Spennandi þrír nýjir þingmenn úr Reykjavík

Því miður eru fáir spennandi einstaklingar að koma fram sem kandídatar í komandi kosningum. Síðast komu einstaklingar eins og Atli Gíslason, Lilja Mósesdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ásmundur Einar Daðason. Aðeins Ásmundur fer nú fram en nú fyrir Framsókn. Feiknarefnilegur þingmaður, sjálfum sér samkvæmur og berst fyrir sínum málefnum. Hin þrjú fengu ekki rými í sínum flokki, þrátt fyrir að vera í meirihluta.

Mest spennandi  þingmannsefnin nú eru Brynjar Níelsson sem mun lyfta sér upp fyrir flokkspólitíska sérhagsmuni. Það er mikill fengur af slíkum kalíber á þing. Hanna Birna hefur talsverða reynslu úr Borginni, og hefur leitast við að koma með ný vinnubrögð sem þjóðin þarf sannarlega á að halda. Mjög öflug. Frosti Sigurjónsson sem mörgum á óvart bauð sig fram fyrir Framsókn, en myndi ná örugglega ná árangri í hvaða flokki sem er. Frosti leiddi baráttu gegn samþykkt Icesave, á einstaklega faglegan hátt. Hann hefur mikla reynslu úr atvinnulífinu og frjór. 

Það einkennir þau Brynjar, Hönnu Birnu og Frosta að styrkja Alþingi umtalsvert. Við þurfum meiri samvinnu milli þingmanna mismunandi flokka. Hlusta á góðar hugmyndir hvar sem þær koma. Þingmenn þurfa að lyfta sér upp fyrir það plan sem pólitíkin hefur verið á. Það tekur hins vegar tíma að aðlagast nýjum vinnustað. 

 


mbl.is Listarnir samþykktir hjá framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Ég vil bæta einum við Haraldi Benediktssyni formanni Bændasamtakana ,sem er í öruggu sæti í NV kjördæmi.

Ragnar Gunnlaugsson, 1.12.2012 kl. 13:12

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ragnar ég gerði þau mistök að einblína á Reykjavík, en ég er alveg sammála þér. Haraldur kemur bæði af landsbyggðinni og hefur mikla félagsmálareynslu, fyrir utan fagþekkingu sína. Þó það sé reyndar liðin tíð að það sé skammaryrði að vera bóndi. Áhugi landsmanna á jarðrækt, og dýrarækt er orðin það algeng að virðing bændastéttarinnar er mun meiri en var til skamms tíma. Það þarf hins vegar að hafa hafa góðan fulltrúa þeirra á þingi. Haraldur er í þungaviktarflokki. Fengur í honum .

Sigurður Þorsteinsson, 1.12.2012 kl. 14:55

3 Smámynd: Ómar Sigurðsson

Ég tek undir með pistlahöfundi. Þetta eru allt mjög öflugt fólk, oh við getum vænst góðu frá þeim.

Ómar Sigurðsson, 1.12.2012 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband