Ástands Steingrímur!

Þistilfjörðurinn varð útundan á stríðsárunum. Þangað komu  engir Bretar eða Bandaríkjamenn. Íbúarnir  fóru því ekki í ástandið. Einn af þeim gerðist meira að segja hernámsandstæðingur, gekk í Alþýðubandalagið og þegar jafnaðarmenn sameinuðust stofnaði sonur Þistilfjarðar, Steingrímur sinn eigin kommúnistaflokk VG. En um leið og drengurinn kynnist fólki sem talar útlensku þá liggur hann kylliflatur. Það versta við þessa framgöngu er að hann tekur fjármuni sem ætlaðir eru þjóðinni og gefur þá erlendum útrásarvíkingum. Fyrir ástandshegðun sína, sem snýr að honum persónulega, missir Steingrímur fyrst og fremst vorkunn. Fyrir framgöngu gegn þjóðinni fær hann stöðu fyrir Landsdómi, og verður e.t.v. sá fyrsti sem hlýtur þar dóm. Þjóðin verður að sýna afstöðu sína með því að mæta á Austurvöll þegar sviksemi Steingríms verður rædd á Alþingi í næstu viku. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Kjartansson

Sæll vertu:

Þetta er ágæt ábending með Landsdóm. Þessi afleikur með 400 millarðana... ja, það er ansi myndarlegt mál og fremur auðvelt að benda á sakarefnin, hver svo sem verður skikkaður til að fara og taka frá nokkra mánuði eða ár til þess að láta vel um sig fara á opinberu hóteli og lesa bókina Jakob Ærlegur, já eða steypa nokkrar gangstéttarhellur.

Guðmundur Kjartansson, 29.5.2011 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband