Sigurvegari kosningana

Það er oft svo að stjórnmálaflokkarnir hafa tilhneigingu til þess að lýsa sig sigurvegara kosninga, hvernig svo sem þær fara. Allir reina að ná sigrinum til sín. Svo er eining nú. Fyrst ber að nefna Indefence hópinn. Hann verður sannarlega að teljast sigurvegari. Strákarnir hafa unnið afar merkilegt starf, sem hefur skilað niðurstöðu sem aldrei áður hefur tekist að ná. Ólafur Ragnar Grímsson er einnig sannarlega sigurvegari þar sem hann hefur náð virðingu sinni að nýju meðal þjóðarinnar. Stjórnarandstaðan getur að hluta talist sigurvegari, því sannarlega lagði hún sig fram í þessu máli. Það verður einnig hægt að segja um órólegu deildina í VG, þó hennar hlutverk hafi fyrst og fremst verið að koma með nýja vídd í stjórnmálaumræðuna, megi þessi hópur hafa þökk fyrir. Þá kemur Jóhanna Sigurðardóttir sem fagnar því í dag, að stjórnarandstaðan hafi ekki lagt fram vantrausttillögu á ríkisstjórnina, og að stjórnarliðar ætli ekki að fella stjórnina. Okkur kjósendum var að vísu ekki ljóst að kosningarnar snérust um þetta og ef svo var, af hverju mætti þá Jóhanna ekki á kjörstað til þess að verja ríkisstjórnina.

Sá eini sem ekki fagnar er Steingrímur Sigfússon. Hann er of skynsamur til þess að fagna. Hann veit að það sem hann hefur barist fyrir allt þetta ár, var fellt og hann gerður aftureika með. Órólega deildin stendur upp sem sigurvegari innan VG. Það er komið að krossgötum í VG. Virðingin er fyrir Ögmundi, Lilju Mósesdóttur, Atla Gísla, Guðfríði Lilju og Ásmundi Daðasyni þrátt fyrir að hann hafi látið begja sig í síðustu Icesavekosningum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Indefence er sigurvegarinn.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 9.3.2010 kl. 08:20

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Þjóðin???

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 9.3.2010 kl. 11:42

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Steingrímur getur líka lýst yfir sigri, það voru jú sumir sem kusu "já", þrátt fyrir að "engin barátta væri fyrir því". 

Steingrímur getur örugglega túlkað það sem sigur!

Gunnar Heiðarsson, 9.3.2010 kl. 11:51

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Gunnar nú vill enginn vera í liði sem er minna en 5%

Sigurður Þorsteinsson, 9.3.2010 kl. 12:15

5 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Allavega lágmark að ná "fábjánafylginu" til að teljast maður með mönnum!

Kristján H Theódórsson, 9.3.2010 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband