Lýst er eftir óforskömmuðum lygalaup!

Lýst er eftir óforskömmuðum lygalaup, Jóhönnu Sigurðardóttur. Jóhanna er aldrað gamalmenni, hokið með alhvítt hár. Aðaleinkenni hennar er skeifulaga munnsvipur, en síðast er vitað til að hún hafi brosað er þegar hrunið skall á en þá sat hún í sérstöku efhahagsráði hrunríkisstjórnarinnar.

Það kom henni eins og fleium á óvart þegar hún var neydd til þess að taka að sér stöðu forsætisráðherra. Síðan þá hefur ósannindin verið hennar helsta tromp, og reyndar eina útspil. Hún lofaði þjóðinni að slegið yrði skjaldborg um heimilin í landinu. Það stóð aldrei til. Á sama tíma var frúin að afhenda vogunarsjóðum bankana til þess að þeir gætu þjarmað að þjóðinni. Þegar afgreiða þurfti gengislánin, voru lausnirnar að koma rétt eftir helgina, helgi eftir helgi. Þangað til að ljóst varð að engar lausnir vour til og aldrei stóðu til. 

Nú koma Hagsmunasamtök heimilanna og kvarta undan verðtryggðum lánum. Þá kemur loddarinn Jóhanna Sigurðardóttir fram og  segir ríkisstjórnina hafa unnið „ötullega“ að því að draga sem mest úr skaða verðtryggingarinnar. Hún segir verðtrygginguna jafn ósanngjarna nú og fyrir 15 árum. Hún vill ekkert ræða það að hún var félagsmálaráðherra þegar greiðsluerfiðleikalánin voru hér um árið en síðan eru liðin 28 ár. Jóhanna var þá heiðarleg er er nú bæði gleymin og fengið lygasóttina. 

 Þeir sem rekast á gamla lygalaupinn eru beðnir um að tilkynna fundinn á næstu öldunarstofnun, þar sem vonast er að viðkomandi fáist vistuð. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laxinn

Heyr!

Laxinn, 20.8.2011 kl. 07:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband