Er Ísland örugglega lýðræðisríki?

Við hátíðleg tækifæri reyna ráðamenn þjóðarinnar að telja okkur trú um að við séum fyrirmyndar lýðræðisríki. Með mikla lýðræðishefð sem við höfum viðhaldið í gegnum aldirnar. Þegar við fréttum af þöggun, fangelsun eða jafnvel aftökum í öðrum löndum, fyllist við vanþóknun. Við sendum stundum frá okkur yfirlýsingar eða afhendum mótmæli.

Þegar nánar er skoðað erum við hins vegar alls ekki nein sérstök lýðræðisþjóð. Það er vissulega rétt að við áttum fyrsta þing í Evrópu og það var til fyrirmyndar, en síðan tók við eymdartími og þá dalaði lýðræðið. 

Prófessor við Kaupmannahafnarháskóla sagði á ráðstefnu um lýðræði um Eystrasaltsríkin. Í þessi 40 ár sem þau hafa verið undir Sovétríkjunum, er búið að búa til nýja manngerð. Hómosovjetíkus. Þar sem allar ákvarðanir koma að ofan. Eingin ábyrgð. Allir reina að svíkja út úr kerfinu. Enginn þorir að tjá sig. 

Menntamálaráðherra Eistlands nýsloppinn undan ægivaldi bjarnarins, tók undir með prófessornum. Hann taldi skort á reynslu og þekkingu á að vinna lýðræðislega yrði helsti hemilinn á uppbyggingu í Eystrasaltslöndunum.

Það skorti gagnrýna umræðu á Íslandi  í þennslunni, og það skortir lýðræðislega umræðu enn. Við þurfum ekki annað en sjá hvernig ríkisstjórnarflokkarnir taka á þeim þremenningum. Það er átakanlegt. Fjölmiðlarnir eru algjörlega ófærir að taka umræðuna, því afar fáir innan þeirra skilja lýðræði og mikilvægi gagnrýnnar hugsunar. Fjölmörg dæmi eru um að fjölmiðlarnir taki þátt í þögguninni. Það er orðið okkar hefð. 

Í Kastljósi í kvöld var afar gott viðtal við Ragnhildi Sigurðardóttur doktor í vistfræði, sem hefur verið beitt miklu órétti af hendi Landsvirkjunar og opinberra aðila, vegna skoðana sinna. Þessi kúgun hefur tekið 10 ár. Að mínu mati er hér um að ræða gróft mannréttindabrot. Það þarf opinbera rannsókn á þessu ferli og taka þar til skoðunar vinnubrögð þeirra sem að málinu komu. Framgangan er ekki bara glæpur gagnvart Ragnhildi heldur gegn þjóðinni.

Umboðsmaður Alþingis hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að á Ragnhildi hafi verið gróflega brotið. Því ber að fagna. Málinu má ekki ljúka þar með. Lýðræðisins vegna.  Sú skoðun mín hefur ekkert með það að gera hvort ég er sammála Ragnhildi um einhver umhverfismál eða ekki. Ef við erum ósammála sem við erum örugglega um einhver mál þá gætum við rökrætt þau, og síðan breytt skoðunum okkar á einhvern veg ef við fáum sannfærandi rök. Það væri lýðræðisleg skoðanaskipti. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Góð hugvekja. Ég hef lært af þér hugtakið,  félagslegur þroski,  hugtak og meining, sem kemur við þessa sögu alla. Það verða alltaf deilur, stóra spurningin í mínum huga hvort eitthvað jákvætt kemur út úr þeim, eða hvort þær eru aðeins meiðingar og niðurrif.

Deilur innan VG hafa verið mjög áberandi og fengið mikla umfjöllun.  Deilur sem ekki hafa aðeins verið innan þingflokksins, heldur hafa deilendur augljóslega verið að tala við flokksbrot og áhugahópa innan VG.  Þetta er þannig aðferðafræði til að koma boðskap til " gallerísins " innan VG, og framapot einstaklinga í þessum hópi.  Ef mælikvarði þessarar umræðu er athygli, hefur mjög vel tekist til.

Jón Atli Kristjánsson, 7.1.2011 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband