10.6.2024 | 21:24
Holland - Ísland
Það lá nú nokkuð ljóst fyrir að það yrði erfiðari leikur á móti Hollandi en Englandi. Holland með klassa betra lið en England. Tveir leikir á milli leikja þýddi ákveðna þreytu í íslenska liðinu. Það sem kom mér á óvart var hversu vel íslenska liðið hélt boltanum. Við höfum sjaldan haft tæknilega jafn góðan hóp. Hollendingar voru mjög hreyfanlegir og nýttu sér breidd vallarins mjög vel, létu boltann ganga. Jóhann Berg gerði afar góða hluti, Stefán og Hákon. Andri Lucas ver í erfiðri stöðu en getur verið mjög sáttur við sína frammistöðu í leikjunum báðum Ísak kom skemmtilegur inn í leikinn. Hákon í markinu frábær. Í heildina getum við ekki verið ósáttir við þennan leik. Getum tekið fullt út úr honum. Fyrir nær 40 árum fékk ég það tækifæri að fara til Kölnar og fylgjast þar með og taka þátt í æfingum hjá Rinus Micaels sem var þjálfari Hollenska landliðsins sem vann silfurverðlaun í HM 1974 og síðan verða Evrópumeistari 1988, með m.a. núverandi landsliðsþjálfara Hollendinga sem einn af lykilspilurum. Micaels sem var valinn bestu þjálfari heims á síðustu öld af FIFA var oft kallaður hershöfðinginn. Ekki vegna stjórnsemi sinnar, heldur átti hann óskaplega erfitt með að þola sjálfskipaða sérfræðinga úr blaðamannastétt. Íslenskir kollegar þeirra hér á landi munu koma fram á völlinn á morgun og rakka íslenska landsliðið niður. Það er oft talað um knattspyrnubullur meðal áhorfenda, þeir sem haga sér illa og koma óorði á áhorfendur í knattspyrnu. Það er eins hægt að tala um þessa sjálfskipuðu sérfræðinga, sem nánast án undantekninga hafa hvorki reynslu sem góðir spilarar eða þjálfarar, hafa nánast enga þekkingu á leiknum sjálfum eða uppbyggingu hans. Fella hins vegar stóra dóma í sínum eigin heimi fullum af vanmáttarkennd. Við getum kallað þá íþróttafréttamannabullur. Það eru þeir sem koma óorði á íþróttafréttamannastéttina.
Viðskipti og fjármál | Breytt 11.6.2024 kl. 03:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2024 | 19:53
Hjóla í verkalýðshreyfinguna, nýja formanninn og unga fólkið.
Þó flestum finnist komin ró varðandi samninga, gleyma margir að eftir á að semja við opinbera starfsmenn. Útspil Vilhjáms Birgisson verkalýðsfrömuðar á Akranesi var afar sterkt. Nú skyldi semja til þess að ná verðbólgunni niður. Niðurstaðan var gott betur en það fyrir verkalýðshreyfinguna. Komið á móts við þá sem áttu um sárt að binda vegna vaxtahækkana, og svo kom útspil Katrínar Jakobsdóttur varðandi skólamáltíðir. Þetta er á sama tíma og samdráttur er í ferðaþjónustunni og eldgos í Grindavík. Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ stóð sig afar vel ásamt sínu fólki. Það má segja að samningarnir hafi verið ný þjóðarsátt. Eftir situr hópur sem á eftir að semja, og stjórnað af úrillum miðaldran konum, flestar komnar af léttasta skeiði Með útspili sínu eru þær líka að hjóla í Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar, sem vildi færa flokk sinn nær grasrótinni. Kristrún þarf ekki á þeim að halda í þeirri vegferð. Með stefnu opinberra starfsmanna og tregðu til þess að ganga frá samningum, halda þær uppi óvissu í efnahagsmálum og Seðlabankanum ber að taka tilltit til þess þegar kemur að ákvörðun um Stýrivexti.Þær koma því í veg fyrir lækkun vaxta. Þessar kerlingar eru líka að hjóla í unga fólkið, og gera þeim lífið enn erfiðara. Ætti ekki að koma á óvart því hvenær hafa þær hugsað um heildina?
Viðskipti og fjármál | Breytt 10.6.2024 kl. 04:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.6.2024 | 19:16
England - Ísland
Byrjunarlið á móti Englandi. Er ekki svarsýnn á þennan leik, en játa að þrír leikmenn hefði átt að koma til greina. 1. Höskuldur Gunnlaugsson einn besti leikmaðurinn í íslenskum fótbolta. Hann þarf að færa sig inn á miðjuna og hefur styrkleika að taka stöðu Arons Gunnarssonar sem aftasti maður. Hörku karakter greindur leikmaður, en þarf sannarlega að láta boltann fljóta betur. Það er bara úrvinnsla. 2. Emil Atlason og sérstaklega í fjarveru Willums Þórssonar stórkostlegur leikmaður eins og Willum bæði sterkur í loftinu og líka vel spilandi. 3. Eggert Guðmundsson sýndi á síðasta ári úr hverju hann er gerður. Toppspilari og lykilmaður í landsliði framtíðarinnar fyrir Ísland.
Eftir fyrri hálfleik: Mjög vel spilaður leikur í fyrri hálfleik. Auðvitað halda Englendingar leiknum betur, en þegar við náum boltanum vantar okkur menn eins og Willum Þórsson eða Emil Atlason er enn á því að Höskuldur Gunnlaugsson myndi styrkja byrjunarliðið, eða Aron Gunnarsson.
Seinni hálfleikur. Englendingar einfaldlega ekki góðir. Hugsanlega taugaspenna, og réðu ekki við spennustigið. Íslenska liðið yfirvegað. Held mig við ábendingar t.d. að Emil Atlason hefði styrkt liðið, svo og Höskuldur Gunnlaugsson. Ætla að halda því fram að núverandi landsliðsteymi sé sterkara nú en áður. Auðvitað er þetta frábært! Til hamingju. Hvað við erum stolt.
Viðskipti og fjármál | Breytt 8.6.2024 kl. 09:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.5.2024 | 10:14
Lækka stýrivextirnir?
Það má reikna með að stýrivextirnir fari að lækka fljótlega. Það eru þó því miður nokkur ljón í veginum. Stærsta hindrunin er að opinberir starfsmenn eiga eftir að semja og þar hafa komið fram hótanir. Samningarnir fela í sér kjarabót fyrir alla, en þá koma fram fulltrúar úr opinbera geiranum og vilja fá meira. Þeir sem fyrst og fremst þyrftu að fá meira er unga fólkið okkar, öryrkjar og eldri borgarar, ásamt hópum meðal bænda og listageiranum. Fulltrúar frá opinbera geiranum hafa sýnt tennurnar, og þar eru fulltrúar úr órólegu deild Samfylkingarinnar. Á meðan ekki er búið að semja eykst þrýstingurinn á áhyggjur um launaskrið og þar með aukna verðbólgu. Önnur hættumerki er hækkandi lóðaverð hjá sveitarfélögunum. Það er bara ávísun á hækkun á húsnæðisverði, og var ekki á bætandi. Lykilatriði er að stærsta sveitarfélagið Reykjavík fari að sýna ábyrgð með að bjóða upp á aðrar lausnir en þéttingu byggðar, og bjóða upp á ódýrari lóðir á nýju landi. Sértaklega höfða til yngra fólks, þeim sem minna mega sín og eldri borgara. Það er ánægjulegt að lífeyrissjóðirnir ætla að koma inn á leigumarkaðinn en stjórnvöld, þ.e. bæði ríki og sveitarfélög, verkalýðshreyfingin og lífeyrissjóðirnr þurfa að vinna saman að gjörbreyta núverandi markaði. Það er vel hægt. Nýlega gagnrýndi Fjármálaráð ríkisstjórnina fyrir skort á aðhaldi í ríkisfjármálunum. Taka verður þessa gagnýni alvarlega en ríkissjóður er annar hluti opibera kerfisins, hinn hlutinn eru svietarfélögin þar verður líka að koma til aukið aðhald ef árangur í baráttunni við verðbólgunni á að nást.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.5.2024 | 17:57
Viðreisn og Samfylking sameinast um að hafna stefnu ESB
