Verðskulduð fylgisaukning Framsóknar

Framsóknarflokkurinn er í sókn og það er sannarlega verðskuldað. Samfylking og VG náðu höggi á Framsókn þegar þeir lágu vel við höggi. Það hefði getað haft alvarlegar afleiðingar fyrir nýjan formann, og reyndar flokkinn líka. Framsók stóð þetta af sér og kemur fram sem öflugri flokkur. Veikustu hlekkirnir í dag eru Siv Friðleifsdóttir og Guðmundur Steingrímsson. Flokkurinn hefur valið sér harða og gagnrýna stjórnarandstöðu og lætur höggin dynja á stjórnarflokkunum. Þá kemur Siv og daðrar við ríkisstjórnina sem ekkert hefur við sig. Er það furða þó hún sé teiknuð sem daðurdrós í einhverjum dagblöðum, það eru allir vissir um að það eru sporslur sem ráða för. Hort sem hún gengur í netsokkum eða ekki, er orðsporið þegar farið.  Guðmundur er hins vegar ekki búinn að taka ákvörðun um hvort hann ætli að vera í Samfylkingunni eða Framsóknarflokknum. Slík hegðun er tryggur miði utan Alþingis í næstu kosningum. Fari hann aftur yfir í Samfylkinguna eru dagar hans á Alþingi taldir. Þá fer góður biti í hundskjaft.
mbl.is Framsókn bætir við sig fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Guðmundur Steingrímsson hefur valdið mörgum framsóknarmanninum vonbrigðum. Þegar hann ákvað að koma "heim" héldu flestir að hann væri að meina þann gamla flokk sem faðir hans stjórnaði, ekki þann flokk sem nokkrir einstaklingar höfðu yfirtekið og þurkað fylgið af. En þetta var víst misskilningur, Guðmundur var ekki að ganga í Framsóknarflokkinn, hann var að ganga í Framfylkingarflokkinn!!

Þetta sýnir, eins og mörg dæmi sanna, að erfðir eru ekki alltaf góðar í pólitík. Synir hinna bestu stjórnmálamanna eru ekki endilega góðir stjórnmálamenn sjálfir.

Guðmundur hefur þegar brotið allar brýr að baki sér í pólitík. Því eru hans dagar taldir á þeim vettvangi. Verið getur að þar fari góður biti í hundskjaft, en sá biti er þó ekki betri en það að sumum flökrar við!

Um Siv ætla ég ekki að skrifa. Tel hana þegar vera komna af þingi!

Gunnar Heiðarsson, 4.5.2011 kl. 08:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband