Af Norðurlandaþingi.

Jóhanna hélt mergjaða ræðu á Norðurlandaþinginu í dag. Þar lagði hún áherslu á samstarf Íslands við smáríki innan ESB. Þingfulltrúar litu forviða á hvern annan. Hvað á hún við? Færeyingar og Grænlendingar hafa hafnað aðild að ESB, við hvern var þá átt? Jú, ekki stóð á svarinu t.d. Bretum. Þingfulltrúarnir misstu andlitið, jú og Grímseyingum og Hríseyingum, bætti hún við. Ljóst var að þingfulltrúarnir höfðu aldrei heyrt um Grímsey eða Hrísey, en þá bættist Surtsey í hópinn og margir Norðurlandabúanna höfðu heyrt um Surtsey, en vissu ekki að hún væri í byggð.

Strax á fyrsta degi er öllum á Norðurlandaþingi orðið ljóst að enginn styður aðild að ESB á Íslandi, nema Samfylkingin og því var Jóhanna spurð um skoðun Steingríms Sigfússonar á aðild ESB, stóð ekki á svarinu. Það tekur enginn mark á Steingrími, auk þess sem að í minni ríkisstjórn hafa allri sömu skoðun, þ.e. mína skoðun, aðrir verða að segja af sér. Þjóðin ræður og ég er þjóðin.

Forsætisráðherra Noregs heyrðist tauta. ,,Nú skiljið þið vonandi af hverju við viljum ekkert með Ísland hafa að gera". Þau fá aldrei norsku krónuna, aldrei!


mbl.is Aukið samstarf smærri aðildarríkja mikilvægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Grétarsdóttir

Góður...

Anna Grétarsdóttir, 28.10.2009 kl. 00:06

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.10.2009 kl. 02:08

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Bjarni Kjartansson, 28.10.2009 kl. 10:09

4 Smámynd: Elle_

Ha, ha.

Elle_, 29.10.2009 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband