Stórtíðindi úr höfuðstöðvum ASÍ!

 

Í dag bárust stórtíðindi fá höfuðstöðvum ASÍ. Nú skal leyfa frjálsan innflutning atvinnuafls!. Þetta mun jú þýða að allar takmarkanir ASÍ varðandi atvinnuleyfi verða aflagðar. Þetta er ekki spurning um afdráttarlausa afstöðu stjórnar ASÍ, heldur er að myndast breiðfylking þar sem frá Samfylkingu stígur fram Kristrún Frostadóttir, Suðurnesjapólitíkusarnir Oddný Harðardóttir úr Suðurnesjabæ og Páll Valur Björnsson úr Grindavík, auðvitað eru þau með Þórhildur Sunna og fylgifiskurinn Björn Levi Gunnarsson úr Pirötum, Viðreisn hver og hvar sem hún er og sósíalistafrömuðurinn Gunnar Smári Egilsson. Þá fylgir hið ,,hlutlausa" RÚV liðið auðvitað með. Þetta eru að sjálfsögðu ekki nýjar hugmyndir því Þórólfur Geir Matthíasson prófessor í Viðskiptadeild HÍ, sem spáði að við yrðum Kúpa Norðursins ef við samþykktum ekki fyrsta Icesavesamninginn, hefur líka haldið því fram að auðvelt sé að fá ódýrari starfskrafta til að framleiða landbúnaðarafurðir en íslenska bændur. Er virkilega samstaða um þetta á Íslandi? Þetta þýðir vissulega lækkun verðbólgunnar, því þetta mun leiða til stórlækkunar launa. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Jakobsson

A nation can survive its fools, and even the ambitious. But it cannot survive treason from within. An enemy at the gates is less formidable, for he is known and carries his banner openly. But the traitor moves amongst those within the gate freely, his sly whispers rustling through all the alleys, heard in the very halls of government itself.

Marcus Tullius Cicero

Skúli Jakobsson, 17.8.2023 kl. 18:59

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ef þjóðin vill opna landamærin þá ber að virða þann vilja. Ef ekki þá verður að takmarka þann fjölda sem við viljum taka á móti. Til þess höfum við starfsmenn Útlendingastofnunar sem fara yfir málin og afgreiða. Þessi málaflokkur hefur lengi verið notaður í pólitískt leikrit. Þjóðin verður að taka umræðuna og fara yfir kosti og galla. Ef ríkisfjölmiðillinn er ekki fær um að fjalla um málin á hlutlausan hátt, þá er komin full ástæða til þess að endurskoða tilvist þessa miðils. 

Sigurður Þorsteinsson, 18.8.2023 kl. 08:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband