Yfirlýsing frá meintum brotamanni!

Það er ekki oft sem meintir brotamenn gefa yfirlýsingar i fjölmiðlum. Viðurkennir að hafa brotið af sér í einu tilfelli, en ekki öðru. Sambærilegt og að hafa viðurkennt að hafa brotist inn í tölvubúðina, en ekki í sjoppuna. Eflaust eiga fjölmiðlar í framtíðinni eftir að birta slíkar yfirlýsingar í hudraðatali í framtíðinni, frá þeim sem hafa verið ákærðir. Jú, út frá jafnræðisreglunni.

Auðvitað á Flosi Eiríksson fyrrverandi bæjarfullrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi að skammast sín, fyrir þessa yfirlýsingu, og fyrirtækið sem hann vinnur hjá einnig. Dómgreindarleysi á hæsta stigi. Þá ætti Samfylkingin í Kópavogi að biðjast opinberlega afsökunar á Flosa og hinum bæjarfulltrúanum í stjórn lífeyrissjóðsins Jóni Júlíussyni. Það gerir flokkurinn aldrei, því hann biðst aldrei afsökunar og sér aldrei sök hjá sér, eins og sagan segir okkur. 

Hitt er annað dæmi, að ákært hafi verið í þessu dæmi, þar sem sjóðsfélagar töpuðu ekki, en engin ákæra hefur verið gefin út á þá stjórnarmenn lífeyrissjóða þar sem milljarðar töpuðust í óvarlegum fjárfestingum. Sumir þeirra stjórnarmanna sitja sem fastast og bera fyrir sig að þeim þykja svo góðar snittur sem fram eru bornar á stjórnarfundum. 

Vinnuferlið í skoðun þessa máls finnst mér hreint með ólíkindum og hafa verið sögusagnir í gangi um að það hafi verið að undirlagi fjármálaráðherrans, enda hafi VG ekki átt fulltrúa í stjórn lífeyrissjóðsins. 

Ég skora á fjölmiðla að fá til sín fagmenn til þess að fjalla um þetta mál, og bera saman við þau mál sem í gagni eru í kerfinu, og lítið gengur í að kanna. 


mbl.is Fyrrum forsvarsmenn lífeyrissjóðs ákærðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna Sigurðardóttir sendir brottfluttum Íslendingum jólakveðjur.

Venjulegt fólk sendir gjarnan nákomnum brottfluttum Íslendinum jólakveðjur. Það þurfa óvenju margir að gera um þessi jól. Getulaus ríkisstjórn hefur hrakið fjölda fólks úr landi. Jóhanna Sigurðardóttir sendir þessu fólki mjög óvenjulegar jólakveðjur í fréttum RÚV.

 ,, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir fólksflutninga nú árið 2011 ekki meiri en í venjulegu árferði. Hún segir stórlega ofsagt að hér séu miklir fólksflutningar."

Allt okkar góða fólk sem flutt hefur síðustu þrjú árin eru væntanlega í hennar huga í fríi í Noregi og þeim öðrum löndum sem fólk hefur flúið til. Sennilega iðjuleysingar. 

Gissur Gissurarson, hinn skörulegi fréttamaður á Bylgjunni lýsir tilfinningum okkar hér heima. 

Hann byrjaði að  fjalla  um hryðjuverk í Belgíu og Italíu. Þar sem hann veltir því fyrir sér hvað sé að gerast. Svo segir hann að forviða, en þá  Ísland: 

"Svo förum  við heim til Íslands þá kemur í ljós að forsætisráðherrann okkar sem er svona, samkvæmt þeim titli  verkstjóri í ríkisstjórninni,  ríkistjórn sem hefur boðað gagnsæi og sannleika sem boðar gagnsæi og sannleika,hún er annað hvort orðin veruleikafirrt eða hún er að tala til þjóðarinnar eins og að hún sé fávitar".

Ef fréttamaður í nágrannalöndum ökkar héldi slíku fram í fréttatíma yrði án efa allt vitlaust. Viðbrögðin hérlendis eru nánast engin, margir kinka bara kolli. Það ber vott um að virðing þjóðarinnar fyrir forsætisráðherranum er komin niður fyrir frostmark.

Þar sem engin von er að Jóhanna biðji brottflutta Íslendinga afsökunar, svo og aðstandendur þeirra ætti Alþingi að samþykkja afsökunarbeiðni til þjóðarinnar og allra þeirra sem málið varðar. 


Hagvöxturinn að sliga Jóhönnu Sigurðardóttur

Í viðtali við Jóhönnu Sigurðardóttur í fréttum ríkissjónvarpsins kemur fram að mikill hagvöxtur hérlendis er að sliga kerlingarræksnið. Fyrst dettur manni í hug að hún hafi orðið hrasað um einhvern brandara, en eins og fram kemur í fréttinni er hún að bulla um þetta í fullri alvöru. Er ekki kominn tími til þess að við kjósendur stoppum þessa vitleysu. 

 


Skatturinn sem styrkir, hressir, bætir og kætir !

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir í á Visi.is  lífeyrissjóðina njóta góðs af skattlagningu á sjóðina. Hún sé hluti af aðgerðum til styrktar skuldugum heimilum og sjóðirnir muni njóta góðs af betri stöðu heimilanna.

„Það er fráleitt að tala um þetta sem tapað fé lífeyrissjóðanna. Þeir njóta góðs af samlegðaráhrifum, það dregur úr afskriftum og þetta bætir eignasafn sjóðanna. Þá styrkir þetta greiðslugetu skuldunauta sjóðanna. Þetta er fráleitt skattlagning út í loftið og allra síst sett á vegna halla ríkissjóðs.“

Nú verður afar áhugavert að sjá hvernig fjölmiðlar fjalla um þennan stórkostlega boðskap... og visku!


Spurðu áður en þau fatta það!

Á Vísi í dag, kemur fram að Stöð 2 og Fréttablaðið hafi gert skoðanakönnun um hvort halda eigi viðræðum við ESB áfram eða ekki og í ljós hafi komið að 65% vildu ljúka viðræðunum.

Á sunnudag var ég í feiknargóðri skötuveislu og þar var m.a. ESB umræðan tekin. Þeir sem tóku þátt að ræða niðurstöðu síðustu daga, viðurkennu flestir að þeir höfðu alls ekki kynnt sér um hvað málið snérist. Einn var ESB sinni og hann sagði niðurstöðu síðustu daga vera mikil vonbrigði. Nú væri alveg ljóst að við værum ekki að fara að taka upp Evru á næstu árum. Hann vildi samt klára þessar viðræður. Aðrir höðu alls ekki kynnt sér hver staðan er, þá voru þeir sem engan áhuga höfðu á málinu, eða voru ekki virkir í samræðunum. 

Skoðanakönnun nú er auðvitað bull. Spyrja þarf hver tilgangurinn er. Hvenær var skoðanakönnunin tekin?

Venjulegt fólk á eftir að kynna sér niðurstöðuna. Sjálfur hef ég leitast við að setja mig í það sem hefur verið að gerast bæði í þýskum og enskum fjölmðlum. Niðurstaða mín er að ESB muni skiptast upp, ef ekki alveg þá í deildir. Það skiptir máli í hvaða deild er þá sótt um. Það er alls ekki víst að efsta deildin væri áhugaverð, heldur ekki neðri deildirnar. 

Skoðanakönnun Stöðvar2 og Fréttablaðsins ber allan keim að vera áróðursaðgerð fremur en skoðanakönnun. 


mbl.is Meirihluti vill ljúka ESB-viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7,4% kjósenda styðja Samfylkinguna

Merkileg skoðanakönnun hjá fjölmiðlum Samfylkingarinnar, Fréttablaðinu og Stöð 2.  Þetta er auðvitað stórmerkileg niðurstaða og í ljósi þess nýlegar könnunar þá naut Jóhanna Sigurðardottir stuðnings um 30% Samfylkingarmanna sem gerir þá að um 2,2% landsmanna segjast ætla að styðja Samfylkinguna og jafnframt treysta  Jóhönnu best. Í Reykjavík hittist allur þessi hópur einu sinni í viku á Kaffivagninum og segja að það sé  rúm fyrir alla aðra gesti. Á Akureyri eru félagarnir tveir fara í kaffi af og til og á Ísafirði er einn stuðningsmaður, sem segir lífið bærilegt af því að hann eigi hund til að fara út með. 

Af þeim sem tóku afstöðu studdu 49,6% Sjálfstæðisflokkinn og um 3% gátu hugsað sér að kjósa aðra flokka, eins og Gumsið, Guðmundar Steingríms og Besta flokksins. 

Þetta þýðir marga hluti. Ólína Þorvarðar dettur af Þingi og fer eflaust í hundana fyrir vestan og margir verða að fara að leita sér að almennilegri vinnu. 

Það vekur athygli að Framsóknarflokkurinn er að síga fram úr Samfylkingunni, sem þjáist af alvarlegum innanmeinum þessa stundina. Þrátt fyrir upplausn innan stjórnálanna nú, er líkegast að fjórflokkurinn muni verða ráðandi í næstu kosningum.

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ fer í ESB-jólaköttinn

Forysta ASÍ hélt í vikunni fund, eða ráðstefnu um gengismál. Það er góðra gjalda vert, en ég hef efasemdir um tilganginn. Niðurstðan var að helsta ástæða fyrir hærri vöxtum á íbúðarlánum hérlendis væru vegna íslensku kónunnar. Hér er í best afalli um mikla einföldun á málinu, en líklega þó um valskynjun að ræða. Helsta ástæða fyrir háum raunvöxtum fyrir íbúðakaupendum á Íslandi er fákeppnin á íslenska fjármálamarkaðinum. Lífeyrissjóðirnir hafa boðið í bréf Íbúðalánasjóðs og notið þess að geta ákveðið vextina saman. Ástæðan fyrir því að lífeyrissjóðirnir fara fram á svo háa vexti, er hár rekstarkostnaður þeirra. Í nágrannaríkjum okkar fá lífeyrissjórir ekki svo háa vexti. Það væri hægur vandi fyrir ASÍ að grípa í taumanna, því að það eru þeirra menn og fulltrúar atvinnurekenda sem eru við stjórn. ASÍ hefur barist harkalega gegn því að eigendur lífeyrissjóðanna, þ.e. sjóðsfélagar sjálfir fái að stjórna sjóðunum. Stjórnendur lífeyrissjóðanna hafa fjárfest á undanförnum árum og tapað hunduðum milljarða. Enginn þeirra tekur pokann sinn og ASÍ þegir þunnu hljóði. 

Íslenska krónan er því ekki aðal vandamálið og heldur ekki vertryggingin. Vandamálið er ofurháir vextir ofan á verðtryggingu í skjóli fákeppni. Það er fyrirfram ákveðin niðurstða. Gylfi vill í ESB. 

Það er hins vegar allt annað mál að það þarf að taka upp umræðuna um íslensku krónuna versus að taka upp erlenda mynt. Það fylgir því kostnaður að hafa litla smámynt. Ég hef hér á blogginu löngu fyrir hrun viljað láta skoða upptöku t.d. norskrar krónu. Það getur verið kanadískur dollar, sænsk króna, eða leið sem þýðir að Evran og íslanska krónan séu báðar í umferð á sama tíma.

Það tekur enginn marka á gengisráðstefnu ASÍ. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ hefði alveg eins getað skrifað niðurstöðuna sjálfur. Niðurstöðuna hefði ég líka getað skrifað fyrir Gylfa fyrirfram. Almenn ráðstefna fjöldahreyfinga þar sem farið yrði yfir kosti og galla nýs gjaldmiðls væri hins vegar mjög æskilegí stöðunni til þess að fá fram trúverðuleika.


 Umræðuna þarf að taka. 


Það er allt hægt!

Ég sá leikinn Þýskaland - Ísland í þýska sjónvarpinu. Leit ekki vel út í byrjun og þulirnir áttu ekki orð til þess að lýsa hversu góðar þýsku stelpurnar voru. Smá saman fór að renna tvær grímur á þá þýsku. Í lokin viðurkenndu þeir að íslenska liðið hafi einfaldlega veriðið miklu betra. Óvæt og verulega sætt. Nú eru það kívnerjarnir á föstudaginn. Áfram Ísland.

Það er allt hægt. 


mbl.is Glæsilegur sigur á Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sórún kveður Samfylkinguna.

Samkvæmt fréttamiðlum á vinstri vængum hefur Ingibjörg Sólrún sagt sig úr Samfylkingunni. Ástæðurnar eru eflaust margar, en ein er sögð sú að Jón Baldvin Hannibalsson ætlar að halda námskeið um Rannsóknarskýrslu Alþingis. Allir mega vita hvaða útreið Ingibjörg Sólrún fær á því námskeiði. Jón Baldvin þolir ekki Ingibjörgu Kvennalistakerlingu, en hann þolir heldur ekki Jóhönnu Þjóðvakaformann, né Jóhönnu Allaballa. Ingibjörg þolir ekki Jón Baldvin Alþýðuflokksformann, og illa þolir hún Jóhönnu Sigurðardóttur sem er kominn með Samfylkinguna í ferðalag fram hjá Norðurlöndunum og langt inn í Sovétríkin. 
 
Allir vita svo að Jóhanna þolir ekki Jón Baldvin, sem er víst einmitt ein helsta ástæðan fyrir því að Jón Baldvin er beðinn um halda námskeið um Rannsóknarskýrsluna hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Ekki er talið ólíklegt að Jón Baldvin skelli því þar fram að Jóhanna hefði átt að segja af sér, vegna tengsla sinna við hrunið. 
 
Þetta skýrir að hluta að Samfylkingin er að liðast í sundur. Jón sem er svo mikill prinsippsmaður, að ef hinir foringjarnir gera ekki eins og hann vill, er það óalandi og óferjandi. Vinur minn er harður jafnaðarmaður studdi einu sinni Alþýðuflokkinn. Hann hélt að væri jafnaðarmannaflokkur og sagði sig úr flokknum þegar Jón Baldvin Hannibalsson hélt afmælispartý heima hjá sér. Áfengið í veisluna var talið hafa verið borgað af hinu opinbera. Þetta þótti vini mínum vera prisnippmál, sem Jóni Baldvini fannst ekki. Vinurinn gekk þó aftur í flokkinn, en sagði sig snarlega úr honum aftur  þegar Bryndís Schram eiginkona Jón Baldvins, reyndi að lauma nokkrum kjötstykkjum í gegnum tollinn, við komuna til Keflavíkur. Jóni Baldvini prinsippmanni þótti lítið til þessa koma. 
 
Var ekki einhver að tala um að öll dýrin í skóginum ættu að vera vinir?

Á leiðinni til alræðis!

Steingrímur Sigfússon leggur áherslu á að yfirstjórn efnahagsmála eigi að vera á einni hendi, hjá honum sjálfum. Mistök fyrri tíma sé valddreifing. Auðvitað voru það mistök að senda  Svavar Gestsson til að semja um Icesave, senda hefði átt Steingrím Sigfússon. Það er sjálfsagt rétt hjá Steingrími að með því að hafa öll völd hjá einum manni, verður ákvarðanatakan samræmdari.

Það eru mörg þekkt dæmi um slíka skipan mála, og svo geta menn deilt um árangurinn. Skoðum t.d. Stalín á sínum tíma. Hann hafði allt vald hjá sér og var lengi við völd. Þeir sem ekki voru sammála áttu það til að hverfa, sjálfsagt af hræðslu. Svo var það einn í Þýskalandi .... 

Voru einhverjir sem voru með efasemdir um að þessi ríkisstjórn stefndi á alræðisstjórnarhætti?


mbl.is Yfirstjórn efnahagsmála á einum stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband