Kíkt út úr skápnum

Þetta hefur verið líflegt sumar í pólitíkinni. Formenn tveggja flokka ákváðu að fara inn í skápana sína til þess að verja sig. Umræðan um Íslandsbanka, launakjör og hlutabréfakaup voru þeim erfið og þær vildu alls ekki fara í kastljós fjölmiðanna, Kristrún Frostadóttir  hafði verið í Kviku banka og fékk að kaupa hlut á sérkjörum. Hún vildi lítið ræða þetta þegar hún kom í pólitíkina og sagði þetta eðlilegt, sem það er að sjálfsögðu ekki. Hún seldi og græddi mikið og taldi þetta fram sem ágóða af hlutabréfásölu, en Skatturinn mat þetta sem dulin laun og skattlagði þetta sem slíkt. Ofurlaun. Þetta mál var líka erfitt fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sem á sér líka sögu í svona málum, þar sem Kristján Arason eiginmaður Þorgerðar hafði á sínum tíma keypt umtalvert magn hlutabréfa í Kaupþingi. Þau viðskipti öll þóttu ekki hjálpa Þorgerði Katrínu í pólitíkinni og hennar aðkoma að umfjöllun um bankakerfið fyrir hrun var gagnaðist henni ekki nú. Kristrún laumaðist aðeins úr skápnum þegar hún ræddi innflytjendamálin, en húnn sá strax að hún hafði leikið afleik og laumaði sér inn í skápinn að nýju. Þorgerður ákvað að læra af mistökum Kristrúnar og vill nú styðja innflytjendastefnu Guðrúnar Hafsteinsdóttur og Sjálfstæðisflokksins. Vandamál hennar er hins vegar að varaformaður Viðreisnar Sigmar Guðmundsson er algjörlega á öndverðri skoðun. Báðar verða að koma út úr skápnum þegar Alþingi kemur saman. Þá verða ofurlaun og hlutabréfakaup starfsmanna fjármálafyrirtækja tekin fyrir og þær þurfa að rifja upp  afar óþægilega hluti. Já, það er ekki alltaf dans á rósum, að koma út úr skápnum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ha!! Eru til margir skápar???

Sigurður I B Guðmundsson, 30.8.2023 kl. 10:59

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

 Já nafni, til á hverju heimili og það fleiri en einn. Yfirleitt er aðeins talað um einn andlegan skáp, en sjálfsagt eru þeir fleiri hjá einhverjum. 

Sigurður Þorsteinsson, 30.8.2023 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband