Grunaður um njósnir fyrir CIA!

Það er ekki mörg ár síðan Jón Baldvin Hannibalsson beitti sér fyrir því að láta finna út hvort ákveðnir einstaklingar hafi verið á mála hjá Stazi í Austur Þýskalandi. Ekkert kom opinberlega út um tengsl ákveðinna Íslendinga en mörgum mátti vera ljóst að kastljósinu var beint m.a. gegn Svavari Gestssyni og Indriða Þorlákssyni. Þótt ekkert kæmi fram trúðu alls ekki allir að það þýddi hvítþvott þeirra félaga. Þegar Jóhanna Sigurðardóttir varð forsætisráðherra ákvað hún að hefna sín á sínum helsta óvini í pólitíkinni, Jón Baldvin, með því að treysta þeim félögum fyrir mikilvægasta samningi Íslandssögunnar, Icesave. Það varð mikil sneypuför. Áhrif þeirra félaga á framgögnu núverandi ríkisstjórnar er hreint með ólíkindum. Það svo að talað hefur veirð um að sér verið að endurreisa Austur Þýskaland á Íslandi, eða koma á fót Íslenska alþýðulýðveldinu.  Þó Svavar segir nú hað hann  hafa líka verið sakaður um njósnir fyrir CIA, dregur það athygli okkar ekki frá ,,afrekalistanum".  Svavar hefur ekkert upp á dekk að gera. Útgáfa bókar nú undirstrikar fyrst og fremst um dómgreindarskort Svavars. Það er ekki líklegt  að Svandís Svavarsdóttir eða Björn Valur óski eftir opinberri rannsókn á meintum njósnum Svavars. Slíkt þykir sjálfsagt algjörlega óþarfi.

Vinna indjánarnir!

Þegar við vorum um átta ára aldurinn í Kópavoginum var farið reglulega í sunnudagsbíó. Roy Rogers var aðalstjarnan, cowboy af bestu gerð, sem malaði indjánana. Svo var farið heim og strákarnir í Hrauntungunni fóru í hlutverk indjánana. Mér er algjörlega ómöuglegt að skilja svona eftirá að enginn stórslasaðist í átökunum. Menn lifðu sig inn í hlutverkin. Féllu menn í óvinahendur voru menn bundnir við staur og þeir píndir. 

Nú rúmum fimmtíu árum síðar lifa menn sig enn í svona hlutverkaleik. Helgi Hjörvar er orðinn indjáni, og hann vill  að Sjálfstæðismenn verði cowboyar. Reyndar sér Helgi Samfylkinguna sem Demokrata, og Sjálstæðisflokkinn sem Rebúblikana. (í USA væri Samfylkingin flokkuð sem hreinræktaðir kommúnistar) Það vill bara enginn leika við Helga. Honum bent á að fara fyrr að sofa. Ekki það að mér finnst oft að Helgi hafi getað verið indjáni. 

Einu sem hafa viljað leika þennan cawboyar- indjánaleik eru Samfylkingin og VG. Þar sem báðir flokkar hafa haldið hinum í gíslingu og reyndar innbyrðis líka. Nú hefur tekist að króa einn villikött af, og þá skal murka úr honum lífið. Rétt eins og í leiknum hér forðum, þurftu menn að sýna forystunni skilyrðislausa hlýðni. 


mbl.is „Vilji menn halda flokknum saman“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. nóvember 2012

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband