Populisminn

 

Var búinn að ákveða að skrifa blog um populisma. Svo las ég ljóð eftir snillinginn og skáldið Ragnar Inga Aðalsteinsson frá Vaðbrekku. Fæ að setja það hér inn. Er hægt að skrifa betur? 

 
Alhæfingarhálfvitar og skoðanir í neytendapakkningum
 
 
Áður en kemur til tjáskipta skulum við ævinlega gæta þess
að skoða aðeins aðra hlið þess málefnis sem um ræðir.
Það hálfa er nóg.
Þannig er auðveldara að ná utan um efnið.
Losum okkur við alls konar útúrdúra og staðreyndatínslu
– málavextir eru íþyngjandi.
Það sýnir sig að við sem alhæfum alltaf út frá annarri hliðinni
eigum miklu betra með að ná til fólks,
skoðanir okkar eru einfaldar,
við höfum sneitt af þeim alls kyns flækjur og lagað þær
að þörfum neytenda.
Þannig virkar tjáningarfrelsið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fjallar ljóðið ekki frekar um lýðskrum (e. demagoguery)?

Guðmundur Ásgeirsson, 6.11.2023 kl. 14:59

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Guðmundur lýðskrum er einmitt grunnatrrið í populismanum. Athugasemdin því fyllega réttmæt. 

Sigurður Þorsteinsson, 6.11.2023 kl. 23:13

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Populismi kallast á góðri íslensku lýðhyggja og er í hófsömu formi jafn réttmæt stjórnmálastefna og sérhver önnur.

Lýðskrum þekkist allsstaðar á hinu stjórnmálalega litrófi og einskorðast ekki við einhverja eina stjórnmálastefnu.

Guðmundur Ásgeirsson, 6.11.2023 kl. 23:23

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

 Guðmundur geri engar athugasemdi við það hafi einkaskoðanir  hvorki varðandi populisma eða öðru. Fór á stóra ráðstefnu Þýskalandi sem margir afburða fyrirlesarar komu fram, og síðan voru pallborðsumræður. Menn voru einna mest sammála um að populisminn væri alvarlegasta ógn við lýðræðið nú jafnvel hættulegra en nýnasisminn og kommúnisminn. Sé alvarleg teikn á Íslandi að þessi óværa sé dafna hérlendis.

Sigurður Þorsteinsson, 8.11.2023 kl. 06:04

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Guðmundur það eru líka til kenningar um að smáþjofnaður og smáofbeldi geti bara verið til góðs. Lítil þekking er oft skilgreind sem hættuleg þekking. Þetta veldur því t.d að félög eins og Hagsmunasamtök heimilanna verða aldrei mjög stór eða öflug, því þar hafa t.d. verið settar fram kenningar í hagfræði, sem flestum eim sem hafa lært fræðin telja vera hreinasta bull

Sigurður Þorsteinsson, 8.11.2023 kl. 06:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband