisson heldur einnig verið að draga fyrirtæki dóttur Gunnars inn í umræðuna. Í pólitíkinni er ákveðið frelsi til að fara rangt með milli pólitíkusa, en þegar fyrirtæki eða einstaklingar út í bæ eru tekin inn í umræðuna, verður að halda innan ramma laganna.
Í ljós hefur komið að það verk sem fyrirtækið Frjáls miðlun hafi ekki átt að hafa skilað af sér, var unnið. Fyrirtækið skilaði þeim verkþáttum af sér sem um var samið.
Í hinu dæminu fór fram útboð, ári eftir á, vegna gerðar viðurkenningaskjalanna og var Frjáls miðlun með langlægsta tilboðið, og á sambærilegu verði og áður hafði verið gert.
Fyrir flesta sem þekkja til viðskiptalögfræði hafa bæjarfulltrúarnir með þessari framgöngu brotið alvarlega á Frjálsri miðlun. Héraðsdómur Reykjaness tók ekki efnislega þessa tvo þætti til meðferðar. Málinu hefur því verið vísað til Hæstaréttar.
Málskostnaður sem þrímenningarnir fengu dæmda í Héraðsdómi dugði ekki fyrir lögfræðikostnaði þeirra. Því fannst bæjarfulltrúunum þremur tilvalið að fá þann kostnað vegna einkamáls þeirra, greiddan úr Bæjarsjóði Kópavogs. Lögfræðideild Háskóla Íslands benti á í sínu álíti að það gæti verið fordæmisgefandi fyrir önnur dómsmál einkaaðila í Kópavogi. Það sýnir mikið dómgreindarleysi bæjarfulltrúana þriggja að fara fram á þessa fyrirgreiðslu hjá Kópavogsbæ. Tapi þau málinu fyrir Hæstarétti, sem verður að teljast líklegt, þurfa þau að greiða allan lögfræðikostnað sinn og Frjálsrar miðlunar. Auk þess að ná þeim vafasama árangri að verða fyrstu sveitarstjórnarmenn, sem dæmdir eru fyrir rógburð, að því að ég best veit.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2011 | 23:27
Undir fiskhausafylgið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2011 | 09:43
Forseti hafði tillögu um þjóðstjórn að engu!
Á þeim tíma sem minnihlutastjórn Samfylkingar og VG var sett á laggirnar, var möguleiki að koma á þjóðstjórn. Nú þegar frá líður má öllum vera ljóst að ákvörðun Forseta Íslands var afglöp. Við skulum skoða hvað AMX skrifaði um málið.
Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að forseti Íslands hafi haft að engu tillögu Geir H. Haarde að mynduð yrði þjóðstjórn og tryggja þannig þingræðislega stjórn. Björn telur að forseti hafi gengið gegn þingræðisreglu sem gerir ráð fyrir að ríkisstjórn styðjist við meirihluta á Alþingi.
Þetta kemur fram á pistli sem Björn Bjarnason skrifaði á heimasíðu Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þar gagnrýnir hann hvernig staðið hafi verið að myndun minnihlutastjórnar án þess að láta reyna á hvort hægt væri að tryggja meirihluta á Alþingi. Vinnubrögðin renni stoðum undir þá kenningu, að það hafi um nokkurt skeið verið samantekin ráð vinstri flokkanna að koma Sjálfstæðisflokknum út úr ríkisstjórn. Björn segir að ætla mætti af aðferð og framvindu viðræðna um vinstri minnihlutastjórnina, að þetta hafi verið gert í samráði við Ólaf Ragnar Grímsson.
Björn segir frá því að þegar Geir H. Haarde hafi beðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt hafi hann lagt til við forseta að mynda ætti þjóðstjórn:
Ólafur Ragnar hafði þessa tillögu að engu og fól fyrir hádegi þriðjudags 27. janúar Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, umboð til að hafa forystu í viðræðum við vinstri-græna um myndun minnihlutastjórnar í ljósi yfirlýsinga Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og með tilliti til þeirra sjónarmiða, sem Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður frjálslyndra, hafði kynnt í samtali við Ólaf Ragnar. Jafnframt sagði Ólafur Ragnar við þetta tækifæri, að fram hefði komið það sjónarmið að taka til skoðunar að einn eða fleiri virtir einstaklingar, sérfræðingar utan þings, tækju kannski sæti í slíkri ríkisstjórn. Gaf Ólafur Ragnar til kynna, að þar sem slík ríkisstjórn nyti stuðnings eða samvinnu við a. m. k. fjóra flokka á alþingi og hefði slíka tilvísun út í samfélagið væri kannski á vissan hátt í anda þeirrar þjóðstjórnarhugmyndar sem að margir hafa sett fram að undanförnu.
Hin tilvitnuðu orð eru af blaðamannafundi, sem Ólafur Ragnar hélt með þeim Ingibjörgu Sólrúnu og Steingrími J. Sigfússyni, formanni vinstri-grænna, á Bessastöðum rétt fyrir hádegi þriðjudaginn 27. janúar. Engin þeirra röksemda, sem Ólafur Ragnar nefnir leysti hann undan þingræðisreglunni og þeirri skyldu að veita stjórnmálamanni fyrst umboð til að reyna myndun ríkisstjórnar, sem nyti óskoraðs stuðnings meirihluta á alþingi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.3.2011 | 08:26
Er hægt að réttlæta árásir vesturlanda á Líbíu?
![]() |
Krefjast fundar í öryggisráði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2011 | 11:11
Ósannindastyrkir teknir upp í Kópavogi?
Sumt fólk á afskaplega erfitt með að halda sér á línu sannleikans. Hitt er þeim miklu auðveldara að ljúga. Vankantarnir við að velja ósannindaleiðina, að hún getur stangast á við landslög. Nú hefur það gerst að þremur bæjarfulltrúum í Kópavogi hefur verið stefnt fyrir Hæstarétt, þar sem ummæli þeirra eru talin ósönn og skaðandi. Meintir lygalaupar eru þau Guðríður Arnardóttir og Hafsteinn Karlsson frá Samfylkingu og Ólafur Gunnarsson frá VG. Þetta lið gerist nú svo óforskömmuð að að bærinn borgi fyrir sig málskostnað í þessu einkamáli þeirra. Engin fordæmi er um slíka ósvífni í sögu íslenskra sveitarfélaga eftir þeim heimildum sem ég hef aflað mér. Þetta gæti leitt til þess að kostnaður vegna allra einkamála einstaklinga í Kópavogi verði greiddur úr bænum. Fólk taki sig að ljúga um allt og alla og bærinn borgar.
Ástæða þess að þau skötuhjúin er stefnt fyrir Hæstarétt, er að þau sögðu útgáfufyrirtæki í Kópavogi hafa ekki skilað verkum sem fyrirtækið fékk borgað fyrir og að verk hafi verið óeðlilega dýr. Hvort tveggja eru talin ósannindi. Það verður að teljast líklegt að bæjarfulltrúarnir verði dæmdir í Hæstarétti og ummæli þeirra dæmd dauð og ómerk. Reyndar hafa lögfræðingar þremenningana að öllum líkindum gert þeim grein fyrir að þau verði dæmd, því að nú kemur fram tillaga fyrir Bæjarstjórn Kópavogs sem gerir ráð fyrir því að þrátt fyrir að þau verði dæmd fyrir meinyrði, eigi Kópavogsbær samt að borga. Aðeins hegningarlagabrot fyrri bæinn ábyrgð.
Framlag bæjarins nú verða því ósannindastyrkir. Í komandi fjárhagsáætlunum Kópavogs verður því að vera sér kostnaðarliður sem heitir ósannindastyrkur.
![]() |
Bæjarsjóður greiði málskostað í meiðyrðamáli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2011 | 16:39
Auka þarf fjárfestingu .... en....
![]() |
Fjárfesting fari í 18-20% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2011 | 00:30
Krónan, Árni og efnahagstjórnin
Formaður Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir kyrrstöðu í atvinnulífi og kallar eftir bættum rekstrarskilyrðum fyrirtækja. Hún er ekki ein um það, efnahagsstefnan er eins og hryðjuverk.
Árni Páll Árnason sagði hins vegar."Við gleymum því stundum að það eru ekki laun þeirra sem hafa tvöfaldast heldur laun okkar hinna sem hafa lækkað um helming. Það er nú allur hinn margrómaði ávinningur íslensks samfélags af hinni íslensku krónu,
Það er rétt hjá Árna að þegar rætt er um laun þá hafa laun þeirra sem hafa hækkað um helming ekki hækkað, miðað við laun í nágrannalöndum okkar heldur hafa laun landsmanna lækkað um 50% undir stjórn Árna Páls Árnasonar. Hann kennir nú krónunni um, en allir aðrir kenna ríkisstjórninni um. Krónan hefur bara ekkert með þetta mál að gera. Það sem verra er að það eru engar líkur á að laun hækki á meðan þetta lið situr við völd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.3.2011 | 07:12
Finnast alvöru fjölmiðlamenn?
Það sem einkenndi útrásartímann var egóismi þeirra sem leiddu. Þeir settu sinn hag ofar hag þjóðfélagsins. Þeir voru ósvífnir, voru tilbúnir að stela öllu steini léttari, inn úr fyrirtækjum, sjóðum, stofnunum, tilbúnir að taka sparnað eldra fólks, eigur millistéttarinnar og framtíð unga fólksins, bara fyrir smá fyllerí eða naserí. Þetta voru stórlygarar með athyglissýki og höfðu einstakan láhuga að búa til fléttur fyrir sig. Það var hægt að kaupa allt fyrir peninga. Svo var þetta lið yfirleitt með brókarsótt og sýniþörf á því sviði. Öll einkenni siðblindu voru til staðar.
Hvað þá með fjölmiðlamennina. Jú, þessir útrásarvíkingar áttu meginþorra fjölmiðlanna. Helstu einkenni margra sem þangað voru valdir, voru að fjölmiðlamennirnir höfðu einstakan áhuga á að þjóna eigendunum og hagsmunum þeirra eða þeir höfðu öll einkenni eigendanna þ.e. siðblinduna. Góður vinur minn í fjölmiðlastétt lýsti þessu ágætlega. ,,Þau óska sér að fá Heklugos, vegna þess að það fer svo vel í bakgrunni í mynd af þeim sjálfum.
Vel á minnst, þetta lið er í starfi enn í dag. Gjörsamlega ófært að greina aðstæður eða færa okkur hlutlausa umfjöllun um nokkurn skapaðan hlut. Það finnast alvöru fjölmiðlamenn, en til þess að finna þá þarf að leita vel. Það er líka til fjölmiðlamenn sem eru að byggjast upp, því að það þarf þroska til. Hins vegar eru útrásarfjölmiðlamennirnir, sem eiga eftir að biðja þjóðina afsökunar á þátttöku sinni í hruninu. Við getum verið viss um að þetta lið gerir það aldrei. Það sér ekki sök. Það gera siðblindir. ekki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10