Jóhanna sær í gegn í Austur-Þýskalandi.

Jóhanna Sigurðardóttir hefur sannarlega slegið í gegn í Þýskalandi. Ekki hjá öllum, en þeim sem sakna Austur Þýskalands. Jóhanna er fyrsti þjóðarleiðtoginn sem stefnir að taka upp þjóðskipulagið sem lagt var niður þegar Vestur og Austur Þýskaland voru sameinuð. Angela Merkel kemur upphaflega frá Austur Þýskalandi. Merkel  hefur verið gagnrýnt fyrir tvo þætti, annars vegar að vera of höll undir  gamla austrið, en einnig að vera sparsöm á brosið. Með heimsókn Jóhönnu hefur þetta verið afsannað með öllu. Í samanburði við Jóhönnu er Merkel lengst til hægri og síbrosandi. 

Jóhanna talaði að sjálfsögðu íslensku við Merkel  sem kinnkaði kolli við og við, en skildi ekkert, sem gerði svo sem ekki mikið til.  Jóhanna kom þeirri ósk á framfæri að Svavar Gestsson yrði fyrsti sendiherrann í nýja Austur Þýskalandi og Álfheiður Ingadóttir hernaðarráðgjafi. 

 

 

angela-merkel55.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var fínn túlkur sem túlkaði.  Það er ekkert óvenjulegt að túlkað sé þegar þjóðarleiðtogar hittast.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 14.7.2011 kl. 12:55

2 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Ha Ha Ha Ha. Börn af sitthvoru þjóðerni sem tala ekki sama túngumál skilja hvort annað,það hefur margsannað sig. En það er samt betra að þau séu ekki með þjóðmálin í sínum höndum!

Eyjólfur G Svavarsson, 14.7.2011 kl. 13:24

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Stefán það virðist vera afskaplega viðkvæmt að forsætisráðherra okkar geti ekki tjáð sig á erlendri tungu, það sem er þó verra, er að þó svo að hún gæti það. Um hvað ætlaði hún þá að ræða?

Sigurður Þorsteinsson, 14.7.2011 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband