Niðurtakan

Fyrir fáum árum síðan var ég að vinna verkefni fyrir sveitarfélag. Þetta verkefni var unnið við nokkuð erfiðar aðstæður, þar sem miklar deildur voru í sveitarstjórn. Mikil harka var í deilum og mikill skortur á félagslegri reynslu til þess að vinna úr málum. Þá tekur eitt dagblaðanna upp á því að fjalla um einn sveitarstjórnarmanninn á einstaklega rætinn hátt. Það þurfti sérstaklega einbeittan illvilja til þess að sjá þá hið á málinu sem blaðamaðurinn valdi sér, mikilvægum upplýsingum var haldið til hliðar og aðrar sem birtar voru áttu enga tengingu við sannleikann.

Þar sem ég þóttist þekkja nokkuð vel til mála og fannst dregin upp mjög röng og ósanngjörn mynd, allt að því persónuníð, þá sló ég á þráðinn til blaðamannsins. Kynnti mig og sagði örstutt frá tengslum mínum. Þessu var ekki vel tekið, réttara sagt umturnaðist blaðamaðurinn í símanum. ,, Ef þú heldur þig ekki frá þessu máli, þá finn ég eitthvað á þig, eða bý eitt hvað til til þess að eyðileggja mannorð þitt". Ég var kjaftstopp og lagði á. Nokkrum mínútum síðar var ég kominn á lítinn kaffifund. Þar voru staddir fyrir tilviljun þekkir fjölmiðlamenn og ég sagði farir mínar ekki sléttar. Ég hafði ekki nefnt nein nöfn þegar fjölmiðlamennirnir skelltu uppúr. Fjölmiðlamennirnir gátu þeir strax nafngreint kollega sinn og sögðu að þetta væri nánast daglegt brauð. Þetta væri kallað að taka menn niður.

Nú fjallar DV um Bjarna Benediktsson og með fullri virðingu, þá trúi ég aldrei einu einasta orði sem í því blaði stendur. Ekki fyrr og heldur ekki nú. Geri mér heldur ekki í hugarlund af hvaða hvötum blaðið er gefið út. Les það aldrei. Mér skilst að Bjarni Benediktsson hafi rætt við Hrein Loftsson og óskað eftir að umfjöllun DV yrði hætt. Bjarni óttaðist málningarliðið. Það er annars merkilegt að ,,rannsóknarblaðið" hafi ekki komist að því hverjir eru hér að verki. Kannski misminnir mig, en ég minnist ekki að málningu hafi verið skvett á hús Hreins Loftssonar, Jóns Ásgeirs Jóhannssonar eða Jóhannesar Jónssonar. Það er eflaust tilviljun.

Það verður hins vegar athylisvert að sjá hverjir eru á niðurtökulista DV á næstunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Alls ekki þeir þrír sem þú nefndir síðast.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 13.12.2009 kl. 17:47

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Neeeeii, varla þeir. Það kæmi mjög á óvart.

Annars kom frétt á vísir.is þar sem Bjarni leiðréttir það að hann hafi beðið um að umfjöllun yrði hætt, aðeins að eigendur blaðsins vissu staðreyndir í málinu. Skildi þessi umfjöllun tengjast uppgjöri eigenda Haga við Kaupþing.

Sigurður Þorsteinsson, 13.12.2009 kl. 21:04

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Var ekki heiðarleiki efst á blaði á  þjóðfundinum?

Helga Kristjánsdóttir, 14.12.2009 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband