Mótmælendur í fríi í dag.

Íslenskir mótmælendur eru hlýðnustu mótmælendur í heimi. Ef mótmæla á eða ekki, senda Hrannar Arnarsson og Álfheiði Ingadóttur sms á liðið sitt. Fótgönguliðið hefur engar hugsjónir. Hvort lýðræði er í Kína eða ekki skiptir það engu máli, svo framarlega sem það sjálft sé í ríkisstjórn. Þá koma mótmæli sér illa. Í staðinn mæta örfáar hræður erlendis frá og Birgitta Jónsdóttir mætir af gömlum vana með nokkrar vinkonur sínar, sem koma og mótmæla svona á  yfirborðinu, í stað þess að fara í labbitúr í Elliðárdalinn. Svo veifar Brigitta Jóhönnu vinkonu sinni og góðgerðarmanni vinarlega. Þá er allt búið.

Jóhanna segir að viðbúnaður verði ekkert sérstakur.  Tugir manna sjást á ferli alvopnaðir og önnur eins gærsla hefur aldrei sést á Íslandi. Fjölmiðlarnir spyrja einskis, því þeir eru orðnir því vanir að Jóhnna segi ósatt. Barra skjaldborgarafbrigðið. 

Mótmælendur eru í fríi í dag. Það passar ekki forystunni að það sé verið með læti, og fjölmiðlar hlýða líka. Það eina sem skyggir á gleði dagsins fyrir forsætisráðherrann, er að Kínverjar vilja vinna með okkur á sama tíma  og við fáum daglegar hótanir frá ESB. 


mbl.is Wen gætt af öryggisvörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er náttúrulega kostur við kommúnista í stjórn að það má spara verulega í löggæslu og RÚFFIÐ gefur frí öllum sem ekki kunna að segja heila strauma foringjans og allt minkar þetta lekann úr kassanum  sem alltaf er sagður tómur eins og Evrópa sem er komin að fótum fram og því fengur að fá gest að austan, þangað sem við þurfum að horfa og í vestur en það þíðir ekki að við þurfum að gefa þeim hjarta og nýru, þó að Evrópa ætist til að fá allt svoleiðis.    

Hrólfur Þ Hraundal, 21.4.2012 kl. 20:36

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Birgitta Jónsdóttir ætti að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina, ef hún er heil í því sem hún er að gera. Ég tek ekki mark á þessum aðgerðum hennar núna, vegna þess að verkin hennar stangast á við það sem hún segir.

Hún þarf í það minnsta að útskýra sína hlið á þessum tvískinnungi. Ef hún gerir það ekki, þá er hún jafn ómarktæk og restin af vel yfirborguðum hlaupatíkum svikulla embættis-stjórnmálaafla.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.4.2012 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband