Tækifærinu til leiðréttingar á skuldum heimila og fyrirtækja endanlega glatað?

Fyrir kosningar kom Framsóknarflokkurinn fram með 20% fyrningarleiðina. Bankarnir höfðu fengið niðurfellingu af erlendum lánum og því kom upp tækifæri á að rétta skuldastöðu heimilanna og fyrirækja  að hluta. Hugmyndin var óvenjuleg, en aðstæður eru líka óvenjulegar. Tryggvi Herbertsson og Lilja Mósesdóttir tóku undir þessa frumlegu hugmynd, þó með sínum áherslum. Ráðamenn höfnuðu tillögunni hins vegar, og að því virtist af valdahroka einum saman. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra taldi aðgerðir ríkisstjórnarinnar duga varðandi skuldsett heimili og nefndi m.a. greiðsluaðlögun. Nú nokkrum mánuðum síðar kemur hann til baka og vill taka málið upp. Það er virðingarvert, að sjá að sér. Að öðru leiti ríkir þögnin. Hins vegar  fréttist af því að verið sé að selja bankana útlendingum. Sem þýðir hvað? Jú, tækifærinu til leiðréttinga er glatað. Ef bankarnir eru komnir í eignarhald útlendinga, þá er ekki spurning um hvað sé réttlæti gagnvart heimilunum og fyrirtækjunum. Þá er spurt, hvað gagnast eigendum bankanna. Ef bankarnir eru seldir útlendingum, verður engin leiðrétting. Leiðréttingin verður ekki tekin eingöngu úr ríkissjóði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég er þér hjartanlega sammála Sigurður, það er með hreinum ólíkindum að ríkisstjórnin ætli að glutra niður því eina alvöru tækifæri til að koma til móts við heimilin.  Velferðarstjórnin er ekki að hugsa um velferð almennings, heldur velferð einhverra allt annarra.  Sorgarsagan hófst s.l. haust og sorgarsagan heldur áfram.  Það er ekki verið að bjarga Íslandi, hverjum er ríkisstjórnin að bjarga ?  Ég skil þetta ekki.

Tómas Ibsen Halldórsson, 5.9.2009 kl. 18:40

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Það má leiðrétta með því að leiðrétta vísitölu neysluverðs og lýsa yfir að gengistryggingin brjóti í bága við íslensk lög og að breyta verði þeim lánum í verðtrygð lán frá lántökudegi.

Héðinn Björnsson, 6.9.2009 kl. 01:31

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Héðinn það er langt síðan að ábending kom fram að gengislánin standist ekki lög. Stjórnvöld hafa ekkert með það gert. Verið er að fá dóm um gengistryggð lán fyrir dómstóla. Vísitölutenging lána er svo annað mál sem þarf vissulega að skoða. Það sem er alvarlegt er að ef á að selja bankana áður en gengið hefur verið frá skuldamálum heimilanna.

Tómas ég er sammála þér núverandi ríkisstjórn hefur sett ESB og Icesave sem forgangsverkefni, það er ekki velferðarstjórn.

Sigurður Þorsteinsson, 6.9.2009 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband