Hverjir eiga Ísland?

Allt sem fram hefur komið um Icesave segir að við megum ekki samþykkja þennan samning. Samt er eitthvað sem segir manni að stjórnvöld ætli að samþykkja samninginn af flokkspólitískum ástæðum. Eftir búsáhaldabyltinguna urðu flokkarnir svo óskaplega lýðræðislegir. Valdið til fólksins. Nú örfáum mánuðum síðar virðast pólitíkusarnir hafa  gleymt almenningi og nú eru það flokkarnir sem ráða. Þetta er ekki spurning um smámál, þetta er spurning um framtíð barnanna okkar. Samþykkt þessa samnings setur þjóðina í fátækragildru til komandi ára.

Seðlabankinn gerir ráð fyrir ráð fyrir 6-7% árlegri aukningu í þjóðarframleiðslu á árunum 2012-2018. Það verður að teljast afar bjartsýnar forsendur. Á þessum tíma sama tíma reikna bankinn með að jákvæðum vöruskiptajöfnuði allan tímann, sem í ljósi sögunnar er óhugsandi.

Mistök hafa verið gerð við samningagerðina og það er ódýrara fyrir þjóðina að viðurkenna það, en að borga herlegheitin.  Alþingi gaf ekki sendinefndinni umboð til þess að semja fyrir sig. Sendinefndinni var fullkunnugt um að ef hún ætlaði að semja um ríkisábyrgð þá þyrfti samningurinn að vera þannig að Alþingi myndi samþykkja hann. Það var Bretum og Hollendingum einnig ljóst. Miðað við þá vankanta sem komið hafa í ljós, þegar farið er yfir þennan samning, ber að hafna samningnum.


mbl.is „Menn sömdu af sér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel mælt, þess má einnig geta að fjölmiðlar bregðast landsmönnum allsvakalega.

Þeir hafa statt og stöðugt flutt þessa þvælu sem ríkisstjórnin ætlar að hræða landsmenn með og þeir virðast hafa meiri áhyggjur af því hvað Bretar og Hollendingar hafa um okkar afstöðu að segja heldur en hvaða áhrif málið hefur á samlanda okkar.

Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess að fjölmiðlarnir eru að mestu leiti í eigu útrásarvíkinga og góðvina þeirra sem hafa hag af því að við tökum á okkur allar skuldir þeirra.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 09:27

2 identicon

góður pistill Sigurður.

sandkassi (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 13:44

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég bendi á minn eigin pistil, sem ég var að ljúka við, fyrir klukkutíma síðan.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 20.7.2009 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband