Alvarlegar ásakanir ganga milli stjórnarflokkanna

 Það er áhugavert að fylgjast með skotunum á milli ráðamanna og stuðningsmanna stjórnarflokkana eftir ákvöðurn Ömundar Jónassonar í málefni  kínverjans Huangs Nubos.

Samfylkingarmenn eru alveg ævir. Þetta var þeirra mál. Þeirra framlag. Eiginmaður Ingibjargar Sólrúar kynnti manninn fyrir flokknum og einhverjir sáu glitta í fjárstuðning. Nú ganga skotin á milli. 

VG er á móti öllum framfaramálum. Það er alveg sama hvort um er að ræða stóriðju eða eitthvað annað. VG eru sagðir vera á móti allri erlendri fjárfestingu í hvaða nafni sem hún er. Þeir geti ekki samið um nokkurn skapaðan hlut, og er þá til nefnd snautleg ferð Svavars Gestssonar til að semja um Icesave. VG eru líka sakaðir um að geta ekki haft nokkurn skapaðan aga á sínu liði, sem er út og suður, og þegar búnir að missa umtalsverðan hluta þingmanna sinna úr flokknum og eftir situr ríkisstjórninn með Jón Bjarnason sem er sagður eyðileggja alla mðöguleika Samfylkingarinnar til þess að ná ESB málinu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu þrátt fyrir að ríkisstjórnin héldi velli út kjördæmabilið. Þá þarf Samfylkingin að hafa Ögmund Jónason í ríkisstjórn, mann sem áður var rekinn úr ríkisstjórninni, tekinn inn aftur og er tilbúinn til þess að gera hvað sem er til þess að klekkja á Steingrími Sigfússyni og Samfylkingunni. Vilji VG sé enginn til þess að koma hjólum atvinnulífsins í gang að ný. 

Samfylkingin fær líka á baukinn frá stuðningsmönnum VG. Samfylking er með Jóhönnu Sigurðardóttur sem hefur algjörlega brugðist sem forsætisráðherra til að þjappa þjóðinni saman. Hún hafi enga hæfileika til þess að jafna ágreining, og yfirlýsingar hennar t.d. um þessa heimskulegu skjaldborg gefi andstæðingum ríkisstjórnarinnar endalaus vopn til þess að lemja á ríkisstjórnarsamstarfinu. Sameflingin hugsi bara um eitt mál ESB, sem þeir viti að sé einhugur meðal VG að fella. Árni Páll hafi á engan hátt valdið málefnum í skuldavanda heimillanna og þrátt fyrir að honum hafi loks verið skipt út þá hafi síðan ekkert gerst. 

 Það er auðvitað erfitt að mótmæla þessum fullyrðingum. Sjálfsagt eru þær allar og fleiri réttmætar. 

Nú er bara spurningin nú þegar þetta lið hefur viðurkennt allar þessar staðreindir og fjallað um þær opinberlaga, hvað liðið ætlar að gera? 


mbl.is Ekki hlutverk ráðuneytisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Maður spyr sig hvað þurfi til þess að koma ríkistjórn frá í lýðræðislandi. Þarf hún að lýsa vantrausti á sjálfa sig? Það verður að rjúfa þing til að losna við þennan krabba úr systeminu en þessi hryllilega stjórn mætir engri andstöðu. Ég hef ekki heyrt í stjórnarandstöðunni síðan Icesave málið var til lykta leitt. Skal einhvern undra ástandið?

Jón Steinar Ragnarsson, 27.11.2011 kl. 04:11

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Jón mér finnst þessar hreinskiptu umræður forráðamanna og stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar mikið framfaraspor. Í nokkurn tíma hefur Samfylkinginn gagnrýnt Jón Bjarnason harðlega m.a. fyrir að þvælast fyrir ESB. Nú kraumar allt.

Sigurður Þorsteinsson, 27.11.2011 kl. 08:01

3 Smámynd: Jón Sveinsson

Góðan daginn

Það var ljóst frá fyrstu hendi að ekkert yrði gjört VG OG SF eru aðeins í ríkisstjórn saman til að Sjálfstæðisflokkunin komist ekki að ekki til að bjarga heimulum né fyrirtækjum svo einfalt er það þetta vita menn framfarir er eitur í þeirra augum hvort það sé sf eða vg ef annar aðilinn vill framför þá væri stjórnin farin frá eða með öðrum orðum aldrei orðið til.

Jón Sveinsson, 27.11.2011 kl. 13:45

4 Smámynd: Gylfi Gylfason

Það styttist í kosningar Sigurður. Langlundargeð okkar vinstri manna er þrotið

Gylfi Gylfason, 27.11.2011 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband