Færsluflokkur: Bloggar

Góður kostur

Það er mikill styrkleiki að fá Illuga Gunnarsson sem formann þingsflokks Sjálfstæðisflokksins. Hlustaði á Guðmund Ólafsson hagfræðng fagna þessari ákvörðun og það er full ástæða til þess að taka undir með honum. Án þess að á nokkurn sé hallað er Illugi einn af öflugustu þingmönnnum á Alþingi Íslndinga í dag.

mbl.is Skora á þingflokkinn að endurskoða ákvörðunina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttamannalandið Ísland

Það virðist svo sem margir innan Samfylkingarinnar hafi gefist upp skjaldborginni um heimilin í landinu. Málið er víst svo stórt að Jóhanna er einna helst að gera áætlun um hvernig næsta ríkisstjórn eigi að taka á málunum. Hins vegar er hópur innan Samfylkingarinnar sem telur flóttamannavandann vera áhugaverðari vettvang. Hingað koma ,,barnungir" flóttamenn, sem annað hvort neita að gangast undir aldursgreiningu, eða reynast vera langt komnir á fertugsaldurinn í stað þess að teljast á barnsaldri. Svo reynir hluti þeirra reglulega að smygla sér í skip, því þrátt fyrir að fá hér hærri laun en atvinnulausir Íslendingar. Hér vilja þeir hins vegar ekki hér að vera en Ísland er góður staður fyrir millilendingu.
mbl.is Fær viðbótarvernd á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytingar í landsliðinu!

Gaman að sjá Arnór Aðalsteinsson aftur í landsliðinu,  hörkuspilari, kemur í stað . Í leiknum á móti Færeyjingum fannst mér vanta ákveðinn karakter í liðið. Annað hvort einhver hræðsla við nýjan þjálfara, eða óöryggi í liðnu af öðrum ástæðum. Á tímabili gátum við gloprað þeim leik niður í jafntefli. Það var  fyrst og fremst Kolbeinn sem stóð uppúr. Það er alltaf tak í Arnóri.

Annars höfum við sennilega aldrei haft aðra eins breidd leikmanna  til þess að velja landsliðið úr. Tveir leikmenn sem gaman væri að sjá í liðinu og hafa verið að gera frábæra hluti. Keflvíski bakvörðurinn í FH liðinu Guðjón Árni Antoníusson sem hefur m.a. skorað 6 mörk í sumar sem bakvörður. Willum Þórsson hefur sagt í viðtölum, það Guðjón sé einn öflugasti karakter sem komið hefur fram í íslenskum fótbolta, og Willum hefur rétt fyrir sér! Guðjón minnir  á menn eins og Hermann Hreiðarsson, Ásgeir Sigurvinsson  og Atla Eðvaldsson í þeim efnum. Slíkir leikmenn vaxta þegar á reynir og það er einmitt sem við þurfum á að halda í landsliði.  Þá væri gaman að sjá Guðjón Baldvinsson aftur í landslðinu. Hann hefur verið duglegur að skora í Svíþjóð. Fljótur, flinkur og snjall. Leikmaður sem gefur alltaf allt í leikinn.  Svo hafur hann gaman af þessu.


mbl.is Arnór valinn í stað Indriða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt verður andstæðingum VG að vopni.

Það er ekki einleikið hvað VG er óheppið þessa daganna. Þeir sem vilja fara eftir stefnu flokksins í ESB málinu, verða stöðugt órólegri. Það léttist því á þeim brúnin þegar Katrín Júlíusdóttir og Svandís Svavarsdóttir komu fram og stöðu að nú þyrfti að endurskoða aðildarumsóknina í ESB. Á kaffistofum útlistuðu stuðningsmenn VG fyrir okkur hinum, að VG væri nú aftur orðin gegn ESB, flokkurinn ætlaði  standa í lappirnar og segja ESB liðinu til syndanna. Svo kom í ljós að Steingrímur hafði farið til útlanda og sennilega dottið í það, og hringt í stelpurnar sem fóru strax með nýju stefnuna í fjölmiðla. Formaðurinn var með hausverk daginn eftir og svaraði ekki fjölmiðlum. Þegar heim var formaðurinn hins vegar edrú, og VG ætlar að halda ESB vegferðinni áfram. Við þessa uppákomu fækkaði stuðningsmönnum VG umtalsvert.

Annað sem hrjáir VG er Björn Valur Gíslason. Í hvert skipti sem Björn kemur í  fjölmiðla fækkar atkvæðunum. 

Það nýjasta er aukið fylgi Hægri Grænna, HG. Ljóst er að margir umhverfissinnar gætu hugsað sér að yfirgefa hinn ESB sinnaða VG.  Sennilega verða þetta tveir umhverfisörflokkar á Þingi með 3-4 þingmenn, svona eins og Hreyfingin er núna. 


Verður lögð drög að skjaldborg fyrir kosningar?