Það kom einhverjum á óvart, ekki síst þeim sem voru í innsta kjarna Samfylkingarinnar að innganga í ESB yrði ekki lengur á forgangslista Samfylkingarinnar. Nýi formaðurinn hafði talað og tilkynnti flokksmönnum þessa nýju ákvörðun sína. Formaðurinn hafði talað. Lengi hafði verið ákveðnar efasemdir innan Samfylkingarinnar hvort stefnan væri rétt og þegar Uffe Elleman Jenssen aðal stuðningsmaður Norðurlanda fyrir inngöngu Íslendinga í ESB, sagði ESB stuðningsmenn á Íslandi væru eintómir rugludallar, og þeir vissu ekkert um hvað þeir væru að tala um, fengu margir eldri flokksmenn Samfylkingarinnar kaldar fætur. Það var auðvelt fyrir Katrínu Frostadóttur að sannfæra Þorgerði Katrínu að koma uppí vagninn og hafna ESB. Ef Viðreisn lifði af næstu kosningar myndi Kristrún bjóða Viðreisn í viðræður um samstarf. Þorgerður var alveg til. Þegar ESB sameinaðist í afstöðu Kanadamanna í málefnum Ísraels og Hamas og sitja hjá við seinni afgreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum, til þess að mótmæla framgöngu nokkurra múslimaríkja. Ákváðu þær Kristrún og Þorgerður að nota málið til að sparka í Bjarna Benediktsson. Stefna ESB skipti þær engu. Kristrún er sigri hrósandi, hún veit að Viðreisn er á siglingu niður, og mun að öllum líkindum ekki ná manni á þingi í næstu kosningum. Eina mál Viðreisnar, innganga í ESB er farin og þá er ekkert eftir.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.5.2024 | 22:15
Mun Svandís sprengja ríkisstjórnina?
Talsverð umræða hefur farið fram í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum eftir að Katrín Jakobsdóttir yfirgaf ríkisstjórnina til þess að fara í forsetaframboð, hvort Svandís Svavarsdóttir myndi sprengja ríkisstjórnina. Greinarar fóru fljótt í það að finna út hverjir stæðu á bak við þessa tilgátu. Jú, þeir sem í alllangan tíma hafa gert aðför að Katrínu Jakobsdóttur sem forsætisráðherra. Aðförin kemur fyrst og fremst úr Samfylkingu og það sem kemur mörgum á óvart, og úr Viðreisn.Það þarf ekki mikla spekinga til þess að átta sig á að ríkisstjórnin hefur fyrst og fremst byggst á persónulegu trausti Katrínar og Bjarna. Þegar Katrín fer, leiðir Svandís Svarsdóttir VG hver sem svo er varaformaður VG. Við þessar breytingar í ríkisstjórn, var talsvert fylgi innan Sjálfstæðisflokksins að skipta út VG og fá Viðreisn í stjórnina. Bjarni Benediktsson var því alfarið mótfallinn og taldi samstarf við VG farsælasta kostinn. Þetta kemur mörgum á óvart því að Svandís Svafarsdóttir gerði alvarleg mistök í hvalveiðimálinu, en framgagna Guðmundar Inga Guðbrandssonar var oft á tíðaum afar umdeild. Niðurstaða Bjarna byggði fyrst og fremst á virðingu hans fyrir hæfileikum Svandísar Svavarsdóttur og henni sem manneskju og heilindum hennar. Val hans á milli Svandísar og Þorgerðar Katrínar Gunnardóttur var tiltölulega auðvelt og þekkir hann jú báðar mjög vel. Síðast þegar stjórnarlokkur sprengi ríkisstjórn, var þegar Björt framtíð sprengdi ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Fáir muna Bjarta framtíð og enn síður fyrir hvað þau stóðu. Samkvæmt skoðanakönnunum er VG í erfiðri stöðu, en Svandís Svavarsdóttir tekur við því ráðuneyti sem hvað veikast hefur verið í ríkisstjórninni. Málefni húsnæðismála og samgöngumála. Svandís á alla möguleika á að gera góða hluti næsta eina og hálfa árið og rífa upp fylgi VG. Líklegt er að VG muni taka fylgi frá Samfylkingu, Flokki fólksins, Pirötum og Viðreisn. Þeir sem efast um styrk Svandísar ættu að hlusta á dóttur hennar Unu Torfadóttur. Hæfileikabúnt. Eplið fellur oft ekki langt frá eikinni! UNA TORFA : Fyrrverandi (youtube.com)
Viðskipti og fjármál | Breytt 6.5.2024 kl. 06:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2024 | 00:13
Skítlegur populismi
Eiríkur Bergmann hefur talsvert skrifað um populismann, en síðan sjálfur stundum tekið upp takta sem draga úr virðingu fyrir honum sem fræðimanni. Því miður virðast sumir halda að Eiríkur hafi skrifað kennsluefni um hvernig nota eigi populismann til að nota í stjórnmálabaráttunni. Í Evrópu er varað við populismanum sem einni mestu ógn við lýðræðið jafnvel meiri ógn en alræðishyggjuformin, nasismi og kommúnismi. Sameiginlegt einkenni er mjög oft hatrið og þá oftar en ekki hamrað á hvað mótherjarnir séu spilltir. Við getum verið ósammála eða ósammála einhverjum í pólitík, í einhverju máli, en á sama tíma getum við virt viðkomandi sem persónu og einnig virt margt sem viðkomandi gerir og hefur gert. Úr heimagarði Eiríks Bergmanns, Samfylkingunni er nú farið á stað með undirskriftarsöfnun til þess að níða pólitískan andstæðing. Með þeim flykkjast svo margt fólk lengst til vinstri. Hugsum okkur að þessi aðferð yrði notuð til þess að níða einhverja af þeim sem eru að bjóða sig fram til forseta, eða jafnvel biskups. Nei svona gerum við einfaldlega ekki. Hvern á næst að taka niður. Kristrúnu Frostadóttur, Dag B. Eggertsson? Nei ströndum saman um að hafna svona vinnubrögðum. Neðar verður varla farið. Öflugasta andsvar við öfgum til hægri og vinstri, svo og populisma er lýðræðisleg umræða. Ein leið til þess að drepa lýðræðislegra umræðu er þöggunin. Þöggun hefur því miður verið mikið notuð hérlendis t.d. í umræðunni um innflytjendamál. Þar popoulistanrnir oft fram grímulausir.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.4.2024 | 06:08
Endurreisn fjórflokksins
Það kom mörgum á óvart að eitt fyrsta verk Kristrúnar Frostadóttur sem formaður Samfylkingarinnar varð að ýta Helgu Völu Helgadóttur út. Kristrún var sannfærð farið væri aftur í kjarnann, en hvaða kjarna. Þegar Samfylkingin var stofnuð átti ég nána vinkonu sem var í innsta kjarna Kvennalistans sem síðar gekk inn í Samfylkinguna. Þá kynntist maður að þessi sameining var að mörgul leiti ógeðsblanda. Gamli Alþýðuflokkskjarninn hafði ekkert umburðarlyndi fyrir hugmyndum Kvennalistans og þær fengu vel að finna fyrir því. Voru oft kallaðar kérlingarnar eða helvítis kerlíngarnar. Það sama átti með gamla Alþýðubandalagið. Það lið var kallað kommarnir og jafn lítil virðing borin fyrir þeim. Þessi blanda virkaði bara ekki og 2016 og lægst fór Samfylkingin niður þegar það munaði örfáfum atkvæðum að flokkurinn þurrkaðist út. Fylgið sem vonast var að fá lengst til vinstri kom ekki og jarðvegur varð til fyrir Flokk fólksins og Sósíalistaflokkinn. Strax í byrjun vildi hluti af gamla Alþýðubandalaginu ekki dansa með og stofnaði VG. Nú með tilkomu Kristrúnar á Samfylkingin að verða það sem Alþýðuflokkurinn vildi, verða Jafnaðarmannaflokkur Íslands. Þar er ekkert pláss fyrir þá sem eru lengst til vinstri. Alþýðuflokksarmurinn vildi aldri Helgu Völu. Ef hún færi í VG er þar komið mjög gott formannsefni, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir færi líklega með hanni og ásamt fjölda annarra. Í framsókn er Sigurður Ingi Jóhannsson orðinn mjög veikur í formannsstóli á sama tíma er Framsókn með tvo öfluga stjórnmálamenn Lilju Alfreðsdóttur og Willum Þórsson, með brotthvarfi Sigurðar er kominn möguleikinn á að sameinast Miðflokknum. Þau umbrot og breytingar sem eru í Sjálfstæðisflokknum færir hann nær þeim flokki sem kallaður var stétt með stétt flokkur. Á teikniborðinu lítur þessi fjórflokkur bara skrambi vel út.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2024 | 08:20
Komandi lýðræðisveisla?
Nú þegar fólk er að klára að bjóða sig fram til forseta, er strax farið að spyrja okkur hvern við ætlum kjósa. Bíðum nú aðeins við? Ættum við ekki fyrst að fá þá fram sem ætla að bjóða sig fram og hlusta vel eftir því sem frambjóðendur hafa fram að færa og síðan taka ákvörðun? Er það ekki faglegri skoðanamyndun. Sífellt fleiri flæða á milli flokka, og þá hlýtur fylgi í forsetakosningum líka að flæða a milli frambjóðenda á tímanum fram til kosninga. Minnist þess þegar Kristján Eldjárn ákvað að stíga til hliðar og við fengum forsetakosningar með fjórum frambjóðendum. Vigdís Finnbogadóttir, Guðlaugur Þorvaldsson, Albert Guðmundsson og Pétur J. Thorsteinsson. fjölmiðlaumfjöllun var allt of grunn, svona eftirálitið. Þekkti vel til Vigdísar og Guðlaugs sem höfðu verið kennarar mínir, Alberts Guðmundssonar sem ég hafði kynnst m.a. úr íþróttunum og síðan Pétur J. Thorsteinsson sem kom úr Utanríkisþjónustunni. Pétur fékk ekki neina þá kynningu í fjölmiðlun að eiga nokkurn séns að vinna. Þótt mér þótti afar vænt um Albert og bar mikla virðingu fyrir honum, ekki bara sem afburða knattspyrnumanni uppfyllti hann ekki þau skilyrði sem ég hafði í huganum hvað ég vildi sjá í forsetanum. Þetta var því val á milli Guðlaugs og Vigdísar. Það var ekki mikið reynt að hafa áhrif á hvað ég myndi kjósa. Ekki mikill áróður nema að hún amma mín spurði mig afar varfærnislega hvort ég hefði myndað mér skoðun hvern ég myndi velja. Ég sagði valið stæði á milli kennara minna. Guðlaugs og Vigdísar. Amma mín Elín Grímsdóttir sem þá var 87 ára gömul, var mikill stuðningsmaður Vigdísar. Fór þá inn í skáp hjá sér og náði í eitt staup af sherry. Hún sagði: ,,Ég hef aldrei reynt að hafa áhrif á þig í kosningum, en ef þú ert ekki ennþá búinn að gera upp hug þinn í kjörklefanum máttu minnast baráttu okkar kvenna í gegnum tíðina". Þetta hafði nú ekki afgerandi áhrif, ég var búinn að ákveða að kjósa Vigdísi allnokkru áður en í kjörklefann kom. Síðar fór ég að gera kröfum um fleiri þætti hjá forsetaframbjóðendum og með auknum kröfum hefði valið verið enn auðveldara. Er því svo þakklátur að fá að kynnast frambjóðendum nú í allri þessari nýju fjölmiðlum. Á ekki von á að RÚV taki verulega þátt í að upplýsa þjóðina. Þeir hafa frekar sínum eigin hnöppum að neppa, eða kynna ,,sína" frambjóðendur með áróðri. RÚV er ekki lengur með í því sem skiptir máli og verður RÚV vonandi lagt niður fyrr en seinna. Með punktunum hennar Vigdísar Bjarnadóttur verður valið auðveldara og markvissara. Var að hlusta á Höllu Tómasdóttur og hún kom afar vel út. Hlakka til að hlusta og horfa á fleiri frambjóðendur.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.4.2024 | 13:41
Undan ísbjarnarfeldinum.
Nú þykir ekki fínt að koma út úr skápnum. Nú kemur fólk undan ísbjarnarfeldinum. Jón Gnarr lofaði ísbjörn í Húsdýragarðinn, en hann lifði ekki leiðindin af og dó. Undan feldinum kemur nú hver óáran eftir aðra. Jón Gnarr sjálfur, hálfskaddaður, Felix forsetaefnisfrú, Steinunn Ólína með allt sit hatur og öfga, lengi skal telja. Þetta virðist vera ein ormagryfja einstaklinga með athyglissýki. Ljóst er að Katrín Jakobsdóttir fer fram og hún fer ekki ísbjarnarleiðina, heldur ekki Hella Tómasdóttir, Halla Hrund Logadóttur orkumálastjóri, Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, Baldur Þórhallsson prófessor og Arnar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður. Þó Jón Gnarr hafi farið þessa leið á hann möguleika. Nú hefst kosningabaraáttan og ekki verður séð að fleiri frambærilegir aðilar komi fram. Vonandi verður þetta áhugaverð kosningabarátta. Það er mitt mat að Vigdís Bjarnadóttir fyrrum deildarstjóri á skrifstofu forseta Íslands í nær 40 ár hafi hjálpað umræðunni mikið. Hvaða þætti þarf að hafa í huga við val á Forseta Íslands. Björn Bjarnason tók þessa þætti saman úr viðtalinu:
1. Vera afar vel menntaður, heiðarlegur og heilsteyptur einstaklingur, sem kemur vel fyrir.
2. Hafa brennandi áhuga á landi, þjóð og sögu.
3. Þekkja samfélagið, innviði þess og samsetningu afar vel.
4. Hafa góða þekkingu á íslenskri pólitík og vera vel að sér í alþjóðapólitík.
5. Tala lýtalausa ensku og eitt Norðurlandamál, fleiri lýtalaus tungumál eru kostur.
6. Geta rætt um menn og málefni á akademískum grunni og samið og flutt ræður og fyrirlestra bæði á íslensku og ensku.
7. Geta flutt óundirbúnar ræður fyrirvaralaust á ensku um alls konar málefni.
8. Hafa gott og sterkt bakland, það blæs oft á Bessastöðum.
9. Hafa kjark til að taka mikilvægar og vel ígrundaðar ákvarðanir, jafnvel þótt þær séu ekki vinsælar.
10. Hafa tengsl inn í stjórnmálaflokkana, vita alltaf hvernig vindurinn blæs.
11. Vera í góðu sambandi við og þekkja fólk sem hann kallar til skrafs og ráðagerða, þegar hann undirbýr ræður og ávörp, einnig þegar hann undirbýr opinberar heimsóknir til annarra landa eða heimsóknir innan lands.
12. Þekkja samskipti við aðrar þjóðir, bæði í pólitík, viðskiptum, bókmenntum og listum og á akademískum grunni.
13. Vera góður stjórnandi.
14 Kunna/læra prótokollinn.
15. Vera kurteis í samskiptum við fólk og geta talað við alla.
16. Hafa vit á mat og vínum.
17. Hafa staðgóða þekkingu á öðrum menningarsamfélögum.
18. Klæða sig af vandvirkni og vera óaðfinnanlegur.
19. Vekja stolt þjóðarinnar.
20. Góður maki er mikill kostur.
Þegar þessir áhugaverðu punktar eru lesnir, þrengist hópurinn sem kemur til greina sem næsti Forseti Íslands.
Viðskipti og fjármál | Breytt 5.4.2024 kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10