7.2.2014 | 16:41
Nýju fötin bæjarstjórans
Það var einu sinni bæjarstjóri í stórum bæ. Vinir hann kepptust um að hæla honum og segja hvað hann væri góður bæjarstjóri, svo hugmyndaríkur og klár. Þetta voru auðvitað kaup kaups, því bæjarstjórar, hafa ýmsar leiðir til að hjálpa vinum sínum.
Ef þú ert góður bæjarstjóri, þarf að láta alla vita af því, annars ertu ekki kosinn aftur. Fáir vita betur en hann, hvað það er mikilvægt að vera sýnilegur. Vondar féttir eru einfaldelga betri en engar fréttir.
Þó megi ekki tala hátt um það er bæjarstjórastaða, góð og bara vel launuð innivinna. Enn það kostar líka mikið að vera bæjarstjóri. Endalaus útgjöld, vitið þið t.d. hvað það kostar að taka þátt í prófkjöri, og bæjarstjórinn okkar hefur af og til náð sér í smá aukatekjur með vinum sínum. Allir verða að bjarga sér og þeir fiska sem róa.
Einn af vinum bæjarstjórans, sagði honum söguna um nýju fötin keisarans. Þó bæjarstjórinn okkar sé víðlesinn hafa hann ekki heyrt þessa sögu Sagan fjallar um það að allir ráðgjafar keisarans voru svo uppteknir af að þóknast honum og dást að nýju fötunum hans. Fötin pössuðu svo vel og voru svo falleg. Þegar keisarinn sýndi sig í nýju fötunum, var það blessað barnið, sem sagði, hann er ber !!
Þetta er góð saga sagði bæjarstjórinn, hana get ég notað. Ég verð aðeins að sníða hana að nútímanum, þetta með fötin passar ekki, en þetta lið trúir öllu !!
Ég ætlað einfaldlega að búa til glansmynd, eins og keisarinn, segja t.d., bærinn okkar er vel rekinn, unglingarinar eru svo ánægðir með íþróttaðstöðuna og skólana, fjármálastjórnin er ábyrg og traust. Segi svo vondir menn vilji hinsvegar komast í peningakassann og hjálpa fátækum, hafið þið heyrt það betra. Þið ráðgjafar og vinir bakkið þetta svo upp. Allt muni fara fjand... nema ég verði áfram bæjarstjóri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.2.2014 | 12:22
Bæjarstjóri á að segja satt!
Auglýsingastofur og almannatenglar hafa oft æði mismunandi áherslur. Almannatengar leggja oftast áherslu á að skjólstæðingar þeirra segi satt, veri heiðarlegir og viðurkenni mistök sín ef þeir gera mistök. Auglýsingamenn virtasta leggja áherslu á að komast frá hlutunum, og þá oft nota þeir þau ,,trikk" sem þeir komast upp með.
Ármann Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi kemur úr auglýsingabransanum og það mótar vinnubrögðin.
Í desember segir Ármann Ólafsson í umræðum um leiguíbúðir að Kópavogsbær hafi keypt 11 íbúðir á árinu. Hann tekur það nú ekki alvarlega, þó honum sé bent á að aðeins hafi verið keyptar 7 íbúðir, en síðan hafi 4 íbúðir verið í miklu viðhaldi.
Í janúar er umræða um leiguíbúðir í Kópavogi og þá segir Ármann á bæjarstjórafundi. Við keyptum 15 íbúðir á árinu 2013. Hvernig í ósköpunum geta þessar 7 íbúðir orðið að 15 íbúðum. Jú, ef við tökum þessar 7 íbúðir, og leggjum þessar 4 íbúðir við sem ekki voru keyptar og voru því oftaldar. Bætum síðan þessum oftöldu aftur við þá fáum við 15 íbúðir! Svona myndu almannatengslar aldrei ráðleggja bæjarstjóra að gera, en auglýsingamenn gætu gert það. Þegar Ármann er beðinn um lista yfir þessar 15 íbúðir þá vandast málið og hann segir að kannski misminni hann þetta, eða hann hafi farið rangt með! Þetta bendir til mikils áhuga Ármanns á málaflokknum.
Á sama fundi fullyrðir Ármann og reyndar einnig Ómar Stefánsson að Kópavogsbær ætli að kaupa 15 leiguíbúðir á þessu ári. Þeir leggja mikla áherslu á að ekki megi fara fram úr fjárhagsáætlun. Hvað er þá sett í kaup á leiguíbúðum í fjárhagsáætlun. Jú, 100 milljónir. Það þýðir að hver íbúð á að kosta 6.666.667 krónur. Það eru ansi ódýrar íbúðir. Svo ódýrar íbúðir hafa nú ekki verið seldar á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn áratug. Getur verið að Ármann hafi alls ekki ætlað að kaupa neinar 15 íbúðir. Meðalverð íbúa er áætlað um 30 milljónir, og miðað við það er aðeins rými í fjárhagsáætlun fyrir 3 íbúðir.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi var ekki heimiluð umræða um fjármögnun tillögu sem hafði verið samþykkt í bæjarstjórn. Málið er rætt nú í bæjarráði og nú segir Ármann að nú sé málið í fyrsta skipti komið í faglegan farveg.
Er ekki kominn tími til þess að skipta þessu liði út úr bæjarstjórn og fá hæfara fólk til starfa!
![]() |
Sátt um húsnæðismálin í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 7. febrúar 2014
Um bloggið
Sigurður Þorsteinsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Fundarstjórn Alþingis Fundarstjóri Alþingis Alfheiður Ingadóttir ávítir Tryggva Herbertsson
Bloggvinir
-
raggig
-
jonatlikristjansson
-
egill
-
hilmir
-
logos
-
ottarfelix
-
don
-
omarragnarsson
-
vidhorf
-
svanurmd
-
vefritid
-
marinogn
-
muggi69
-
gummiarnar
-
saemi7
-
morgunbladid
-
prakkarinn
-
ea
-
zeriaph
-
dullur
-
vinaminni
-
jonarni
-
sparki
-
gesturgudjonsson
-
salvor
-
jenni-1001
-
neytendatalsmadur
-
steinig
-
gbo
-
hugsun
-
palmig
-
gisliblondal
-
gattin
-
ollana
-
gudni-is
-
gudbjorng
-
ludvikjuliusson
-
gudrunkatrin
-
tilveran-i-esb
-
himmalingur
-
askja
-
siggiingi
-
hildurhelgas
-
robbitomm
-
rannveigh
-
hoerdur
-
hallibjarna
-
hvirfilbylur
-
baldher
-
thorsteinnhelgi
-
addabogga
-
vistarband
-
tbs
-
rafng
-
draumur
-
zumann
-
bjarnimax
-
bookiceland
-
jonvalurjensson
-
seinars
-
heringi
-
kristjan9
-
kolbrunerin
-
jhb
-
halldorjonsson
-
kuriguri
-
diva73
-
westurfari
-
hordurt
-
disagud
-
h2o
-
heidarbaer
-
kuldaboli
-
nr123minskodun
-
kij
-
kristinn-karl
-
hafthorb
-
stjornlagathing
-
armannkr
-
helga-eldsto-art-cafe
-
vgblogg
-
siggus10