Eitt af því sem forsætisráðherra okkar Jóhanna Sigurðardóttir var að slegið verði upp skjaldborg um heimilin í landinu. Eitthvað hefur þessi skjaldborg dregist, enda tíminn farið í ýmiss gæluverkefni eins og aðildarumsókn um ESB. Ekki  ætla ég forsætisráðherra að vera ósannindamanneskju, og því á ég von að a.m.k. dörg að slíkri skjaldborg verði lögð fram nú á haustþinginu. Er sannfærður um að heimilin í landinu setja þessar áherslur ofar flestu eða öllu öðru. Það er í raun stórfurðulegt að fjölmiðlar skuli ekki fá  skýr svör um hvenær skjaldborgin verði lögð fram og leitast að fá innihald hennar.

Það er sannarlega jákvætt að Ágúst Þór Árnason og Skúli  Magnússon skuli leggja fram tillögu um stjórnarskrá. Þeir félagar eru annars vegar deildarformaður lagadeildar Háskólans á Akureyri og  dósent við lagadeild Háskóla Íslands og hafa örugglega kynnt sér málið vel. Allt innlegg í umræðuna er gott, ákvarðanir ber síðan að taka á réttum vettvangi. 


mbl.is Leggja fram tillögu um stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er verið að skemma útsæðið í íslenskri knattspyrnu?

Nýlega birti Fotbolti.net yfirlit fyrir notkun félaga á uppöldum leikmönnum bæði í 1 og 2 deild. Nokkur félög hafa verið að fá talsverða peninga fyrir leikmenn sem hafa farið í atvinnumennsku, en talsverðar líkur eru á að þær tekjur muni lækka á næstu árum. Í stað þess að nota leikmenn sem eru að koma úr yngri flokkum félaganna, virðist þróunin vara sú að kaupa erlenda leikmenn, eða fá  leikmenn úr neðri deildum. Uppaldir leikmenn sem komast í drengja og unglingalandslið virðast oft ekki fá tækifæri og ná því aldrei að springa út. Þetta er vond stefna, sem jafnframt mun skaða íslenska knattspyrnu til lengri tíma.

Helsta ástæðan er sennilega eru veikar stjórnir í félgunum sem ekki hafa skýra stefnumörkun. Skammtímahagsmunir þjálfara sem verða að sýna árangur, er stórskaðleg. Fyrir örfáum árum tók stjórn félags í 1 deild ákvörðun um að byggt yrði á eigin leikmönnum. Auðvitað var  þjálfarinn óhress, en liðið fór upp úr 1 deildinni, og vann síðar úrvalsdeild og bikar. 

Þessi vanhugsaða þróun, mun síðan koma niður á íslenska landsliðinu. 


mbl.is Lagerbäck: Ekki rétt að velja Eið að þessu sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð í felulitum

Stundum eru orð sett saman til þess að koma á framfæri merkingu, en stundum bara til þess að fela. Oft eru þau bara orð, án innihalds.

VG var með flokksráðsfund á Hólum, og ESB málin eru rædd, og samþykkt að rætt verði við Samfylkinguna um málið. Orðum verði kastað á milli. Það hefur sennilega ekki  oft  verið gert.  Kannski aldrei. Hvað ef Samfylkingin segir nei? Þá þurfa þau í VG að funda aftur, væntanlega á Höfn, eða í Skálholti og þar verður þá sennilega samþykkt að aftur verði rætt við Samfylkinguna. Svo koma kosningar og VG hefur gert sitt besta til þess að koma þjóðinni í ESB. Þar með verða VG stærstu taparar næstu kosninga. 

 Samfylkingin hélt líka flokksráðsfund. Tók ekkert sérstaklega eftir hvar. Kannski í Reykjanessbæ. Þá hefur verið væntanlega jafnframt verið fundað með heimamönnum, þar sem þeim er lofað fleiri hundruð stöfrum. Mikið átak, mörg loforð, bara  til að svíkja. 

Þeir sem áttu von á að Jóhanna tilkynnti að hún ætlaði að draga sig í hlé, urðu fyrir vonbrigðum. Andrési Jónssyni almannatengli hefur sennilega ekki verið boðið á fundinn, því hann lýsti nýlega fyrir þjóðinni ófagurri lýsingu á ástandinu í flokknum og óvinsældum Jóhönnu. Nokkuð sem okkur hinum kom nú ekkert sérlega á óvart. Jóhanna hefur jú farið úr 65% fylgi og nú um 15%. Skýrara verður það nú ekki. 

Ólína gaf út að Jóhanna eigi að vera áfram. Auðvitað veit Ólína að slíkt sé firra, en Ólína veit líka að hún sjálf verður ekki á Alþingi eftir næstu kosningar. Ólína er bara að snapa sér einhverja stöðu. Hundahreinsunarkona á Vestfjöðum ef allt annað bregst. 

Katrín Júlíusdóttir sagði að Jóhanna verði bara áfram, í geðshræringu yfir að Jóhanna hafði valið hana sjálfa sem fjármálaráðherra. Þar með er Jóhanna að gera Katrínu að sínum kandidat. Katrín veit sem er að tími Jóhönnu er löngu liðinn. Þá er í lægi að segja eitthvað fallegt, svona í lokin.

Árni Páll fer í drottningarviðtal hjá DV. Þrátt fyrir að vera fulltrúi blaðsins í formannsbaráttuna. Árni segir sannarlega þörf á breytingum í Samfylkingunni enda er hann með skófar Jóhönnu á afturendanum. Það er erfið staða fyrir mann sem langar í formann. 

Þó Guðbjartur Hannesson hafi verið nefndur sem kandidat fyrir löngu er eins og jörðin hafi gleypt hann. Nokkra athygli vekur að Dagur Eggertsson varaformaður og Össur eru ekki lengur nefndir á nafn í formannsumræðunni.

Loks er það Stefán Ólafsson.  Stefán hefur vakið  talsverða athygli, með daglegu lofgjörðarbloggi sínu  á Eyjunni til dýrðar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Egill Helga taldi að Stéfán væri að vekja athygli á sér sem formannsefni  en það spratt fram  engin eftirspurn, þannig að Stefán tilkynnti um  seint og síðir að hann væri ekki á leið í baráttuna. Engin eftirspurn og ekkert framboð. Nú er helst talið að um einhverskonar félagsfræðilega tilraun sé að ræða. Er hægt að skrifa upp óvinsælusta forsætisráðherra allra tíma? Svo verður þess að geta að Stefán fengið mörg vellaunuð verkefni frá þessari ríkisstjón og hugsanlega er Stefán bara uppfullur af þakklæti.  

Allir orðaleikir í kringum  þessa pólitísku fundi um helgina, þýða ekkert eða allt annað en en orðanna hljóðan. Þannig verður ja, að nei og öfugt. Allt í felulitunum. 

Það er að koma haust, þá koma einstaklega fallegir litir í nátúruna. Þeir eru sannir, ólíkt litum helgarinnar og orðum hennar. 


mbl.is Samstarf kallar á málamiðlanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæ, hó á Hólum!

Það var mikill kraftur og samhugur í VG liðum á Hólum. Samt voru hreinskiptar umræður t.d. um ESB, en  engar ályktanir um málið, sem þýðri bara áfamhaldandi stefnu. Að VG vill ekki sjá að ganga í ESB, en forystunni falið að þrýsta á að aðildarviðræðum ljúki fyrir kosningar og aðild samþykkt. Sá hluti sem var mest gegn ESB var settur  í sérstaka nefnd, sem fundaði niður í kjallara. Þegar nefndin hafði lokið fundarhöldum kom í ljós að einhver hafði lokað dyrunum að utanverðu og Steina sem átti að skila af sér niðurstöðu nefndarinnar festist í kjallaraglugganum og var ekki bjargað fyrr en eftir að fundinum var slitið. Ályktunin náði því ekki fram í tíma, og verður tekin fyrir á næsta flokksráðsfundi VG, eftir næstu Alþingiskosningar.
mbl.is Áfram samstarf vinstrimanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld eða lákúra

Ungt fólk sleppir fram af sér beislinu, hvort sem það er af konungafólki eða sauðsvartum almúganum. Fer án klæða í sund, eða pott. Mbl.is setur niður þegar það ákveður  aðsetja slíkar féttir á forsíðu. Passar DV ekki Mbl.is. Ef unga sumarleyfisfólkið á fjölmiðlinum heldur að þetta sé það sem við viljum fer það villu vegar.

Á sama tíma eru snillingarnir í Uriah Heep að snillast með Eiríki Haukssyni. Miklu áhugaverðara efni.


mbl.is Fer saman að vera partíljón og prins?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í herferð gegn atvinnuuppbyggingu

Eitt af því sem vakið hefur athygli eftir hrun, er hvað allar nýjar fjárfestingar eiga erfitt uppdráttar. Í gær bloggar Stefán Ólafsson einn helsti  talsmaður ríkisstjórnarinnar um fjárfesta:

,,Fjárfestar eru vandamálið – ekki lausnin"

stefan_olafsson.jpg
Stefán sem segist vera óflokksbundinn og óháður öllum samtökum, hefur farið hamförum á bloggi sínu undanfarnar vikur, og er sterklega orðaður við formannsstólinn í Samfylkingunni. Prófessorinn virðist vera með stjórnmálaskoðanir vinstra megin við Jóhönnu Sigurðardóttur og VG, en smellpassar við fjármálaráðgjafa ríkisstjórnarinnar þá Indriða Þorláksson og Svavar Gestsson, eða Austur Þýska menntagengið svokalllaða. Það er hreint út sagt ótrúlegt að svona skrif geti birst  árið 2012.

sjá 

Stefán bloggar þétt þessa daganna og allt snýst um það að réttlæta hærri skatta og meira ríkisbákn. Auðvitað eru fjárfestar þyrnir í augum prófessorsins, þeir passa eflaust ekki í heimsmyndina.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband