Orðskrípi

Ef verðlag á vöru og þjónustu hækkar tölum við um verðbólgu, ef það lækkar tölum við um verðhjöðnun. Ef verðlag hefur verið að hækka, en síðan dregur úr þeirri hækkun, er talað um að það hægi á verðbólgunni, en að það sé kallað verðbólgusamdráttur hef ég ekki heyrt áður og finnst það ekki gott orð. Eflaust er hér verið að meina að hraði verðbólgunnar minnki eða úr honum dragi. Það fer ílla á því að segja að eitthvað aukist á sama tíma og það minnkar. Verðbólgusamdráttur er orð sem mér finnst allt í lagi að nota í Spaugstofunni, en ekki í Mbl. nema að Spaugstofan hafi keypt Morgunblaðið.

Annað er að ljóst er að í ljósi kreppunnar í þjóðfélaginu, að neysluvenjur þjóðarinnar hafa breyst. Í ljósi þess er spuring hvort ekki sé ástæða til þess að skoða þá körfu sem verið er að kanna frá mánuði til mánuðar.


mbl.is Verulegur verðbólgusamdráttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Héðinn Björnsson

Einnig þarf að hætta að nota makaskiftasamninga í útreikningum á vísitölu húsnæðisverð enda verða slíkir samningar alltaf með of há verð. Ofmat þessarar vísitölu veldur því að húsnæðislánin eru ofmetin í dag um 5%.

Héðinn Björnsson, 19.3.2009 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband