Launalágu stéttirnar

Allnokkur umræða hefur farið fram að undanförnu um  starfstéttir sem eru ílla launaðar. Fyrst voru það flugmenn, flugumferðarstjórar og flugfreyjur. Þessar séttir báru sig saman við samskonar stéttir erlendis. Svo bættust við félagsráðgjafar og lögreglumenn. Á þeim séttum getur verið mikið álag og starf þeirra orðin erfiðari og hættulegri en áður. Í viðtölum við lögreglumenn  kemur fram að það sem erfiðast er í þeirra  starfi er meðal annars að koma að börnum og ungu fólki sem hefur slasast eða látið lífið.

Ef við skoðum dæmið aðeins lengra, þá koma slik erfið mál einnig upp hjá stéttum eins og hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, læknum  og næringafræðingum. Í dag ræddi ég við tvær konur sem vinna á Landspítalanum. Önnur hjúkrunarfræðingur og hin næringarfræðingur. Báðar eru á strípuðum taxta og ekkert álag, eða aðrir hækkunarmöguleikar. Þær fara ekki í fjölmiðla, og fjölmiðlarnir koma ekki til þeirra. Laun þeirra munu ekki hækka, nema með því móti að flytja erlendis. Í Noregi bjóðast feiknargóð laun fyrir þessar stéttir. 

Laun er auðvitað allt of lá, en við það búa flestar starfstéttir á Íslandi. Það breytist ekki fyrr en atvinnumálin séu sett á dagskrá. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Mér sýndist nú á því sem að ég sá í sjónvarpsfréttum í kvöld að meðallaun lögreglumanna væru mjög nálægt því sem Alþingismenn Íslands hafa í þingfararkaup með öllu eða 534 þúsund cirka.

Svo ætla þeir að neita að verja þetta fólk sem er lýðræðislega kosið af fólkinu í landinu til að bera ábyrgð !

Enginn hefur kosið löggurnar !

Gunnlaugur I., 28.9.2011 kl. 21:14

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Gunnlaugur. Ég þykist vita að aðstæður margra í lögreglunni hafa versnað. Ofbeldi aukist ofl, en þegar ríkisstarfsmaður með 5 ára háskólanám í starfi þar sem oft er barist fyrir lífi barna. Barátta sem stundum vinnst og stundum tapast, fær útborgað rétt rúmlega 200 þúsund. Þá þurfum við að skoða málin.

Þá er núverandi atvinnuleysi algjörlega óásættanlegt, sem og það að hrekja gott fagfólk úr landi hudruðum og þúsundum saman. 

Sigurður Þorsteinsson, 28.9.2011 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband