Að vera vond við fólkið sitt

Það er ekki almennur vilji að vera vond við fólkið sitt. Samt er það reyndin í mörgum tilfellum. Óreglufólk  fer oft illa með sína nánustu, annað hvort með því sem það gerir eða gerir ekki. Oft skaðast börnin og þurfa í framhaldinu að vinna úr sínum málum til þess að lifa góðu og hamingjuríku lífi.

Þegar þessi ríkisstjórn tók við var mikið traust á Jóhönnu Sigurðardóttur. Tilfinningar gagnvart Steingrími Sigfúsi voru blendnari. Jóhanna hafði sýnt að henni er annt um sína skjólstæðinga. Frammistaða ríkisstjórnarinnar er hins vegar þannig að fólkið skaðast. Það skaðast ekki vegna þess að ásetningur Jóhönnu og Steingríms var á þann hátt. Nei, heldur vegna þess að þau höfðu ekki þá þekkingu sem til þurfti til þess að vinna þau mál sem vinna þurfti. Aðeins lítill hópur í innsta kjarna þessa fólks trúir því að ríkisstjórnin muni geta tekist á við ástandið, og eru áægður með störf ríkisstjórnarinnar. 

Á sama tíma eyst bilið milli ríkra og fátækra. Fyrir þá sem eru í neyð, horfa upp á meiri neyð. Fólk sem er að ljúka námi, verður að leita út fyrir landsteinana til þess að fá vinnu. Skjaldborgin um heimilin í landinu er nú einungis notað í háði, þegar innantóm loforð eru gefin. 

Þau Steingrímur og Jóhanna eru vond við fólkið sitt, fólkið í landinu. Þeirra tími er liðinn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Oft lítur nú út fyrir að þeim sé nákvæmlega sama, einsog það að ætla að pína ICESAVE í gegn, Sigurður.  Það er  andstyggilegt og ljótt og sú vonska verður þeim ekki fyrirgefin.   

Elle_, 23.10.2010 kl. 12:20

2 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Það ætti ekki að vera flókið fyrir Jóhönnu,

að efna loforð sem hún gaf Þjóðinni,

frjálsar handfæraveiðar, sem myndi leysa

atvinnuvanda Íslendinga!!

Enginn Alþingismaður hefur lyft upp litlaputta,

til að efna þetta loforð!!

Aðalsteinn Agnarsson, 23.10.2010 kl. 12:55

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Siggi minn! Mér verður ómótt,við að vera kölluð fólkið þess,(valdhafanna),gæti gengið ansi langt til að losna úr þeim böndum, áður en þau draga mig og mína með sér í svartholið. 

Helga Kristjánsdóttir, 23.10.2010 kl. 14:20

4 Smámynd: Björn Jónsson

Þessi Aðalsteinn virðist vera með öngla fasta á fleiri stöðum en rassg.....

Björn Jónsson, 24.10.2010 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband