Ábyrgðin er alfarið Jóns.

Þegar ráðherra fer úr embætti er leitast við að meta hvaða áhrif hann hefur haft í embætti. Þegar Jón tók við embætti batt Samfylkingin vonir við það að Ísland fengi aðgang að Evrunni með hraðferðsaðferð og yrði tekin í notkun rétt eftir helgi, eða mánaðrmótin. Rétt í þann mund sem ríkisstjórnin væri búin að skapa 7 þúsund störf. Í stað þessa hefur þessi óheillakráka orðið valdur að því að Evrópusambandi er nánast að liðast í sundur. Menn eru ekki vissir um hvort Evran lifi þetta af. Sendinefnd kom frá ESB til þess að skoða Jón, og einn úr nefndinni gat ekki orða bundist eftir að hafa séð gripinn. Gamall, sköllóttur, skeggjaður bædadurgur, með skoðanir aftur úr tíma kommúnismans frá Stalínstímanum.

Það var ekki furða að ekki gangi betur í ESB, þrátt fyrir Evruna, sem margar þjóðir vilja nú fara að losa sig við. Meira segja hafði Jón áhrif í Danmörku, því nýlega var birt skoðanakönnun sem sýndi að 70% Dana vilja alls ekki Evruna. 

Það var á samt á grundvelli trúmála sem Jón var látinn fjúka. Í ríkisstjórnarsamstarfinu segir að ráðherrar hvors flokks megi ekki ráðast að trúarskoðunum ráðherra samstarfsflokksins. Steingrímur varð að viðurkenna að Evran og ESB væri á trúarsviðinu, og að Jón hafi stöðugt gert grín að þessu fyrirbrigði. 

Því fer Jón. Áhrifameiri ráðherra hefur vart komið fram á Lýðveldistímanum.  Talið er að hlutabréfavísitölur í Evrópu muni taka kipp um leið og tilkynnt hefur verið að Jóni Bjarnasyni ,,hinum óþæga" hafi verið sparkað.   


mbl.is Óánægja vegna breytinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Góður!

Árni Gunnarsson, 30.12.2011 kl. 07:59

2 Smámynd: Ragnhild H. Jóhannesdóttir

Magnað  ! ....Islendingar hafa lengi verið orðaðir við fjölkyngi ..Jón Bjarna  sannar að eitthvað eymir af sliku enn !......óborganleg færsla ,takk Sigurður ...

Ragnhild H. Jóhannesdóttir, 30.12.2011 kl. 08:02

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

FLottur ertu Sigurður  Gæti ekki orðað þetta betur.  Það svífur kyngimagn yfir þessum pistli.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.12.2011 kl. 12:09

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Árni, Ragnhild og Ásthildur, ég kveð þetta ár hrærður. Í kvöld var hringt heim, konan ein heima. Hún skildi manninn ekki alveg, en var helst á því að hann hringdi úr einhverju ráðuneytinu, með það í huga að fá mig til þess að skrifa fleiri lofgreinar um ráðherra ríkisstjórnarinnar.

Annars bíð ég morgundagsins spenntur. Var tjáð í dag að ég hafi verið tilnefndur til ESB verðlauna. Þeirra sem hafa kynnt ESB á sem heiðarlegastan hátt á síðasta ári. Er nokkuð sigurviss að ég hljóti verðlaunin,

Fullur tilhökkunar fyrir næsta ár þakka ég ykkur fyrir árið sem er að líða, og óska ykkur velfarnaðar á komandi ári. 

Sigurður Þorsteinsson, 30.12.2011 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband