Af hverju fór Steinunn Valdís?

Í kosningabaráttunni heimsækja frambjóðendur vinnustaði og fljótlega heyrðist af vinnustöðum þar sem frambjóðendur Samfylkingarinnar voru nánast hrópaðir niður eftir fyrirspurnir um styrki til  Steinunnar Valdísar. Það kom því ekki á óvart að Dagur hjólaði í Steinunni og Jóhönnu, krafðist afsagnar Steinunnar. Samfylkingin varð til úr Alþýðuflokknum  Kvennalistanaum og Alþýðubandalaginu. Það sem var lengst til vinstri í þessum flokkum hefur stjórnað í Samfylkingunni eftir brottför Ingibjargar Sólrúnar. Þessi vinstri armur tekur afsögn Steinunnar afar illa, það samræmist ekki hugmyndafræðinni. Eftir kosningarnar nú tók Dagur undir með þeim sem halda því fram að flokkarnir þurfi ærlega að taka til hjá sér. Flokkar og stjórnmálamenn verði að bera ábyrgð. Það stefnir í uppgjör innan Samfylkingarinnar eða hrun. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það fór óvenju lítið fyrir Degi í Silfri Egils í dag, hann var óvenju hljóður og sagði lítið, en það sem hann sagði þó má lesa þannig að það stefni í uppgjör í Samfylkingunni.

Ég velti einnig fyrir mér hvort Dagur sé að "kveldi" kominn og tími hans og ekki hvað síst Jóhönnu sé liðinn í pólitík.  Og kannski er tími Samfylkingarinnar liðinn, kæmi mér ekki á óvart.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.5.2010 kl. 18:25

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Tómas Samfylkingin er talsverð löskuð eftir þessa kosningabaráttu. Það eru reyndar aðrir flokkar og þurfa að fara í mjög alvarlega uppstokkun. Ég hélt að Dagur yrði næsti formaður Samfylkingarinnar frekar en Árni Páll. Er nú orðinn sannfærður um að það verður að koma nýr kandídat. Ef það gerist ekki innan tíðar gæti Samfylkingin orðið orflokkur, eða orðið deild í VG.  

Sigurður Þorsteinsson, 31.5.2010 kl. 01:03

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég er þér sammála Sigurður, þetta lítur ekki vel út fyrir Fylkinguna, en við hverju er að búast ???  Þeim virðast vera mislagðar hendur í flestum málum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 31.5.2010 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband