Dagur fyrsti formaður Besta flokksins?

Þegar Dagur var spurður um kosningar til formanns og varaformanns, gaf hann til kynna að hugsanlega kæmu fram framboð í þessi embætti. Ástæðan er sú að hann vissi að í lýðræðislegum stjórnmálaflokkum er fyllilega eðlilegt að fram komi framboð. Í raun og veru er það eðlilegt og heilbrigt. Það er líka eðlilegt að fólk sé með mismunandi áherslur í pólitík innan flokka. Þannig verður oft til framþróun Í þanngi lýðræðislegan flokk gekk Dagur B. Eggertsson, og varð fljótt vonarstjarna. Sá sem tæki við af merkum leiðtoga Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Síðan kom hrun og Jóhanna, lýðræðislegar umræður og skoðanaskipti voru lögð niður og stjórnarhættir og stefna minntu á ástand í fyrrum Austur þýskalandi. Allir í Samfylkingunni styðja þannig ESB, það er aðeins í skoðanakönnuum sem fram kemur að hluti flokksins gerir það ekki. Allir sem eitthvað vissu um pólitík vissu að engir færu fram á móti Jóhönnu og Degi, þó það væri deginum ljósara að tími þeirra beggja er liðinn. 

Í dag voru þau Brésnef og Jeltsin kosin, eða Pútín og Krúsjof. Hvað sem þau nú heita skiptir minnstu, og innan tíðar munu flokksfélagarnir reyna að gleyma þeim sem fyrst. Það verður ekki einu sinni gerð af þeim brjóstmynd.

 Dagur verður hins vegar aldrei formaður Samfylkingarinnar. Hann er hins vegar orðaður við að verða fyrsti formaður Besta flokksins eða sameiginlegs flokks Besta flokksins og Guðmundar Steingrímssonar. Þá verður eflaust lítið eftir af Samfylkingunni, nema að Samfylkingin sameinist Jóni Gnarr og Guðmundi Steingrímssyni. 


mbl.is Dagur sjálfkjörinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Hilmar Gíslason

Sennilega er mannvalið hjá Samfylkingunni í það slæmu ástandi að það treystir sér á móti þeim. Jóhanna gæti orðið reið og hellt úr skálum reiði sinnar og þá lætur hún allt fjúka, eins og hún gerði í umræðunum um vantraustið. Þá lét hún það fjúka úr ræðustól að hún ætlaði ekki að láta það er áunnist hefði fyrir hunda og svín. Þar átti hún við stjórnarandstöðu.

Kristinn Hilmar Gíslason, 22.10.2011 kl. 19:03

2 Smámynd: Sólbjörg

Sjálfkjör Jóhönnu er sjálfsvíg samfylkingarinnar og félagsmenn sem vita það er líklegast til alveg sama, því samfó er að fara að fæða nýjan flokk og flestir óánægðir ætla að færa sig í nýja flokkinn hans Guðmundar. Flokkurinn hans gæti þá heitið GUMS í höfuðið á þeim báðum, honum og samfó og jafnframt lýst stefnu nýja flokksins.

Sólbjörg, 23.10.2011 kl. 00:26

3 Smámynd: Björn Emilsson

Gott hja Sólbjörgu..  GUMS

Björn Emilsson, 23.10.2011 kl. 01:51

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sólborg, GUMS er feiknarlega gott nýyrði, og gott nafn á nýja flokkinn. Svo lýsandi, svo ...

Sigurður Þorsteinsson, 23.10.2011 kl. 08:52

5 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Sólbjörg snilld hjá þer.Samfylkingin þettað ömulega fyrirbæri er að fremja sjálfsvíg sem betur fer en leifarnar bregða sér í allra kvikinda líki til að reyna að halda landráðum sinum áfram GUMS et rétta nafnið.Látum ekki GUMSIÐ blekkja okkur!

Örn Ægir Reynisson, 23.10.2011 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband